Fréttablaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 4
Epli, gulrætur
og enginn viðbættur sykur
Aðeins 46 hitaeiningar í 100 g
Þrjátíu og tveir voru
handteknir á Ítalíu í gær í viðamik-
illi aðgerð lögreglunnar þar gegn
mafíunni. Flestir voru handteknir í
þorpinu San Luca syðst á Ítalíu,
þar sem innbyrðis átök tveggja
mafíuhópa hafa kostað fimmtán
manns lífið á sextán árum.
Samkvæmt fjölmiðlum á Ítalíu
eru í hópi hinna handteknu bræð-
ur tveggja þeirra sex manna sem
myrtir voru í Þýskalandi nýverið.
Aðalforingjar beggja ættanna eru
einnig meðal þeirra sem hand-
teknir voru. Þrír hinna handteknu
fundust í kjallara undir byggingu í
miðbæ San Luca.
Á sjónvarpsstöðinni Sky TG24
TV voru sýndar myndir af lög-
reglumönnum skríða gegnum op á
vegg þar sem fylgsni virtist hafa
verið fyrir innan. Aðgerðir lög-
reglunnar virðast hafa komið fólk-
inu í opna skjöldu.
Renato Cortese, yfirmaður í lög-
reglunni í Reggio Calabria, höfuð-
stað héraðsins, segist telja að með
handtökunum hafi verið komið í
veg fyrir frekara ofbeldi hópanna
tveggja.
„Að öllum líkindum mátti búast
við viðbrögðum, þar sem hatrið
milli þessara tveggja fjölskyldna
er svo mikið,“ sagði Cortese, en
bætti því þó við að lögreglan hefði
ekki haft vitneskju um nein ákveð-
in áform um hefndaraðgerðir
vegna morðanna í Þýskalandi.
Ákærur á hendur hinum hand-
teknu snúast meðal annars um
morð, vopnasölu og tengsl við
mafíuna. Lögreglunni tókst þó
ekki að hafa hendur í hári tólf
manns af þeim 44 sem ætlunin
var að handtaka í aðgerðinni. San
Luca er lítið þorp í Kalabríuhéraði
á Ítalíu, stendur á „tánni“ syðst í
landinu. Einungis þröngt sund
skilur Kalabríu frá Sikiley.
Í San Luca eru höfuðstöðvar
´Ndrangheta, suður-ítölsku mafí-
unnar sem á síðustu árum hefur
smám saman orðið voldugri en
Cosa Nostra, mafían alræmda á
Sikiley.
Fæðardeilur milli tveggja vold-
ugra hópa í ´Ndrangheta-mafíunni
hófust árið 1991, og hefur síðan
gengið á með morðum á báða bóga
allt þar til sex manns voru myrtir
í Duisburg í Þýskalandi 15. ágúst
síðastliðinn.
Giuliano Amato innanríkisráð-
herra segir handtökurnar vera
„sterk og nauðsynleg viðbrögð af
hálfu ríkisins til þess að rjúfa maf-
íudeilurnar milli andstæðra
fjölskylduhópa“.
Í gær, eftir að handtökunum var
lokið, hittust rannsóknarlögreglu-
menn frá Þýskalandi og Ítalíu í
Reggio Calabria til þess að fara
yfir stöðu rannsóknarinnar, meta
árangurinn af þessari síðustu
aðgerð og skiptast á upplýsingum.
Lögreglan stöðvar
vítahring morða
Hundruð lögreglumanna réðust í gær gegn skipulagðri glæpastarfsemi á sunn-
anverðri Ítalíu og handtóku meira en þrátíu manns. Meðal hinna handteknu
eru ættingjar mafíósa sem myrtir voru í Duisburg í Þýskalandi fyrir skemmstu.
Icelandair hefur
sagt upp 39 flugfreyjum og
flugþjónum og 25 flugmönnum
frá og með 1. desember. Alls eru
stöðugildin 29 talsins.
