Fréttablaðið - 31.08.2007, Side 18
taekni@frettabladid.is
Þrátt fyrir að tekist hafi að
opna lásinn í iPhone þannig
að hægt sé að nota símann
í öðrum símkerfum en
bandarískum munu Íslend-
ingar eiga erfitt með að
nota hann hér á landi. Hann
hefur ekki CE-merkingu og
er því bannaður á Íslandi.
Þeir sem hafa í hyggju að
panta hann frá Bandaríkj-
unum eiga á hættu að hann
komist ekki lengra en í
tollinn.
Fréttir af afrekum sautján ára
bandarísks tölvusnillings bárust
fyrir nokkrum dögum, en honum
tókst fyrstum að taka lásinn af
símanum með því að opna hann
og beita lóðunarkúnstum. Nokkr-
um dögum síðar bárust síðan
fréttir af öðrum hóp hakkara sem
hafði tekist hið sama án þess að
opna sjálft tækið. Þeirra lausn
byggir eingöngu á hugbúnaði, og
er því mun einfaldari í fram-
kvæmd en að opna símann og lóða
saman víra.
Hugbúnaðurinn hefur ekki
verið gefinn út en tæknisíður á
borð við Engadget hafa sannreynt
búnaðinn og segja hann virka
afbragðsvel. Á síðu hópsins sem
gerði hugbúnaðinn, www.iphon-
esimfree.com, má sjá tilkynningu
um að hann verði seldur hverjum
sem vill kaupa á næstu sólar-
hringum.
Þó að mögulegt sé að nota
iPhone á Íslandi eftir að hann
hefur verið tekinn úr lás þýðir
það ekki að auðvelt sé að koma
honum til landsins. Öll fjarskipta-
tæki sem nota á í löndum Evrópu-
sambandsins, auk Íslands, Nor-
egs og Liechtensteins, þurfa að
hafa svokallaða CE-merkingu,
annars má varan ekki vera mark-
aðssett. Innflutningur einstakl-
inga telst markaðssetning í þessu
samhengi, og því má einstakling-
ur ekki flytja iPhone inn til lands-
ins þó hann sé aðeins til einka-
nota.
Þegar síminn verður formlega
settur á markað í Evrópu, sem
gerist í lok þessa árs eða í byrjun
þess næsta, má ganga út frá því
að öll skilyrði fyrir markaðssetn-
ingu verði uppfyllt, og löglegt
verði að flytja símann til lands-
ins. Þangað til verður hann stopp-
aður í tollinum.
Apple er í hag að geta samið við
símfyrirtæki um læsingar og
stjórnað því nákvæmlega hvenær
iPhone kemur út í hvaða heims-
álfu, og því hafa fréttirnar af því
að hægt sé að taka lásinn af sím-
anum ekki fallið í kramið hjá lög-
fræðingum fyrirtækisins. Engar
tilkynningar varðandi hugsanlega
lögsókn hafa þó enn borist frá
Apple eða AT&T.
Steingrímur Árnason, þróunar-
stjóri hjá Apple IMC, segist von-
ast til þess að fyrirtækið geti
hafið sölu á Evrópuútgáfu símans
sem fyrst á næsta ári. Að öðru
leyti gat hann ekki tjáð sig um til-
raunir hinna ýmsu hópa til að
taka símann eftirsótta úr lás.
iPhone tekinn úr lás
en bannaður á Íslandi
Lítilmagninn í mynddiskastríðinu