Fréttablaðið - 31.08.2007, Qupperneq 26
Búið er að skerða veiði-heimildir á þorski
hér við land um þriðjung.
Þessi skerðing er þess
valdandi að útvegsmenn
sem takmarkaðar þorsk-
veiðiheimildir áttu, eiga
þær enn takmarkaðri nú.
Þar sem meira verð fæst
fyrir hvert kg ef fiskurinn er stór
en ef hann er smár hefur verið
nokkuð algengt að á fiskimiðun-
um séu stærstu þorskarnir tíndir
úr aflanum og restinni af honum,
sem allt er dauður fiskur, síðan
hent í hafið aftur. Þetta er gert í
þeim tilgangi að hámarka verð-
mæti hvers tonns sem landað er.
Eftir ofangreinda
skerðingu má full-
víst telja að það muni
aukast að einungis
stærstu og verð-
mestu fiskarnir séu
hirtir og restinni
hent dauðum í hafið.
Einstaka útvegs-
bændur hafa tjáð
greinarhöfundi að
þeir hafi hreinlega
ekki efni á öðru en að
hámarka aflaverðmætið á þennan
hátt.
Þar sem ekki er hægt að stunda
veiðar á öðrum fisktegundum,
svo sem ýsu, ufsa og karfa, nema
fá þorsk sem meðafla, verða þeir
sem stunda veiðar á þessum teg-
undum og ekki eiga, eða hafa
leigt, aflaheimildir fyrir þorski,
að henda aftur dauðum í hafið
öllum þorski sem þeir fá sem
meðafla. Fiskveiðistjórnunar-
kerfi sem hefur í för með sér jafn
mikið virðingarleysi fyrir lífríki
sjávar og leiðir af sér jafn nötur-
lega umgengni sem staðreyndin
er með íslenska fiskveiðistjórn-
unarkerfið getur varla talist not-
hæft til framtíðar í óbreyttri
mynd.
Til að réttlæta notkun núgild-
andi fiskveiðistjórnunarkerfis án
nokkurra breytinga heyrast hinir
framtakslausu stjórnmálamenn
okkar jafnan segja „þrátt fyrir
allt þá finnst ekkert annað fisk-
veiðistjórnunarkerfi, sem er
betra en það sem við höfum“.
Greinarhöfund langar að vita til-
ganginn í að svipta sjómenn veiði-
leyfi komi þeir með meðafla að
landi, sem þeir hafa veitt af fisk-
tegundum, sem þeir ekki hafa
aflaheimildir fyrir.
Fiskurinn sem þessi meðafli
samanstendur af hefur verið
veiddur og aflífaður þegar við-
komandi sjómenn neyðast til að
henda honum aftur í hafið. Grein-
arhöfundur leggur til að hætt
verði að refsa fyrir að koma með
afla að landi sem ekki eru fisk-
veiðiheimildir fyrir. Þess í stað
verði tekið á móti þessum afla.
Sjómönnum greidd þóknun fyrir
að koma með hann að landi, en
andvirði hans renni að öðru leyti í
ríkissjóð.
Greinarhöfundur leggur til að
sjómenn ákveði sjálfir þegar þeir
koma að landi hversu stórum
hluta af lönduðum afla þeir ráð-
stafi á þennan hátt. Í lok hvers
fiskveiðiárs verður síðan tekið
saman hversu miklum afla var
landað fram hjá kvóta með þess-
um hætti og hann dreginn frá
aflaheimildum næsta árs á eftir,
áður en þeim er úthlutað.
Þessi breyting á fiskveiði-
stjórnunarkerfinu mun skila
miklum fjármunum í ríkissjóð.
Þannig fengi eigandi auðlindar-
innar, sem í orði og samkvæmt
lögum er íslenska þjóðin, umtals-
verðan arð. Margfalt meiri en það
sýndarmennsku-veiðigjald sem
fram að þessu var innheimt fyrir
afnotin af auðlindinni, en hefur
reyndar verið aflagt nú til mót-
vægis skerðingar þorskveiði-
heimilda.
Höfundur er verkfræðingur og
fyrrverandi vélstjóri til sjós.
Umgengni sjómanna á fiskimiðunum mun versna
Til Grétars Mar
Almennt eru sam-skipti Vestmanna-
eyjabæjar við þing-
menn Suðurlands
með miklum ágætum
og sambandið gott.
Grétar Mar þingmað-
ur Frjálslynda flokks-
ins er hinsvegar undantekning
frá þessari reglu. Ef til vill er
skýringu að finna í því að hinn
nýbakaði (og vafalaust efnilegi)
þingmaður virðist ítrekað mis-
skilja hlutverk sitt. Dæmi um
slíkt er þegar hann í nýlegum
skrifum sínum ætlast til að ég
sem starfsmaður sveitarfélags
beri ríkisstofnunum skilaboð
hans og dómsdagsspár. Hann
kvartar undan því að í skrifum
mínum sé vísað í gögn sem hann
hefur ekki kynnt sér og telur
það lýsa hroka að „taka ekki
ábendingum og koma þeim
áleiðis heldur gera lítið úr
þeim“.
