Fréttablaðið - 24.08.2007, Side 55

Fréttablaðið - 24.08.2007, Side 55
24. ÁGÚST 2007 | sirkus | BLS. 13 Íslenska ævintýramyndin Astrópía var frumsýnd fyrir fullum sal í Sambíó- unum í Álfabakka í fyrrdag. Kastljósstjarnan Ragnhild- ur Steinunn Jónsdóttir þykir fara á kostum í myndinni, í hlutverki ævintýraprinsess- unnar Hildar, sem og aðrir leikarar hennar, þar á meðal Sveppi, Pétur Jóhann, Snorri Engilbertsson, Sara Hlín Guðmundsdóttir og Halldór Magnússon, bróðir Steins Ármanns, svo fáeinir séu nefndir. Mikil stemning var í salnum en leikstjóri henn- ar, Gunnar Björn Guð- mundsson, kom þó ekki fyrr en að sýningu lokinni en hann var að taka á móti frumburði sínum á sama tíma og sýning myndarinn- ar hófst. Eftir vel heppnaða frum- sýningu var slógu framleið- endurnir, þeir Ingvar Þórðar- son og Júlíus Kemp, upp heljarinnar partíi á skemmtistaðnum Rex. ÍSLENSKA KVIKMYNDIN ASTRÓPÍA VAR FRUMSÝND Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA Í FYRRADAG. HEPPINN SNÁÐI Hér er Alexander Sigurðsson með Höllu Vilhjálmsdóttur leikkonu. GLATT Á HJALLA Eyþór Guðjónsson og Ingibjörg Guðmundsdóttir skemmtu sér vel í eftirpartíinu á Rex. AÐ FRUMSÝNINGU LOKINNI Þórunn Gréta, Davíð Þór og Ragnhildur Steinunn ræddu sín á milli að sýningu lokinni. Davíð leikur kærasta Ragnhildar í myndinni. frumsýning FRÁBÆR DROTTNINGIN Ragnhildur Steinunn skartaði sínu fegursta í eftirpartíinu á Rex. Hér er hún með Alexander Sigurðssyni. MYNDIR/HRÖNN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.