Fréttablaðið - 31.08.2007, Side 6
ÁTVR ætlar að hætta
að selja kældan bjór í verslun
sinni í Austurstræti en mun ekki
hætta sölu á bjór í stykkjatali.
Þetta kemur fram í svari
fyrirtækisins til Vilhjálms Þ.
Vihjálmssonar borgarstjóra.
Vilhjálmur hafði skrifað ÁTVR
og lýst áhyggjum sínum af sölu á
bjór í stykkjatali og það jafnvel
kældum. Svar fyrirtækisins var
lagt fram á fundi borgarráðs í
gær. Í því lýsir ÁTVR sig reiðubúið
að flytja vínbúðina um set í
miðbænum og vill aðstoð borg-
arinnar við að leita að nýju
húsnæði fyrir starfsemina.
Fulltrúar Samfylkingar í
borgarráði, Björk Vilhelmsdóttir
og Oddný Sturludóttir, spurðu
borgarstjórann að því á fundinum
í gær hvort hann hygðist aðstoða
ÁTVR í húsnæðisleitinni. Sagði
Vilhjálmur að ef formlegt erindi
bærist frá ÁTVR um þetta yrði
„að sjálfsögðu orðið við því“.
Einnig spurðu fulltrúar Sam-
fylkingar borgarstjórann að því
hvort hann ætlaði að beita sér
frekar fyrir því að fyrirtækið hætti
sölu á bjór í stykkjatali. Svaraði
borgarstjórinn því neitandi.
Áfram bjór í lausu í miðbænum
Á Vinnumálastofnun að beita
sektum skrái verktakafyrirtæki
starfsmenn sína ekki á löglegan
hátt hér á landi?
Finnst þér lögregluþjónar of
lágt launaðir?
Meirihluti í Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks í
stjórn Orkuveitu Reykjavíkur
leggur á það áherslu að ekki sé
verið að boða einkavæðingu fyrir-
tækisins með tillögum um að
breyta fyrirtækinu úr sameignar-
félagi í hlutafélag. Tillaga þess
efnis var til umfjöllunar á stjórnar-
fundi fyrirtækisins í gær en
afgreiðslu hennar frestað fram á
mánudag. Samþykkt var á
fundinum að senda rökstuðning
Guðmundar Þóroddssonar, for-
stjóra OR, og Hjörleifs B. Kvaran
aðstoðarforstjóra, fyrir tillögunni,
til fjölmiðla þar sem „fjarstaddir
aðalmenn í stjórn, sem þó hefðu
boðað varamenn sína, hefðu kosið
að gera hana tortryggilega“, eins
og segir í tilkynningu.
Dagur B. Eggertsson, oddviti
Samfylkingarinnar í borgarstjórn
og fulltrúi flokksins í stjórn OR,
segir tillöguna lagða fram án
nægrar umræðu eða undirbúnings
af nokkru tagi. „Þetta mál kemur
eiginlega fram eins og þruma úr
heiðskíru lofti. Þetta mál þarfnast
meiri umræðu og úttekta, og þá
þarf að svara því skýrt hvers
vegna það er þörf á þessum breyt-
ingum. Allir sem borga hita- og
rafmagnsreikninga hljóta að vera
hugsi yfir þessum augljósa vilja
meirihlutans í stjórninni. Spurn-
ing er hvort þessi tillaga er undan-
fari einkavæðingar og þá hækkun
á hita- og rafmagnsreikningum.“
Svandís Svavarsdóttir, fulltrúi
Vinstri grænna í stjórninni, tekur
í sama streng og undrast aðdrag-
andann að tillögunni og segir hana
ekki koma til greina af hálfu
Vinstri grænna. „Þetta mál er sett
af stað, að því er virðist af því að
við Dagur erum fjarstödd,“ sagði
Svandís. Dagur og Svandís voru
bæði stödd á stjórnarfundi Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga á
Ísafirði þegar fundurinn fór fram,
og sátu varamenn þeirra fundinn.
Starfsmenn og stjórnendur OR
hafa rætt um breytingar á rekstr-
arformi um margra ára skeið,
segir Guðmundur Þóroddsson.