Guðjón Arngrímsson, upplýs-
ingafulltrúi Icelandair, segir
óljósa stöðu verkefna á þessum
árstíma vera eina af orsökum
uppsagnanna. „Það er sífellt
unnið að öflun verkefna og
samningagerða og við vonumst til
að það skili jákvæðari niðurstöðu
síðar.“
Hann segir Icelandair vera með
eitt þúsund manns í áhöfnum yfir
sumartímann og 700 manns yfir
vetrartímann. „Ef fólk hefur
áhuga þá verður það allt komið til
starfa í apríl.“
64 flugfreyjum
og flugmönn-
um sagt upp Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri
grænna, segir stjórnarandstöð-
una enn bíða
þverpólitísks
samráðsvett-
vangs um
öryggismál,
sem hún lofaði
fyrir ári að
setja á fót.
„Það hefur
ekkert gerst í
þessu ennþá,
þrátt fyrir að
margt hafi
verið á dagskrá í varnarmálum,“
segir Steingrímur.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra sagði í ræðu í
Norræna húsinu á miðvikudag
að slíkum samráðsvettvangi yrði
komið á fót og ógnarmat fyrir
Ísland yrði unnið af fagaðilum.
„Ég hefði leitað að betra orði
en „ógnarmat“, en ég hef oft
sagt að áherslan ætti að vera á
almannavarnir og varnir gegn
náttúruhamförum, frekar en
annað,“ segir Steingrímur.
Bíður enn sam-
ráðsvettvangs
Persónuvernd
hefur borist kvörtun vegna
fingrafaraskanna sem notaðir eru
í mötuneytum tveggja skóla í
Hafnarfirði. Þetta staðfestir
Særún María Gunnarsdóttir,
lögfræðingur hjá Persónuvernd.
Fréttablaðið hefur greint frá
því að sams konar skannar hafi
verið úrskurðaðir brot á persón-
uverndarlögum í Svíþjóð.
Málið er komið í farveg hjá
stofnuninni og verður skoðað.
Særún segir þó of snemmt að
segja til um hver niðurstaðan
verði eða hvenær hennar megi
vænta.
Skoðar skanna
Karlmaður á
fimmtugsaldri hefur verið
ákærður fyrir að rækta kannabis-
plöntur í heimahúsi í Reykjavík.
Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu gerði húsleit á heimili
mannsins í Breiðholti og fann
fimm kannabisplöntur auk um 45
gramma af öðrum fíkniefnum, 43
grömm af amfetamíni, 1,7 grömm
af vímuefninu MDMA og um 2,5
grömm af hassi. Maðurinn
framvísaði hluta efnanna þegar
húsleitin var gerð.
Þess er krafist að maðurinn
verði dæmdur til refsingar fyrir
að hafa fíkniefnin í fórum sínum
og þau gerð upptæk.
Ræktaði kanna-
bis heima hjá sér
„Við viljum stuðla að því
að hér sé gott og öflugt lögreglu-
lið. Það er okkar markmið,“ segir
Björn Bjarnason dóms- og kirkju-
málaráðherra spurður álits á
þeirri stöðu sem uppi er hjá lög-
reglunni vegna óánægju með
launamál og brotthvarfs úr starfi
sem þar af leiðir.
„Okkur er ljóst að það gerist
ekki með brotthvarfi góðra manna
úr lögreglunni,“ segir ráðherra
enn fremur. „Við höfum beitt
okkur fyrir því að skapa lögreglu-
mönnum öruggara starfsum-
hverfi, sem er okkar verkefni.
Lög hafa breyst og við höfum
verið í góðri samvinnu við lög-
regluna um að bæta allt starfsum-
hverfi hennar.“
Ráðherra bætir við að reynt hafi
verið að fá fleiri nemendur inn í
Lögregluskólann. „Þá erum við að
setja af stað endurskoðun á starf-
semi skólans og sameina menntun
lögreglumanna, tollvarða og fanga-
varða. Sérstök nefnd hefur hafið
störf í þeim tilgangi. Á öllum svið-
um, er varða dómsmálaráðuráðu-
neyti og umhverfi lögreglumanna,
erum við reiðubúin til að gera allt
sem í okkar valdi stendur til að
starfsumhverfið sé sem best og
leiðin til starfa í lögreglunni sé
sem greiðust.“
Árni M. Mathiesen fjármálaráð-
herra vildi ekki tjá sig um málið
þegar Fréttablaðið leitaði eftir
viðbrögðum hans.
Markmiðið er gott lögreglulið