Fréttablaðið - 24.08.2007, Síða 82
til leiks. Þegar við eigum tvo leiki
með stuttu millibili hlýtur mark-
miðið vera að ná sex stigum. Okkur
tókst það gegn Svíum og Liechten-
stein og vonandi náum við því
aftur nú næst.“
Healy er vitanlega orðinn þjóð-
hetja í Norður-Írlandi, fæðingar-
stað George Best. Best skoraði
einungis níu mörk í 37 landsleikj-
um með Norður-Írlandi en Healy
er löngu orðinn markahæsti lands-
liðsmaðurinn frá upphafi og er nú
með 31 mark í einungis 57 leikj-
um.
Norður-Írland er í öðru sæti F-
riðils í undankeppni EM 2008 og er
samkvæmt því á góðri leið með að
tryggja sér sæti í sjálfri úrslita-
keppninni. Staða liðsins er í það
minnsta mjög vænleg.
Þegar röð væntanlegra leikja er
skoðuð kemur þó í ljós að við
ramman reip verður að draga fyrir
Healy og hans félaga á lokasprett-
inum. Framundan eru fjórir úti-
leikir, gegn Lettlandi, Íslandi, Sví-
þjóð og Spáni, og aðeins einn
heimaleikur – gegn Dönum. Hvort
Healy verður áfram atkvæðamik-
ill og skýtur sínum mönnum nán-
ast einn síns liðs á EM í Austurríki
og Sviss verður einfaldlega að
koma í ljós. Hermann og félagar
hans í íslensku vörninni munu
væntanlega hafa sitthvað um það
að segja. Það hefur gengið á ýmsu
hjá strákunum okkar í þessari und-
ankeppni en þeir mega eiga það að
íslenska vörnin er sú eina í riðlin-
um sem hefur haldið David Healy
í skefjum á Windsor Park.
„Hann reyndi sífellt að
sparka boltanum í mig og fiska á
mig gult spjald. Það var óheiðar-
legt af honum og ég sagði bara
mína skoðun á því.“
Þannig segir Hermann Hreiðars-
son frá samskiptum sínum við
David Healy eftir frækinn 3-0
sigur Íslands á Norður-Írum á
Windsor Park. Hermann náði í
þessum leik að halda vel aftur af
Healy, sem fór gríðarlega mikið í
taugarnar á þeim síðarnefnda. Oft
virtist ætla að sjóða upp úr í sam-
skiptum þeirra.
Healy skoraði reyndar mark í
leiknum sem var dæmt af vegna
rangstöðu. Það var bara til að bæta
gráu á svart á afar slæmum degi.
Síðan þá hefur Healy tekið sig
saman í andlitinu og leikið við
hvern sinn fingur. Hann hefur
skorað ellefu mörk í sex leikjum, á
sama tíma og Ísland hefur tapað
fimm og gert eitt pínlegt jafntefli
gegn Liechtenstein.
Healy hefur á þessum tíma
skorað níu mörkum meira en
íslenska liðið allt til samans.
Sex er töfratalan fyrir næsta
verkefni Norður-Írlands, segir
Healy. Hann skoraði tvívegis gegn
Liechtenstein í vikunni en fram-
undan eru útileikir í Riga og
Reykjavík. Stefnan er sett á sex
stig úr þessum leikjum og þar með
að vinna sex leiki í röð í undan-
keppninni.
„Fyrir nokkrum árum hefðum
við verið ánægðir með að fara
þangað og ná stigi úr hvorum
leik,“ sagði Healy eftir sigurinn á
Liechtenstein. „En nú höfum við
sett markið hærra. Við munum
ræða þessi mál í búningsklefanum
fyrir leikina og ganga sigurvissir
David Healy, landsliðsmaður Norður-Írlands, hefur farið hamförum í undankeppni EM 2008. Hann er lang-
markahæstur í allri undankeppninni og hefur skorað sex mörkum meira en allt íslenska liðið til samans.
Fjórir leikmenn hafa
verið úrskurðaðir í leikbann í
Landsbankadeild karla, allir
vegna fjögurra áminninga. Þetta
eru þeir Rúnar Kristinsson, KR,
Óðinn Árnason, Fram, Arnór
Sveinn Aðalsteinsson, Breiða-
bliki, og Hörður Bjarnason,
Víkingi, og missa þeir af leikjum
sinna liða á sunnudaginn.
Fjórir í bann
Enskir fjölmiðlar vilja að
sonur Peters Schmeichel og mark-
vörður Man. City, Kasper, verði
fenginn til að vera landsliðsmark-
vörður Englands eftir enn ein mis-
tök Pauls Robinson í 1-2 tapi fyrir
Þjóðverjum.