Það er fullkomalega rétt að
ég gef minna en ekkert fyrir
margt af því sem Grétar Mar
hefur lagt til þessara mála enda
hefur Siglingastofnun Íslands
þegar hrakið nánast allar
dómsdagsspár hans. Nú hlýt ég
að velta því fyrir mér hvort
Grétar Mar hafi haft jafn mikið
samband við Siglingastofnun og
kjörna fulltrúa í Vestmannaeyj-
um vegna þessa máls, sem sagt
ekkert. Ef svo þá er hér um
algert lýðskrum að ræða.
Sérfræðingurinn Grétar Mar
velur í nýjustu skrifum sínum
að fjalla um sjálfumgleði og
skort á minnimáttarkennd
bæjarstjórans enda hann
sjálfsagt einnig sérfræðingur á
sviði sálfræði. Þar hefur hann
reyndar algerlega rétt fyrir sér.
Hinsvegar gerir Grétar Mar
ekki nokkra tilraun til að rengja
þá fullyrðingu að hafnaraðstaða
í Bakkafjöru myndi versna til
mikilla muna ef garðarnir yrðu
settir 300 metrum utar. Í
þessari fullyrðingu kemur enda
berlega í ljós að þessi kjörni
fulltrúi þekkir ekki til vandaðra
úttekta á aðstöðu í Bakkafjöru.
Þá fjallar hann ekkert um mun
á kenniöldu og brotöldu né
nokkuð annað sem máli skiptir.
Það er þó huggun harmi gegn
að hann fer með rétt mál þegar
hann kemur inn á skort minn á
minnimáttarkennd, og er ég þó
sálfræðingurinn og hann
sjómaðurinn.
Enn af kvarti þingmannsins. Í
nýjustu skrifum Grétars segir
hann að uppbygging hafnar í
Bakkafjöru sé „ekki hafin yfir
gagnrýni og málefnalega
umræðu“. Það er einmitt
mergurinn málsins og hvet ég
þingmanninn til að kynna sér
málið og nálgast það
út frá málefnalegri
umræðu en ekki
draugasögum og
dómsdagsspám.
Fjölmargir sjómenn
hér í Vestmannaeyj-
um hafa lagt sig fram
við að skoða gögn í
þessu máli og bæta
við þau út frá sinni
sérþekkingu sem
sannarlega er mikil.
Af því hefur Siglingastofnun
sannarlega haft mikið gagn.
Eitthvað virðist Grétar Mar enn
og aftur lesa okkur Eyjamenn
rangt þegar hann gerir tilraun
til að koma nýjum draugasög-
um af stað þegar hann segir:
„Ef litið er til framtíðar sýnist
mér að höfn í Bakkafjöru muni
geta minnkað umsvif úti í
Eyjum frá því sem nú er.
Löndun á fiski gæti færst í
Bakkafjöru og ýmis þjónusta,
sem nú fer fram í Eyjum, gæti
færst upp á land.“ Ef til vill er
það vegna sjálfumgleði minnar
eða einlægrar trúar minnar á
styrk og framtíð Vestmanna-
eyja að mér finnst þessi nýja
draugasaga Grétars nánast
brosleg. Ótti minn er ekki sá að
á Landeyjasandi miðjum spretti
upp sjávarþorp sem keppi við
öflugasta útgerðarbæ á Íslandi.
Sérstaklega verður þetta
kómískt þegar horft er til þess
að Grétar Mar hefur gengið
hvað lengst í því að telja
landsmönnum trú um að
sjávarbyggðir eigi sér ekki
viðreisnar von. Enda jafnvel
þótt ótti þessi væri raunhæfur
þá kemur þingmaðurinn þarna
enn og aftur upp um vanþekk-
ingu sína því höfnin í Bakka-
fjöru verður í meirihlutaeigu
okkar Eyjamanna og þróun
hennar því á okkar ábyrgð.
Þetta hefði maður haldið að
þingmenn vissu. Svo er það
eilítið undarlegt að hann segi að
höfnin sé algerlega vonlaus og
geti ekki einu sinni þjónað
sérhönnuðu öflugu skipi, en
geti svo keppt við bestu höfn á
landinu þegar kemur að
fiskibátum.
Ég hef áður bent á að
Vestmannaeyjar þurfa á
byltingu að halda í samgöngum.
Sigling á nýju skipi í Þorláks-
höfn er hænufet sem hvorki
breytir verulega atvinnulífi né
búsetuskilyrðum Vestmannaey-
inga. Á seinasta ári fækkaði
búsettum Eyjamönnum um eitt
hundrað og því miður eru líkur
fyrir því að enn og aftur
komum við til með að sjá
fækkun íbúa. Öllum sem sjá
vilja má ljóst vera að þetta
breytist ekki nema veruleg
byggðaþróun verði og hún verð-
ur einungis með byltingu í
samgöngum.
Höfundur er bæjarstjóri
Vestmannaeyja.
