Fréttablaðið - 24.08.2007, Side 66

Fréttablaðið - 24.08.2007, Side 66
„Sumir halda að hér hafi engin lista- verk verið sköpuð fyrr en landinn fór að fara utan til náms í listaskólum. En veggir landnámsmanna voru skreytt- ir ofnum og útsaumuðum tjöldum og fram á okkar daga gengu konur í hand- unnum fötum sem skreytt voru mynd- um og mynstrum og báru þar af leið- andi listina hvert sem þær fóru.“ Þetta segir Akureyringurinn Guðrún Hadda Bjarnadóttir sem nýlega var kjör- in handverksmaður ársins 2007. Hún kveðst hafa hlotið þá viðurkenningu fyrst og fremst fyrir að útbreiða vissan boðskap um íslenskt handverk. „Titillinn er svolítið rugl- andi að því leyti að ég hef ekki verið að gera neitt sér- stakt í handverki á þessu ári,“ segir Guðrún Hadda. „Ég vil hinsvegar að við virðum heimilisiðnað okkar og handverk á sama hátt og bókmenntirnar.“ Þegar Guðrúnu Höddu er bent á að ullin sé vinsæl í fatnað á okkar tímum gefur hún lítið fyrir það. „Sú ull sem mest er dásömuð í dag er innflutt og hefur ekk- ert með Ísland að gera. Það er ekki verið að skoða ullarhandverk á sama hátt og annan menningararf, heldur fyrst og fremst sem söluvöru fyrir útlendinga. Það er markaðurinn sem ræður.“ Hvað er það þá helst í okkar hand- verksmenningu sem Guðrún Hadda vill halda á lofti? „Ég vil að við séum stolt af henni. Allir Íslendingar eiga for- mæður sem unnu úr því efni sem skap- aðist á heimilinu og klæddu með því börn sín og fjöl- skyldu. Öll sængurföt voru úr ull, öll fötin og allur saum- þráður. Vaðmálið sem þær unnu var líka ein af okkar helstu útflutnings- vörum. Þetta var svo ótrúlega vandað að við getum ekki gert annað eins og komum ekki til með að geta í framtíð- inni. Ég tel mig þokkalega spunakonu og hef reynt að spinna uppistöðu í vað- málsvef en hún slitnaði jafnóðum. Hvað þá ef ég hefði sett hana upp í vefstæði þar sem steinar héngu og toguðu í. Við eigum að vera að springa af stolti yfir að hafa átt konur sem gátu þetta. Auðvitað eigum við að leita út á við en við eigum ekki að skammast okkar fyrir það sem áður var og láta það lönd og leið.“ Guðrún Hadda kveðst vera með þrjá vefstóla í notkun. Hún hefur unnið með hinum ýmsu handverkshópum norðan heiða og auk þess að sækja menntun í Myndlistaskóla Akureyrar sat hún á skólabekk Listaháskólans síðasta vetur til að afla sér kennararéttinda. Í lokin er hún spurð hvort hún komi þá ekki örugglega menningararfinum áfram til næstu kynslóða. „Ég veit það nú ekki en ég er með smá kúrs í leikskóladeildinni í HA. Þar beini ég meðal annars sjón- um að sauðkindinni, sem sá okkur fyrir efni í föt og skó, leikföngum, mjólk og mat.“ „Eftir að hafa verið í Harry Potter trúi ég aðeins meira á töfra en ég gerði áður.“ Norræna húsið opnað Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Áslaug Klara Júlíusdóttir Sléttuvegi 7, Reykjavík, andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 21. ágúst. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 29. ágúst kl. 15.00. Kjartan Heiðar Haraldsson Linda Guðný Róbertsdóttir Júlíus Heiðar Haraldsson Harpa Másdóttir Sigurður Heiðar Haraldsson Helga Olgeirsdóttir Maríanna Heiða Haraldsdóttir Ragnar Kristinn Sigurðsson Theódóra Sigrún Haraldsdóttir Sigurjón Valberg Jónsson Ingibjörg Guðrún Haraldsdóttir Oddgeir Kristjánsson ömmu- og langömmubörn. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, Erika Guðjónsson áður til heimilis á Brimhólabraut 26 Vestmanneyjum. Helgubraut 7, Kópavogi, lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund föstudaginn 10. ágúst. Útför hefur farið fram. Fyrir hönd aðstandenda, Reynir Carl Þorleifsson Jenný Eyland barnabörn og barnabarnabörn. Hjartkær eiginmaður minn, Jón Þórir Einarsson sjómaður, Vesturbergi 28, sem andaðist á Líknardeild Landspítalans, Landakoti, laugardaginn 18. ágúst, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 28. ágúst kl. 13:00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið, s. 540 1990. Guðbjörg Jóna Sigurðardóttir systkini og aðrir ástvinir. 90 ára afmæli Föstudaginn 24. ágúst verður Steinunn Sigurðardóttir, Brekku í Garði, níutíu ára af því tilefni býður hún og fjölskylda hennar ætting jum og vinum til samfagnaðar í samkomuhúsinu í Garði á afmælis- daginn kl. 16.00. Blóm og g jafir eru vinsamlega afþakkaðar. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar föður okkar, sonar, bróður, mágs og fyrr- verandi eiginmanns og tengdasonar Birgis Árna Þorvaldssonar sem lést þriðjudaginn 7. ágúst síðastliðinn. Logi Birgisson Kjartan Birgisson Viktoría Sól Birgisdóttir Benjamín Árni Birgisson Óðinn Guðmannsson Þorvaldur Signar Aðalsteinsson Aðalheiður Ingólfsdóttir Ingólfur Örn Eggertsson Krístín Örlygsdóttir Þorvaldur Þorvaldsson Erna Jónsdóttir Andrea Margrét Þorvaldsdóttir Sigrún Rósa Kjartansdóttir Kjartan Tryggvason Sólrún S. Benjamínsdóttir Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur og sonarsonur, Björgmundur Bragason Vitastíg 15, Bolungarvík, er lést sunnudaginn 19. ágúst síðastliðinn, verður jarðsettur laugardaginn 25. ágúst frá Hólskirkju Bolungarvík kl. 14:00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarfélög. Guðrún Jóhannsdóttir Bragi Björgmundsson Fríða Bragadóttir Kristján Sig. Kristjánsson Jóhann Bragason Dorota Rutkowska Lovísa Loftsdóttir Einar Einarsson og aðrir ástvinir. Ástkær móðir okkar, Hulda Sigmundsdóttir kennari frá Þingeyri andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtudaginn 23. ágúst. Erla Árnadóttir Gústaf Jónsson Guðmundur Árnason Kolbrún Sigfúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengda- faðir, sonur, tengdasonur, bróðir og vinur, Sigurður Örn Hermannsson Hjallavegi 15a, Reykjanesbæ, sem lést þriðjudaginn 14. ágúst, verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju mánudaginn 27. ágúst klukkan 14.00. Alma Tómasdóttir Tómas Örn Sigurðsson Karen Ösp Randversdóttir Hermann Sigurjón Sigurðsson Ísabella Ósk Eyþórsdóttir Viktor Sigurðsson Hermann Sigurðsson Guðrún Emilsdóttir Hrefna Pétursdóttir Almar Viktor Þórólfsson systkini og aðrir aðstandendur. AFMÆLI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.