Hann segir athugasemdir sem
borist hafa frá ESA, eftirlitsstofn-
un EFTA, gefa til kynna að það
geti verið vandkvæðum bundið að
breyta ekki rekstrarforminu á
næstunni. ESA hefur til skoðunar
kvörtun vegna ábyrgða ríkis og
sveitarfélaga og skattaundanþága
íslenskra orkufyrirtækja. „Í
athugasemdum ESA hefur komið
fram að löggjöf um opinberar
ábyrgðir standist ekki og sé í
andstöðu við samninginn um
Evrópska efnahagssvæðið. Auk
þess hefur það verið mat starfs-
manna Orkuveitunnar um margra
ára skeið að það sé hamlandi fyrir
rekstur fyrirtækisins að rekstrar-
formið sé með þeim hætti sem það
er nú,“ segir Guðmundur.
Eigendur OR eru Reykjavíkur-
borg með 93,5 prósenta hlut, Akra-
nesbær með rúmlega fimm pró-
sent, Borgarbyggð með 0,76
prósenta hlut og Borgarfjarðar-
sveit með 0,17. Allir eigendurnir
hafa neitunarvald um allar aðgerð-
ir félagsins og skiptir þá ekki máli
hversu stóran hlut hver eigandi á.
Verði tillagan samþykkt fer
málið inn á borð eigenda fyrirtæk-
isins og iðnaðarráðuneytisins.
Breyta þarf lögum til þess að til-
lagan verði að veruleika.
Vilja breyta OR í
hlutafélag sem fyrst
Stjórnendur Orkuveitu Reykjavíkur telja breytingar á rekstrarformi
óhjákvæmilegar, í ljósi athugasemda frá ESA. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar
í stjórn undrast skamman fyrirvara tillögunnar og telja nauðsynlegt að ræða
Fjórtán litháískir
starfsmenn fyrirtækisins Form-
aco, sem Vilhjálmur Birgisson,
formaður Verkalýðsfélags Akra-
ness, kærði fyrir að vera með
óskráða starfsmenn í vinnu í byrj-
un júní, eru ekki komnir með
íslenska kennitölu samkvæmt
upplýsingum frá Þjóðskrá. Starfs-
mennirnir voru ráðnir til Formaco
í gegnum litháíska undirverktak-
ann Statinu.
Sumir mennirnir hafa unnið
fyrir Formaco í meira en þrjú
hundruð daga kennitölulausir.
Samkvæmt íslenskum lögum
mega erlendir starfsmenn sem
koma hingað til lands ekki vera
hér á landi lengur en í þrjá mán-
uði, annars þarf að sækja um dval-
arleyfi fyrir þá. Starfsmennirnir
fjórtán unnu alltaf hér á landi
skemur en níutíu daga í senn á ell-
efu mánaða tímabili, fóru þá úr
landi og komu svo aftur til lands-
ins og störfuðu hjá Formaco.
Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar, sagði á mið-
vikudaginn að búið væri að skrá
starfsmennina hjá stofnuninni.
Ragnar Jóhannsson, eigandi Farm-
aco, segist aðspurður ekki vita
hversu margir af starfsmönnun-
um fjórtán vinni ennþá hjá fyrir-
tækinu. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins hættu fimm af
starfsmönnunum að vinna hjá
Formaco í júní.
Magnús M. Norðdahl, lögfræð-
ingur ASÍ, segir að starfsmenn
sem hafi unnið hjá fyrirtæki hér á
landi í þetta langan tíma án kenni-
tölu starfi með ólögmætum hætti í
landinu.
„Starfsemi slíks fyrirtækis er
ólögleg. Íslensk kennitala er for-
senda fyrir því að starfsmaðurinn
fáist skráður með þau leyfi og
réttindi sem hann þarf að vera
með lögum samkvæmt og til að
hægt sé að greiða honum laun,
skila af þeim sköttum og greiða
fyrir mennina í lífeyrissjóð,“ segir
Magnús.
Kæran á hendur Farmaco er
komin til meðferðar hjá lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu. Upp-
lýsingar um stöðu málsins hafa
ekki fengist.