Þær deilur sem risið hafa upp um skipu-
lagsmál Kársnessins
snúast ekki um atorku-
saman bæjarstjóra og
afturhaldssama íbúa,
heldur um afturhalds-
samar skipulagsbreyt-
ingar og áhyggjufulla
íbúa. Og þeir hafa fulla ástæðu til
að vera á varðbergi. Í stað metn-
aðarfullrar uppbyggingar og end-
urbóta stendur til að gera nýja og
enn stærri höfn vestast á Kárs-
nesinu og nýtt og enn stærra hafn-
arsvæði.
Á mánudaginn kemur rennur út
frestur til að gera athugasemdir
við þær skipulagsbreytingar sem
Kópavogsbær er með í auglýsingu
fyrir nýtt hafnarsvæði. Verði þær
að veruleika bætast 54.000 m² við
þær byggingarheimildir sem fyrir
eru á atvinnuhúsnæði og hafnar-
svæðið stækkar í 27 ha. Um 8 til
12 metra háar vöruskemmur
munu rísa upp á hafnarsvæðinu á
næstu misserum og bæjaryfir-
völdum verður ekkert að vanbún-
aði við að hefja framkvæmdir á
nýrri og enn stærri höfn. Umferð-
in sem þessar skipu-
lagsbreytingar leiða
smám saman af sér
verður heldur ekkert
smáræði eða um 4.000
til 5.000 bílar á sólar-
hring og þar sem um
hafnarsvæði og nýja
höfn er að ræða verða
þetta að miklu leyti
atvinnu-, vöru- og
þungaflutningabílar.
Með hliðsjón af stað-
setningu hafnarinnar og hafnar-
svæðisins neyðist hver einasti
bíll, sama hversu stór eða lítill, til
að aka eftir nesinu endilöngu, á
óburðugum íbúða- eða safngötum
með tilheyrandi svifryks-, útblást-
urs- og hávaðamengun.
Það er okkur í íbúasamtökunum
Betri byggð á Kársnesi nánast
óskiljanlegt hvernig bæjaryfir-
völd geta talið sér trú um að með
þessum breytingum sé verið að
koma til móts við óskir bæjarbúa.
Hið sanna í málinu er að Kópa-
vogsbúar hafa með Kársnesinga í
broddi fylkingar ítrekað óskað
eftir nýju og betra skipulagi vest-
ast á nesinu, ÁN uppskipunar-
hafnar og ÁN hafnarsvæðis.
Áherslan hefur verið á metnaðar-
fullt skipulag sem stuðlar að fjöl-
breyttara mannlífi, auknum
möguleikum á útivist og annarri
tómstundaiðkan og fegurri bæjar-
brag. Okkur finnst það jafnframt
allrar athygli vert, að á meðan
nágrannasveitarfélög efna til hug-
myndasamkeppna eða lýsa eftir
áhugaverðum tillögum þegar til
stendur að byggja, breyta eða
bæta á þeirra heimaslóðum, sjá
bæjaryfirvöld í Kópavogi enga
ástæðu til annars en að taka upp
úreltar hugmyndir um stækkun á
athafnasvæði, sem bitur reynsla
sýnir að rekst illa í nábýlinu við
íbúa.
Við vonumst til að sem flestir
láti sig málið varða, ekki eingöngu
meðal íbúa á Kársnesinu heldur í
öllum Kópavogi, og þar sem þess-
ar skipulagsbreytingar ná til
svæðisskipulags höfuðborgar-
svæðisins geta nágrannasveitar-
félögin einnig látið að sér kveða.
Bæjarstjórinn í Kópavogi hefur
margsinnis heitið endurskoðun á
þessum breytingartillögum, að
því gefnu að andstaða við þær
komi í ljós. Þetta þýðir að endur-
skoðun fer ekki af stað, nema
athugasemdir berist Kópavogs-
bæ. Stöðvum þessar fyrirhyggju-
lausu framkvæmdir. Nánari upp-
lýsingar og leiðbeiningar eru á
karsnes.is.
Höfundur er formaður samtak-
anna Betri byggð á Kársnesi.
Kársnes fyrir íbúana
HEILDSÖLU LAGERSALA
Við rýmum til á lagernum fyrir nýjum vörum og seljum því eldri lager og sýnishorn á ótrúlegu verði.
Mikið úval af: skíðafatnaði, útivistarfatnaði, Soft Shell peysum, golffatnaði,
barnagöllum, barnaúlpum og mörgu fl.
Verðdæmi: verð áður verð nú
3. laga jakkar: 29.900,- 11.900,-
Skíðabuxur: 15.900,- 7.900,-
Soft Shell peysur 13.900,- 6.900,-
Barnaúlpur 7.900,- 3.900,-
Skíðaúlpur 18.900,- 8.900,-
Golfjakkar 16.900,- 7.900,-
Opnunartími:
Fimmtudagur 30. ágúst kl. 14-20
Föstudagur 31. ágúst kl. 14-20
Laugardagur 1. september kl. 10-18
Sunndagur 2. september kl. 11-18
Mánudagur 3. september kl. 14-20
Lagersala ZO-ON - Nýbýlavegi 18 - Kópavogi
FYRST
UR
KEMU
R
FYRST
UR
FÆR