Fréttablaðið - 31.08.2007, Side 46
31. ÁGÚST 2007 FÖSTUDAGUR8 fréttablaðið haustferðir
Plúsferðir bjóða spennandi nýjung
í borgarferðum í haust með fjög-
urra daga ferð til Riga, höfuðborg-
ar Lettlands, hinn 11. október.
Riga er rómantísk, falleg og
áhugaverð sem áfangastaður.
Kaupglaðir finna allt sem hugur-
inn girnist í verslunum borgar-
innar; næturlífið er spennandi
og nokkrir af bestu veitingastöð-
um Evrópu eru í Riga. Íbúar Riga
eru með eindæmum gestrisnir og
leggja allt undir til að gera ferðina
innihaldsríka og ánægjulega fyrir
gesti sína. Mikill uppgangur er
nú í Lettlandi og mælist þar hrað-
asti efnahagsvöxtur í Evrópu, sem
ekki fer framhjá þeim sem heim-
sækja höfuðborgina.
Menningarlíf er bæði marg-
brotið og lifandi og endurspeglast
það í fjölbreyttu framboði. Ómót-
stæðileg blanda borgarlífs, versl-
unar, menningarlífs og lágs vöru-
verðs laðar að sér himinlifandi
ferðamenn. Farareyrir endist
lengi í Riga því verðlag er miklum
mun lægra en það sem Íslending-
ar eiga að venjast heima.
Hjarta Riga geymir svo sögu
landsins, eins og títt er um elstu
bæjarhluta evrópskra borga.
Gamli bærinn er yndisfagur með
rólegu og þægilegu andrúmslofti
og hvarvetna má sjá minnisvarða,
en þess má geta að miðbær Riga
hefur verið færður á heimslista
UNESCO.
Rómantíska Riga
Götumynd frá Riga.
Að vakna í dögun, fara út
á dekk til að gera jóga og
pilates-æfingar, borða lífrænt
ræktaða ávexti og fara svo
inn að leggja sig áður en lagt
verður í dagsferð til Jamaíka
– hvern dreymir ekki um slíkt?
Kannski er til fólk sem myndi
yppta öxlum við slíku kostaboði,
en þó verða þeir sífellt fleiri sem
taka heilbrigðan og uppbyggileg-
an lífsstíl fram yfir þann sem ein-
kennist af sinnuleysi. Því getur
lýsing á fríi sem þessu hljómað
sem „algjör draumur“ í eyrum
þessa sívaxandi hóps. Hóps sem
kýs að koma endurnærður til
baka úr fríinu í stað þess að þurfa
að taka aukalega á því í rækt-
inni.
Sérhæfð þemu á skemmti-
ferðaskipum eru ekki nýbreytni.
Þetta hefur tíðkast um árabil í
þeim iðnaði en fyrir mörgum Ís-
lendingum er slíkt áður óþekkt-
ur valkostur. Frá Bandaríkjun-
um, sér í lagi Flórída, sigla dag-
lega ótal skemmtiferðaskip sem
flest halda til eyjanna í Karíba-
hafi og á meðan verið er að sigla
þarf fólk að finna sér eitthvað til
dundurs.
Fyrirtækið „A taste of health“
er meðal þeirra sem bjóða slík-
ar ferðir og er af mörgum talið
fremst meðal jafningja enda
hefur það boðið upp á sérhæfð
heilsunámskeið í um tuttugu ár.
Á vegum „A taste of health“ er
reglulega siglt til Karíbahafs frá
Miami og á meðan dvalið er um
borð er hægt að njóta fyrirlestra
og taka á heilsunni sem aldrei
fyrr. Meðal annars er boðið upp
á fjölbreytta einkakennslu, mat-
reiðslunámskeið, nálastungur,
margs konar nudd, jóga, chi qung,
hugleiðslu, pilates, leikfimi, lóða-
lyftingar og margt, margt fleira.
Kennarar og fyrirlesarar eru
valdir vel en sem dæmi um þá
má nefna dr. Benjamin Spock og
Deepak Chopra sem skrifaði Lög-
málin sjö um velgengni.
Vert er að benda á að það eru
margir fleiri sem sérhæfa sig í
heilsusiglingum og verðið getur
verið mismunandi en hægt er að
reikna með um 100-150.000 fyrir
vikusiglingu með mat og kennslu
í margs konar tímum.
Áhugasamir um slíkar ferðir
ættu að nota netið til að kynna
sér meira um efnið og slá þá
inn leitarorð á borð við „health
cruise“ eða „holistic cruise“ en
heimasíða A taste of health er
www.atasteofhealth.org
margret@frettabladid.is
Siglt á vit heilsunnar
Sérhæfðar skemmtisiglingar þar sem
hugað er að heilsunni með mataræði og
líkamsrækt verða æ vinsælli valkostur
í fríum.
LIFÐU LÍFINU LIFANDI
kallast lífsstíls- og heilsunám-
skeið sem standa til boða konum
sem vilja komast frá amstri dags-
ins og njóta heilbrigðs lífernis í
sólinni.
Námskeiðin fara fram í
Kissimee í Orlando. Innifalið
í námskeiðunum er gisting í
tveggja manna herbergjum í átta
herbergja lúxusvillu, persónuleg
þjálfun, fyrirlestrar um næringu,
líkamsþjálfun og sjálfstyrkingu og
morgun- og hádegisverður ásamt
tveimur millimáltíðum hvern dag.
Aðgengi er að einkasundlaug og
allri nauðsynlegri aðstöðu vegna
námskeiða auk þess sem kvenn-
anna bíður óvæntur glaðningur.
Næstu námskeið verða 6. til 13.
nóvember og 14. til 21. nóvem-
ber 2007.
Þjálfari og skipuleggjandi
ferðanna er Sigga Dóra, FIA einka-
þjálfari, Rope Yoga kennari, lífs-
stílsleiðbeinandi og hárgreiðslu-
meistari. Auk hennar verða
Sigríður Klingenberg spákona og
Ragnheiður Guðfinna með í för
og því von á töluverðri gleði.
Nánari upplýsingar www.
lifsstillogheilsa.net
Sigga Dóra skipuleggur heilsu-og lífs-
stílsnámskeið fyrir konur í Orlando.