Kennitölulausir í yfir 300 daga
Í fréttatilkynningu frá
Hvalaskoðunarsamtökum Íslands
kemur fram að hrefnum hefur
fækkað stórlega á þeim svæðum
sem hvalaskoðun er stunduð.
Jafnframt hefur þeim tilfellum
þar sem tekst að sýna hrefnur í
návígi fækkað. Í tilkynningunni
kemur einnig fram að samkvæmt
upplýsingum á vefsíðu Hafrann-
sóknarstofnunar hefur fjöldi dýra
verið skotinn innan hvalaskoðunar-
svæða þrátt fyrir að fyrrverandi
sjávarútvegsráðherra hafi gefið
loforð um að það yrði ekki gert.
Stjórn samtakanna áréttar að
hrefnuveiðar geti ekki fallið undir
þá skilgreiningu að teljast
sjálfbærar þar sem efnahagsleg
áhrif af hvalaskoðun vegi mun
þyngra en hvalveiðar.
Færri hrefnur á
skoðunarsvæði
Fullum stuðningi er
lýst við Jónmund Guðmarsson,
oddvita sjálfstæðismanna og
bæjarstjóra á
Seltjarnarnesi, í
yfirlýsingu frá
bæjarfulltrúum og
forystumönnum
Sjálfstæðis-
flokksins á
Seltjarnarnesi.
Þar kemur fram að
þeir harmi þá
aðför sem gerð
var að Jónmundi í
DV. Einnig er bent á að í síðustu
bæjarstjórnarkosningum hafi
listi sjálfstæðismanna hlotið 67,3
prósent greiddra atkvæða og hafi
meirihlutinn sýnt að hann njóti
mikils trausts bæjarbúa sem
hann mun áfram nýta til góðra
verka í þágu Seltirninga.
Fullur stuðning-
ur við Jónmund
Verktakafyrir-
tækið Arnarfell hefur fengið
frest fram yfir helgi til að skila
ráðningarsamningum sextíu
starfsmanna tveggja undirverk-
taka sinna sem vinna við
Kárahnjúkavirkjun, segir Oddur
Friðriksson, yfirtrúnaðarmaður
starfsmanna við Kárahnjúka.
Oddur segir að undirverktak-
arnir, GT-verktakar og Hunne-
beck, hafi átt að skila ráðningar-
samningunum um miðjan ágúst.
„Ef undirverktakarnir skila ekki
ráðningarsamningunum í næstu
viku þá munum við grípa til allra
úrræða sem við ráðum yfir til að
stöðva vinnu þessara fyrir-
tækja,“ segir Oddur og bætir því
við að verktakarnir verði þá
búnir að brjóta ákvæði í vinnu-
samningum.
Hafa ekki skil-
að samningum
Valur Steingríms-
son, dómari í utandeildinni
knattspyrnu, hefur kært mark-
manninn Davíð Smára Helenar-
son sem misþyrmdi honum eftir
leik Gym80 og Vatnaliljanna á
þriðjudag. Þetta kemur fram á
visir.is. Sjálfur segist Davíð vera
að reyna að hafa upp á Vali til að
biðjast fyrirgefningar. Hann
hefur þegar beðist afsökunar á
heimasíðum GYM80 og
Vatnaliljanna og sagt
stundarbrjálæði hafa gripið sig.
Valur hafði rekið Davíð út af
vegna fúkyrða. Eftir leikinn sló
Davíð Val í höfuðið áður en hann
sparkaði undan honum fótunum.
Þrjú rifbein brotnuðu í Vali.
Kærir brjálaða
markmanninn
Sautján ára þýskur
unglingur gekk í svefni út um
glugga á fjórðu hæð húss á
sunnudag. Þrátt fyrir að hafa fót-
og handleggsbrotnað eftir tíu
metra fall hélt hann áfram að
sofa þangað til lögregluþjónar
sem áttu leið hjá komu auga á
hann.
Að því er fram kemur á
fréttavef Der Spiegel var
drengurinn nýfluttur í íbúðina,
sem er í bænum Demmin, þegar
slysið varð. Hann var hvorki
undir áhrifum áfengis né
fíkniefna, en að sögn systur hans
gengur hann oft í svefni.
Féll tíu metra
en vaknaði ekki