Fréttablaðið - 31.08.2007, Page 27
Sigurjón Brink er landsfrægur söngvari en hitt
vita færri að hann er líka listamaður í matar-
gerð og gildir þá einu hvort um heimilismat eða
veislurétti er að ræða.
„Ég er alinn upp með annan fótinn í eldhúsinu því
faðir minn er matreiðslumaður og ég starfaði dálítið
með honum á skólaárunum. Það stóð eiginlega til að
ég færi í kokkinn,“ segir Sigurjón spurður um upp-
runa kunnáttunnar í matargerð. Tónlistin varð samt
ofan á og nú starfar Sigurjón mikið með Gunnari Óla-
syni, söngvara úr Skítamóral. Þeir koma fram í
afmælum og alls konar fögnuðum með kassagítar-
ana. „Við Gunni erum búnir að syngja saman í þrjú ár
og erum að leggja lokahönd á plötu,“ upplýsir Sigur-
jón. „Þetta er kassagítar/partíplata, bæði með frum-
sömdum lögum eftir okkur og þekktum lögum eftir
aðra.“
En aftur að eldhúsinu. „Eins og ég sagði áðan þá
kviknaði snemma áhugi hjá mér á að fikra mig áfram
í matargerð,“ segir Sigurjón og í ljós kemur að samn-
ingur er milli hans og konunnar um að hann sjái um
eldhúsið á heimilinu og hún um þvottahúsið. „Ég er
guðsfeginn að losna við þvottinn,“ segir hann bros-
andi og bætir við. „Samt er ég svo heppinn að konan
er snilldarkokkur líka. En ég sé um heimilismatinn
og hef líka gaman af að útbúa veislumat.“ Nú er hann
að undirbúa hátíðarkvöldverð og hefur innbakaðan
humar í forrétt. Rétturinn reynist bæði ljúffengur og
fljótlegur og uppskriftin að honum er á næstu síðu.
Stóð eiginlega
til að ég færi
í kokkinn
NÝJAR OG BETRI JÚMBÓ
HYRNUR Í NÆSTU VERSLUN