Kasper Schmeichel, sem hefur
haldið hreinu fyrstu 270 mínútur
sínar í ensku úrvalsdeildinni, er
fæddur í Danmörku 5. nóvember
1986 en er búinn að búa mest allt
sitt líf í Englandi þar sem faðir
hans gerðist leikmaður Manchest-
er United 1991.
Kasper á því möguleika á að
spila fyrir báðar þjóðir en hann
verður að ákveða sig fyrir 21 árs
aldur. Kasper hefur leikið fyrir 21
árs landslið Dana en það skiptir
ekki máli því landsliðsframtíð
hans ræðst ekki fyrr en hann spil-
ar fyrir A-landslið.
Þeir sem þekkja til stráksins
telja þó engar líkur á því að Kas-
per gefi upp danska landsliðið því
væntanlega ætlar hann að feta þar
í fótspor föðurs síns alveg eins og
í ensku úrvalsdeildinni.
Fá Kasper í markið
Íslandsmótið í hand-
bolta er í uppnámi þegar aðeins
rúmar þrjár vikur eru í að fyrsta
umferð fari fram. ÍR-ingar kærðu
að HSÍ skyldi setja lið Hauka 2 í
1. deild. Málið var vísað frá í
áfrýjunardómstól HSÍ. Nú hafa
ÍR-ingar áfrýjað í annað sinn og
nú fyrir dómstól Íþrótta og
Ólympíusambands Íslands.
„ÍR-ingar vilja meina að við
megum ekki leyfa Haukum 2 að
spila í 1. deild. Þeir telja að þetta
eigi að kallast b-lið og eigi að fara
niður í b-liða keppni. Í fyrra var
spilað með lið 2 frá Haukum í 1.
deild. Þeir gefa engar aðrar skýr-
ingar af hverju þeir eru að kæra,”
sagði Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ og bætir við
„Þetta gerir okkur mjög erfitt
fyrir í öllu starfi í kringum móta-
haldið,“ segir Einar en niðurstað-
an getur haft áhrif hve mörg lið
spila í efstu deild því ef aðeins 13
lið tilkynna þátttöku verður að
leika í aðeins einni deild sam-
kvæmt lögum Handknattleiks-
sambandsins.
„Það segir í dómnum frá HSÍ
að hvert lið geti sent eins mörg
lið til keppni eins og þau vilja.
Við sjáum það fyrir á endanum
að það verði bara þrjú rík félög í
efstu deild. Við erum ekki sáttir
að b-lið geti farið upp,“ segir
Stefán Valsson, stjórnarmaður
ÍR og bætir við.
„Þetta gæti haft áhrif á skipt-
ingu deildarinnar, því Höttur er
hættur við þátttöku og við vitum
ekki um Fylki. Við viljum að lögin
séu skýr og að hlutirnir séu í lagi
hjá HSÍ. Við erum alveg sáttir við
að vera í 1. deild ef við fáum lið
til að spila við okkur sem eru
verðugir andstæðingar en ekki
einhver lið sem eru fyllt upp með
strákum úr 3. og 4. flokki,“ segir
Stefán og hefur ekki það á sam-
viskunni að málið setji Íslands-
mótið í uppnám.
„Þeir hefðu átt að bregðast við
þessu fyrr og eru sjálfir búnir að
draga þetta mál á langinn,“ sagði
Stefán að lokum.
Kærumál heldur Íslandsmót-
inu í handbolta í gíslingu
ATHÞJÓNUSTA OFAR ÖLLU
og skráðu eignina þín í sölu hjá okkur
HRINGDU NÚNA
699 6165/899 0800
Stefán Páll Jónsson
Löggiltur fasteignasali
Engjateig 9
105 Reykjavík
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Fr
u
m
Höfum verið beðin um útvega sérbýli
(einbýli, parhús eða raðhús) á Sel-
tjarnarnesi til leigu.
Önnur hverfi koma einnig til greina.
Nánari upplýsingar veitir
Gunnar Helgi á Eignamiðlun
í símum 588 9090 eða 824 9097.
SÉRBÝLI – SÉRBÝLI
ÓSKAST TIL LEIGU
Sigurður Ragnar
Eyjólfsson hefur kallað á Ólínu
Guðbjörgu Viðarsdóttur úr KR
inn í landsliðshóp kvenna fyrir
leikinn gegn Slóveníu á sunnu-
daginn. Ólína tekur sæti Sifar
Atladóttur sem er meidd.
Sif varð fyrir því óhappi að
brjóta fjögur lítil bein í handar-
bakinu á æfingu með Val á
þriðjudag. „Ég brá mér í markið
og þegar ég ætlaði að grípa
boltann sneri ég upp á hendina og
fékk boltann beint á hnúann,“
sagði hún. „Ég kláraði samt
æfinguna,“ bætti hún við og hló.
Hún getur þó áfram spilað með
Val. „Tímabilið er sem betur fer
ekki búið hjá mér.“
Fjórbrotnaði á
hendi á æfingu