Fréttablaðið - 31.08.2007, Qupperneq 8
Hversu mörg mannshvörf hafa
orðið á Íslandi frá árinu 1969?
Hver er nýr bæjarstjóri í
Mosfellsbæ?
Hver skoraði sigurkörfuna
í sigri Íslands gegn Georgíu í
körfubolta?
Rúmlega 60 hundar hafa
greinst með smitandi lifrarbólgu á
þessu ári, samkvæmt upplýsing-
um frá Landbúnaðarstofnun. Af
þeim hafa fimmtán drepist. Sjúk-
dómsgreining var staðfest með
krufningu í tíu tilvikum.
Stofnunin kallaði eftir upplýs-
ingum frá dýralæknum um
fjölda tilfella. Ekki hafa allir
dýralæknar svarað þannig að
fjöldinn getur verið meiri. Sjúk-
dómurinn virðist einskorðast við
suðvesturhorn landsins. Land-
búnaðarstofnun hefur óskað
eftir að dýralæknar tilkynni
áfram um öll tilfelli og sendi
vefjasýni til rannsóknar úr dauð-
um hundum. Stofnunin, ásamt
Tilraunastöðinni að Keldum,
vinnur að því að fá gott bóluefni
gegn sjúkdómnum.
Einkenni lifrarbólgunnar eru
hiti, slappleiki, lystarleysi, þorsti,
hornhimnubólga, rennsli úr augum
og nefi, og stundum eymsli í kvið
og uppköst. Einkennin eru oft
óljós og geta átt við marga aðra
sjúkdóma. Mikilvægt er að hunda-
eigendur hafi fljótt samband við
dýralækni ef hundar þeirra
veikjast. Dánartíðni er hæst meðal
ungra hunda. Smit berst með
þvagi, saur og slefu. Hundar sem
hafa sýkst geta smitað í meira en
sex mánuði eftir bata.
Um 60 hundar með
smitandi lifrarbólgu
smitast með þvagi, saur og slefu.
218 þúsund farþegar
flugu með áætlunarflugi Ice-
landair í júlí. Aldrei áður hafa
farþegar í einum mánuði verið
fleiri, en þeir voru 207 þúsund á
sama tíma í fyrra.
Í fréttatilkynningu frá
Icelandair er haft eftir Jóni Karli
Ólafssyni forstjóra að framboð
flugfélagsins hafi aukist í sumar.
Þá hafi nýjum áfangastöðum
verið bætt við. Vegna þessa hafi
farþegum fjölgað.
Farþegum sem koma til Íslands
og fara frá Íslandi fjölgar. Hins
vegar hefur farþegum sem lenda
hér á landi á ferð milli Bandaríkj-
anna og Evrópu fækkað.
Metfjöldi
farþega í júlí
RÝMUM FYRIR NÝJUM VÖRUM
NÚ ER TÆKIFÆRI TIL AÐ KAUPA ÞAÐ SEM ÞIG HEFUR ALLTAF LANGAÐ Í
Lumex
Skipholti 37
Sími 568 8388
www.lumex.is
U
ni
qu
eR
V
08
07
01
Uniqu
e
2.980
Kr.
glerklútur
Unique örtrefjamoppusettið
1 stk.
2 stk.
Uniqu
e
557Kr.
Dagleg þrif eru leikur einn
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
„Við í Miðbæjarfé-
laginu erum reiðubúin til við-
ræðna. Ég trúi því og treysti að
bæjaryfirvöld noti þetta tækifæri
sem hlýtur að vera fólgið í því að
fá svona undirskriftir og bregðist
við vilja íbúanna,“ segir Guð-
mundur Sverrisson, formaður
Miðbæjarfélagsins.
Guðmundur afhenti Ragnheiði
Hergeirsdóttur, bæjarstjóra í
Árborg, undirskriftalista með
1.100 nöfnum íbúa Árborgar þar
sem mótmælt er nýju miðbæjar-
skipulagi fyrir Selfoss í gær. Guð-
mundur segir mótmælin snúast
um tvennt. Annars vegar um
íbúðabyggð í miðbæjargarðinum
þar sem stendur til að reisa
blokkir með 280 íbúðum, en þar
vill félagið hafa opið grænt
svæði eins og á aðalskipulagi.
Hins vegar snúast mótmælin um
þéttleika fyrirhugaðrar byggðar
og hæð húsanna. „Ótvírætt kall-
ar þetta á gífurlegan fjölda bíla-
stæða. Við gerum líka athuga-
semdir við hæð húsanna en þau
eru allt að fimm hæðir þar sem
hæst er en við hefðum viljað sjá
þau einni hæð lægri. Í forgrunni
verður einnig sautján metra hár
turn sem okkur óar við.“
Guðmundur segir mótmælend-
urna vissulega styðja mikilvæga
uppbyggingu í miðbænum en ekki
með þessum hætti. Í sveitarfélag-
inu Árborg búa 7.600 manns.
Mótmæla miðbæjarskipulagi