Fréttablaðið - 31.08.2007, Síða 36
BLS. 6 | sirkus | 31. ÁGÚST 2007
Ég held það sé nokkuð öruggt að segja að ég hafi lengi spáð í föt og tísku,“ segir Dröfn Ösp
Snorradóttir, viðskiptastjóri á auglýs-
ingastofunni Fíton. Dröfn, eða DD
Unit eins og hún er líka kölluð, er með
sérstakan og skemmtilegan smekk en
hún segist ekki leitast eftir að vera
öðruvísi. „Ég klæði mig ekki eins og
allir aðrir enda versla ég helst í búðum
sem selja frekar einstakar flíkur. Ég er
samt ekkert að reyna að vera öðruvísi
en ég er bara svona,“ segir hún og
bætir við að stíllinn hennar sé svolítið
bland í poka. „Það fer eiginlega bara
eftir því í hvaða skapi ég er hverju
sinni. Stundum
er ég í gömlum
siffon-pallíettu-
perlu-kjólum
með kisu eye-
liner og rauðan
varalit en á öðrum
tímum voðalega
„plain“. En mitt
„plain“ er kannski ekki „plain“ hjá
öðrum, ég þarf alltaf að vera með eitt-
hvað twist, ég gæti ekki gengið í öllu
svörtu heldur skreyti með einhverjum
lit, nælu eða set eitthvað í hárið.“
Dröfn verslar aðallega á netinu og
sjálf kallar hún sig eBay-drottning-
una. „Einnig kaupi ég mikið í verslun-
inni POP, KronKron, Nakta apanum
og í Trilogiu. Svo er alltaf gott að finna
eitthvað í Zöru og HM,“ segir hún og
bætir við að hún eyði einhverjum tíma
á kvöldin að plana klæðnað morgun-
dagsins. „Ég þarf að vera fín í vinn-
unni en ef þú átt nokkra lykilhluti þarf
þetta ekki að vera flókið. Ég get til
dæmis notað sama svarta kjólinn
aftur og aftur ef ég skipti öðru út. Ég
reyni að hafa stílinn sem náttúruleg-
astan fyrir sjálfa mig þótt margir reki
upp stór augu þegar þeir sjá mig,“
segir hún hlæjandi.
Dröfn heldur úti heimasíðunni dd-
unit.blogspot.com þar sem hún fjallar
um stjörnurnar í Hollywood á
skemmtilegan máta. Hún viðurkennir
fúslega þennan áhuga sinn á „sel-
ebunum“ og segir þann áhuga ekkert
öðruvísi en önnur áhugamál. „Ég
meina, sumir hafa áhuga á íþróttum,
pólitík, vísindum eða viðskiptum.
Þetta er bara enn einn hluti af lífinu.
Samt er þessi áhugi minn ekkert upp
á líf og dauða heldur bara skemmtun
og afþreying,“ segir hún og bætir við
að ótrúlegasta
fólk lesi síðuna
reglulega. Spurð
hvernig Íslending-
ar standi sig þegar
kemur að tísku
segir hún okkur
öll að koma til.
„Hér hefur ríkt
svolítil hjarðmenning þannig að ef
eitthvað er í tísku þá eru allir í því en
það er svolítið að breytast. Hver man
til dæmis ekki eftir Tark-buxunum og
Buffalo-skónum en sjálf get ég stolt
sagt að ég hafi staðið fyrir utan þá
tískubylgju,“ segir hún brosandi og
bætir við að fólk verði að finna sinn
stíl svo það verði ekki fórnarlamb tísk-
unnar. „Það er svo margt í gangi og því
verður að skoða það sem er í gangi og
velja það sem fer þínum líkamsvexti.
Það geta ekki allir farið í þröngar
gallabuxur og gyrt ofan í stígvél. Ég
get til dæmis ekki rokkað hvítar galla-
buxur fyrir mitt litla líf. Við verðum að
finna það sem fer okkur og þá þarf
enginn að vera tískufórnarlamb.“
indiana@frettabladid.is
DRÖFN ÖSP SNORRADÓTTIR VEKUR ÁVALLT ATHYGLI FYRIR SÉRSTAKAN FATASMEKK. DRÖFN, EÐA DD UNIT
EINS OG HÚN ER LÍKA KÖLLUÐ, SEGIR MIKILVÆGT AÐ VIÐ SKOÐUM ÞAÐ SEM ER Í GANGI HVERJU SINNI OG
VELJUM ÞAÐ SEM FER OKKAR VEXTI. HÚN SEGIR HJARÐMENNINGUNA SEM BETUR FER Á UNDANHALDI.
GALLABUXUR FYRIR
MITT LITLA LÍF
ROKKA EKKI HVÍTAR
DD UNIT „Þennan
Oleg Cassini-kjól
keypti ég á eBay.
Cassini var
Hollywood-
búningahönnuður
sem hannað mikið
af kjólum fyrir
Grace Kelly og
Jacky O. Svala
vinkona mín gaf
mér svo stígvélin.“
UPPÁHALDIÐ
„Vivienne
Westwood er í
miklu uppáhaldi.
Við erum að tala
mikið saman
sniðlega séð, ég
og hún,“ segir
Dröfn sem er
hér í fallegum
kjól frá
fatahönnuðinum.
VINNUFÖTIN
„Buxurnar eru úr
POP á Laugaveg-
inum en það er
margt skemmti-
legt að finna þar.
Wedge-hælarnir
eru frá Steve
Madden en bolinn
fékk ég á 300 kr.
á útsölu í Zöru.
Kímonó-peysan er
úr Liborius en
sólgleraugum úr
POP.“
EBAY-DROTTNING
„Þennan Vivienne
Westwood fékk ég á
útsölu í KronKron í
sumar. Skónir eru
frá Christian
Louboutin og ég
keypti þá á eBay.“
/MYND HÖRÐUR