Fréttablaðið - 31.08.2007, Síða 10
Hestakerrum hefur
fjölgað mikið síðustu tvö til þrjú
árin og stærri hestaflutningum
hefur fækkað mikið. Hestamenn
flytja nú gjarnan hesta sína sjálfir
og nota til þess kerrur sem geta
tekið allt upp í sjö hesta í einu.
Áætla má að í landinu séu nú
minnst hátt í fimm milljarðar
króna í hestakerrum og jeppum til
að draga þær.
Félagar í Landssambandi hesta-
mannafélaga eru tæplega ellefu
þúsund talsins. Miðað við að eitt
þúsund hestamenn eigi hestakerr-
ur og jeppa til að draga þær að
verðmæti samtals um fimm millj-
ónir króna á hvern, þá nemur bún-
aður til hestaflutninga samtals um
fimm milljörðum króna. Það þykir
hóflega áætlað.
Haraldur Þórarinsson, formað-
ur Landssambands hestamannafé-
laga, kannast við þróunina og segir
að talsvert algengt sé að hesta-
menn séu með kerrur sjálfir.
„Áður var þetta þannig að menn
nýttu sér hestaflutninga en nú
eiga slík fyrirtæki undir högg að
sækja. Þetta fór að breytast þegar
stóru amerísku „pickup-arnir“ og
„trailer-arnir“ aftan í þá komu til
landsins,“ segir hann.
Haraldur bendir á að verðgildi
hrossa hafi aukist og hestarnir
kosti kannski jafn mikið eða meira
en sjálf kerran. Menn vilji því
hugsa vel um hestana sína. „Menn
vilja ekki henda hestunum upp í
flutningabíla þar sem eru kannski
sex eða sjö hestar saman í hólfi.
Hestakerrurnar eru flestar mjög
fínar og hestarnir eru hólfaðir af
og fer vel um þá. En ef fimm hest-
ar eru saman í stíu þá geta þeir
stigið hver á annan og slasast,“
segir hann.
Kristján Kristjánsson, eigandi
Hestaflutninga Guðbrands Óla,
segir að fjölgun hestakerra sé ein
birtingarmynd þenslunnar. Hann
segist hafa verið með þrjá bíla og
síðan tvo bíla í hestaflutningum
þar til í sumar, þá hafi hann fækk-
að niður í einn bíl. Hann segist
vera orðinn nánast einn eftir í
hestaflutningunum fyrir utan fyr-
irtæki í Hornafirði sem nýlega
hafi byrjað starfsemi. Kristján
hefur áhyggjur af þróuninni og
bendir á að stór hluti sé á kaup-
leigu.
Sveinn Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Víkurvagna sem
framleiðir hestakerrur, segir að
hestamenn kaupi oft saman kerr-
ur og þriggja til fjögurra hesta
kerrur séu vinsælastar. Margir
séu líka farnir að leigja kerrur.
Hestamenn flytja
hrossin sín sjálfir
Hestamenn eru nánast hættir að nýta sér þjónustu flutningabíla til að flytja
hesta sína og kaupa sér í staðinn jeppa og hestakerru fyrir minnst fimm millj-
ónir króna í þessa flutninga. Flutningafyrirtækin draga saman seglin.
Angela Merkel, kanslari
Þýskalands, er nú í Japan í
framhaldi af heimsókn sinni til
Kína. Hún hitti Shinzo Abe
forsætisráðherra í Tókýó á
miðvikudag. Þau ræddu meðal
annars loftslagsmál og alþjóðleg-
ar aðgerðir gegn hryðjuverkum.
Áður en þau Merkel og Abe
settust að spjalli vöktu þau
athygli á því að enginn í fylgdar-
liði þeirra væri með bindi og tóku
þar með þátt í svokölluðu „cool
biz“-átaki japanskra stjórnvalda,
sem miðar að því að skrifstofu-
fólk og kaupsýslumenn klæðist
léttar á sumrin svo hægt sé að
draga úr notkun loftkælinga og
minnka þar með útblástur
gróðurhúsalofttegunda.
Loftslagsmál í
brennidepli
Robert Cone, einn
æðsti herforingi Bandaríkjahers
í Afganistan, lét svo ummælt í
gær að mjög ólíklegt væri að
hernaðarmáttur einn dygði til að
ráða niðurlögum skæruliða
talibana. Almennt reyndist ekki
unnt að binda enda á uppreisnir
nema með pólitískri lausn.
Cone hefur yfirumsjón með að
þjálfa og útbúa afganska
stjórnarherinn með það að
takmarki að hann verði fær um
að taka við hlutverki fjölþjóð-
lega herliðsins í landinu. Hann
sagði herlið heimamanna hafa
tekið góðum framförum, en vildi
ekki tjá sig um það hvenær hann
teldi það verða í stakk búið að
leysa alþjóðaherliðið alveg af
hólmi.
Hernaðarmátt-
ur einn dugar ei
GÓ‹A SKEMMTUN Á
LJÓSANÓTT
fiÁTTTAKANDI Í LJÓSANÓTT
Geysir Green Energy valdi höfu›stö›vum sínum sta› í
Reykjanesbæ og vi› viljum flakka bæjarbúum gó›ar vi›tökur.
fia› er flví me› mikilli ánægju sem vi› styrkjum Ljósanótt
og tökum virkan flátt í a› gera hátí›ina sem glæsilegasta.
Me›al fless sem vi› leggjum fram er kostun á svi›sbúna›i
Ljósanætur, hjóla- og kerrugeymsla og fleira sem líklegt er
til a› auka flægindi og ánægju gesta.
Vi› óskum íbúum Reykjanesbæjar til hamingju me› Ljósanótt.
ÓKEYPIS HJÓLA- OG KERRUGEYMSLA
Geysir Green Energy b‡›ur gestum Ljósanætur upp á
ókeypis hjóla- og kerrugeymslu í samvinnu vi› Knattspyrnu-
deild Keflavíkur. Geymslutjaldi› ver›ur opi› milli klukkan
12.00 og 18.00, laugardaginn 1. september. fiar geta
flátttakendur í hjólakeppninni geymt hjólin sín á öruggum
sta› og foreldrar skili› vi› sig kerrur e›a vagna.
ALfiJÓ‹LEGT ÍSLENSKT FYRIRTÆKI
Reynsla og flekking okkar Íslendinga á svi›i jar›varmaorku
er einstök. Geysir Green Energy n‡tir flessa flekkingu í
alfljó›legu samhengi og tekur virkan flátt í n‡tingu jar›varma
ví›s vegar um heiminn. Verkefni okkar er a› sameina
hagsmuni fjárfesta og flarfir neytenda fyrir hagkvæma orku
ásamt tillitssemi gagnvart umhverfinu og orkulindum jar›ar.
www.geysirgreenenergy.com