Fréttablaðið - 31.08.2007, Side 48
31. ÁGÚST 2007 FÖSTUDAGUR10 fréttablaðið haustferðir
Hótel Aldan er fallegt hótel á
Seyðisfirði þar sem gott getur
verið að eyða helgi að haustlagi.
Hótel Aldan er í þremur söguleg-
um byggingum frá aldamótun-
um 1900 sem gerðar hafa verið
upp og lagaðar að starfseminni.
Húsin voru á sínum tíma flutt inn
frá Noregi og byggð upp á Seyðis-
firði og í þeim hafði verið marg-
vísleg starfsemi. Eitt húsanna var
til dæmis lengi verslun, annað
fyrst hótel og síðan banki og það
þriðja pósthús í einhvern tíma.
„Aðalmarkmið endurbótanna var
að finna þessum húsum hlutverk
aftur auk þess sem hótel vantaði í
bæinn,“ segir Dýri Jónsson, annar
hótelstjóra Öldunnar.
Áður en Dýri og Klas Poulsen,
sem rekur hótelið með honum,
ákváðu að fara út í hótelrekstur í
húsunum höfðu bæjarbúar, Sigur-
jón Sighvatsson, Seyðisfjarðar-
kaupstaður, Byggðastofnun og
Lífeyrissjóður Austurlands tekið
sig saman um að láta gera húsin
upp. „Við leigjum síðan húsin af
þessum aðilum en við vorum í
skóla í Kaupmannahöfn og áttum
að vinna nýsköpunarverkefni á
sviði viðskipta þegar við sáum
þetta tækifæri. Við fengum því
að flytja okkur yfir á þetta frá
verkefninu í Kaupmannahöfn af
því við vissum að það vantaði að
leggja línur með rekstur þó að
búið væri að leggja línurnar með
húsin. Þannig varð þetta að raun-
verulegu verkefni og við opnuð-
um hótelið meira að segja áður en
við fórum og vörðum lokaverk-
efnið okkar,“ segir Dýri.
Aldan var opnuð í júlí 2003 og
strax varð mikil aðsókn að hótel-
inu. „Síðan er þetta búið að vaxa og
við erum farin að leita að enn fleiri
sögulegum húsum svo við getum
bætt við herbergjum,“ segir Dýri
og hlær. „Við tökum á móti mörg-
um farþegum Norrænu og höfum
einbeitt okkur svolítið að því að
ná fjölskyldum á bílaleigubílum.
Núna er alltaf fullt yfir sumarið en
útlendingarnir eru mjög dugleg-
ir að bóka og þegar sólin skín og
veðrið er fallegt fyrir austan fyll-
ist líka allt af Íslendingum. Seyðis-
fjörður hefur alltaf verið með svo-
lítið alþjóðlegan blæ, hér var mikið
um að vera á síldarárunum og her-
námsárunum og svo kom Norræna
og tók við og hefur viðhaldið þess-
um alþjóðlega anda með gestum
alls staðar að.“
Dýri segir að Seyðisfjörður sé
alveg tilvalinn staður fyrir helg-
arferðir á haustin. „September er
yndislegur mánuður til að heim-
sækja Seyðisfjörð. Það er svo fal-
legt hérna og mikið menningar-
líf. Hér er hægt að fara í berja-
mó, sveppatínslu og veiði eða bara
njóta haustlitanna og veðursins.
Verðið á herbergjunum lækkar og
veitingastaðurinn er opinn þannig
að við getum alveg dekrað við fólk.
Í gamla kjarnanum í kringum hót-
elið eru mjög skemmtilegar versl-
anir, rétt hjá er góður golfvöllur,
sundlaug og íþróttaaðstaða og svo
er hægt að fara í ayurvediskt nudd
hjá indverskri nuddkonu hérna í
næsta húsi. Það er bara yndislegt
fyrir hjón að koma hingað í róm-
antíska ferð og hvíla sig og hafa
það gott.“ emilia@frettabladid.is
Gömul hús fá nýtt hlutverk
Ekkert mál er að komast í sjóstangveiði á Seyðisfirði.
Í næsta húsi er nuddkona sem býður
upp á ayurvediskt nudd.
Í húsnæði hótelsins er veitingastaður og í góðu veðri er hægt að sitja úti og hafa það gott.
Herbergin á Hótel Öldunni eru hugguleg.
PICASSO SAFNIÐ Í PARÍS
er nokkuð sem listunnandi á ferðalagi um borgina ætti ekki að missa
af. Safnið sýnir þróun Picasso sem
listamanns og er þar meðal annars
að finna teikningar og skemmtilega
skúlptúra sem sumir hverjir eru gerðir
úr hnakk af reiðhjóli. Að sjálfsögðu eru
þar fræg verk listamannsins, sem flest
eru kennd við kúbisma, þá stefnu sem
Picasso er þekktastur fyrir.
Safnið er í sögulegu húsi í fjórða
hverfinu í París. Það er hæfilega stórt
og tekur því aðeins brot úr degi að
skoða allt safnið. Á eftir er kjörið að setjast á eitt af ótal kaffihúsum í
grennd við safnið og gæða sér á frönsku kaffi og sætabrauði.
Vasasafnið er meðal þess sem
gaman er að skoða í Stokkhólms-
stað. Standa andspænis þessum
tígulega farkosti sem var svo
hörmulega illa hannaður að hann
sökk í sinni jómfrúarferð árið
1626 eftir tuttugu mínútna sigl-
ingu um sænska skerjagarðinn.
Gestir safnsins geta leikið sér
að því í tölvu að breyta byggingu
og hleðslu skipsins og athuga
hvernig gengur að halda því á
floti í stormi og stjórsjó.
Ef tilraunin mistekst má búast
við skilaboðum eins og þessum
frá tölvunni. „Þú ert ómögulegur
verkfræðingur og ert rekinn úr
þjónustu sænska konungsins.
Reyndu hjá þeim danska.“
Vasaskipið á flot
Skipið er fagurlega skreytt.
Bjargey Aðalsteinsdóttir
býður upp á vikunámskeið á
Tenerife dagana 26. september
til 3. október í samstarfi við
Sumarferðir.
Námskeiðið er fyrir konur
á aldrinum 25-63 ára og snýst
um nýjan og betri lífsstíl.
Alla vikuna verður skemmti-
leg leikfimi, fyrirlestrar, göng-
uferðir, nudd og margt fleira
sem byggir upp líkama og sál.
Gestur Bjargeyjar í ferðinni
er Sigríður Arnardóttir, Sírrý,
fjölmiðlakona.
Á Bylgjunni er léttur leikur
þar sem tvær heppnar konur
geta unnið þátttöku í nám-
skeiðinu. - sig
Námskeið á Tenerife
Bjargey Aðalsteinsdóttir íþróttafræð-
ingur heldur lífsstílsnámskeið fyrir
konur á Tenerife. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA