Fréttablaðið - 24.08.2007, Síða 52

Fréttablaðið - 24.08.2007, Síða 52
BLS. 10 | sirkus | 24. ÁGÚST 2007 Þ etta eru allt glæsilegar stelpur og ein mun standa uppi sem sigurvegari og fara til New York í janúar og taka þátt í Ford-keppninni fyrir hönd Íslands,“ segir Alexía Björg Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Reykjavík Casting sem stendur fyrir Ford fyrirsætukeppninni sem fram fer í Iðnó hinn 27. september. Alexía Björg leitaði til Forma, félags átrösk- unarsjúklinga, um samstarf við fram- kvæmd keppninnar. „Þegar við feng- um þetta tækifæri ákváðum við að það væri kominn tími til að breyta keppninni aðeins. Við viljum koma skilaboðum til stelpnanna og barna sem horfa upp til þeirra um rétt matar- æði og hreyfingu og fengum stelpurn- ar í Forma í samstarf með okkur. Þær verða með næringarráðgjöf og kenna okkur að forðast hætturnar,“ segir Alexía en allur ágóði seldra miða á keppnina mun renna til Forma. „Anorexíustimpillinn hefur lengi fylgt módelbransanum. Þetta er neikvæð- ur stimpill en átröskunin hefur í raun- inni verið mun lengur til staðar en módelbransinn. Það er líka hægt að vera grannur en þó heilbrigður en þá er mikilvægt að borða hollan mat og hreyfa sig reglulega.” Stelpurnar í keppninni eru í óðaönn að undirbúa sig fyrir stóra daginn. „Við ákváðum að láta þær gera eitthvað skemmtilegt í stað þess að senda þær á hlaupa- brettin. Þær eru að æfa í Kramhúsinu og prófa sig áfram í magadansi og afró svo hver og ein finni skemmtilega hreyfingu við sitt hæfi.“ Hægt er að lesa meira um Ford-keppnina á heimasíðunni www.fordstulkan.is indiana@frettabladid.is LEITIN AÐ FORD-FYRIRSÆTUNNI FER FRAM Í NÆSTA MÁNUÐI. TÍU GLÆSILEGAR STÚLKUR HAFA VERIÐ VALDAR TIL ÞÁTTTÖKU OG TIL MIKILS ER AÐ VINNA. FORD Í SAMVINNU VIÐ FORMA FORD OG FORMA Alexía Björg framkvæmdastjóri og Bryndís Jónsdóttir hjá Reykjavík Casting ásamt Eddu Ýr og Ölmu Geirdal hjá Forma. Hallfríður Þóra Tryggvadóttir 17 ára. Ólofuð Áhugamál eru tíska, hestar, ferðalög og að vera með vinunum. Er á öðru ári í Verzlunarskóla Íslands og vinn í Spúútnik Kringlunni með. Í framtíðinni ætla ég að mennta mig vel og kynnast heiminum. Valdís Eva Guðmundsdóttir 19 ára. Var að koma úr sambandi, er laus og liðug. Er að mála á striga og er komin með jólagjafirnar fyrir næstu árin. Guð veit hvað ég geri næst. Ætli ég einbeiti mér bara ekki að skólanum og keppninni. Ég er í Fjölbraut við Ármúla á náttúrufræðibraut og vinn í dótabúð- inni Leikbæ sem er rosalega gaman. Í framtíðinni ætla ég að gera eitthvað skemmtilegt og njóta. Langar að prufa að búa úti en þarf að safna pening og klára skólann. Er það svo ekki bara hús með hvítri girðingu, Volvo, maður, börn og hundur. Fríða Sóley Hjartardóttir Verð 16 ára í nóvember. Enginn kærasti ennþá. Áhugamálin eru ballett, að vera með vinunum, hlusta á góða tónlist og ferðast. Er í Kvennaskólanum í Reykjavík. Ætla mér að ferðast í framtíðinni. Fer einmitt sem skiptinemi eftir eitt ár og klára skólann eftir það. Tinna Rún Kristófersdóttir 17 ára Á lausu Áhugamálin eru tónlist, tíska, skemmta mér og bara hafa gaman af lífinu. Ég er í Iðnskóla Reykjavíkur og er að vinna í Warehouse Kringlunni. Framtíðarplön mín eru að lifa lífinu lifandi og vonandi vinna við módelstörf. Andrea Nótt Guðmundsdóttir 16 ára. Á lausu. Áhugamál mín eru vinirnir, fjölskyld- an, að versla og fullt feira. Ég er í Borgarholtsskóla. Í framtíðinni ætla ég að klára skólann, fá góða vinnu og lifa góðu lífi. Oddný Þorsteinsdóttir Verð 17 ára í nóvember. Á föstu með Páli Inga Guðmunds- syni. Áhugamál eru tónlist, ferðalög og fleira. Er í Verzlunarskóla Íslands og vinn í Lágafellslaug í Mosfellsbæ. Stefni á að klára stúdentinn og fara í Háskóla. Bryndís Lára Halldórsdóttir Fædd 1991. Á lausu. Áhugi minn er á ballett, öðrum dansi og módelstörfum. Fer að byrja í MR. Framtíðarplanið er að klára mennta- og háskóla og vinna sem módel. Eva María Mattadóttir Verð 16 í október. Á lausu. Hef áhuga á tísku, tónlist, heilsu, útlandaferðum og kósíkvöldum með vinunum. Er að byrja á fyrsta ári í Versló. Framtíðarplanið er að lifa góðu og heilbrigðu lífi. Sé til með rest. Elín Ösp Vilhjálmsdóttir 18 ára Á lausu Áhugamál eru hreyfing, vinirnir og fjölskyldan. Tíska, ferðalög, voff- inn minn og fleira. Er í Verzlunarskóla Íslands. Ég er að útskrifast úr Verzló núna í vor. Í framtíðinni langar mig að fara út og læra, njóta lífsins, eignast einhvern tímann mann, börn, hund og stórt hús. Ég ætla líka að vera hamingjusöm. Tinna Helgadóttir 16 ára. Á föstu með Reyni Hafþóri. Áhugamál eru dans, teikning, bílar, lestur, tónlist, vinir, bíómynd- ir, kærastinn og fjölskyldan. Ég er á leiðinni í MR og vinn í Sunnubúð. Ég stefni að því að verða skurð- læknir eða svæfingarlæknir. Ætla í skóla í Ameríku og sérmennta mig.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.