Fréttablaðið - 31.08.2007, Síða 52
BLS. 10 | sirkus | 31. ÁGÚST 2007
VERSLUNIN ER OG HÁRGREIÐSLUSTOFAN 101 HÁRHÖNNUN STÓÐU FYRIR TÍSKUSÝNINGU Á SKÓLA-
VÖRÐUSTÍGNUM Á LAUGARDAGINN. TÓTA DESIGN KYNNTI EINNIG NÝJA FATALÍNU SÍNA.
TÍSKUSÝNING Hildur Sif Kristborgardóttir og Þórhildur
Ýr stóðu fyrir sýningunni ásamt Áslaugu Harðardóttur,
sem vantar á myndina. Jóhannes, faðir Þórhildar, er
með þeim á myndinni.
TÖFF Fjöldi fólks mætti á
Skólavörðustíginn og fylgdist
með tískusýningunni.
SVART Svartur litur verður greinilega liturinn í haust.
REYND FYRIRSÆTA Anna Rakel Róbertsdóttir er alltaf
flott.
HAUSTTÍSKAN Tískuvöruverslunin ER og
hársnyrtistofan 101 Hárhönnun sýndu
nýjasta nýtt í hausttískunni síðasta
laugardag.
101 HÁRHÖNNUN Þær Katrín Ýr Óskarsdóttir, Inga Þyrí Þórðardóttir
og Hulda Jónsdóttir létu sig ekki vanta á Skólavörðustíginn.
FLOTTAR Margrét
Guðnadóttir og Arna
Barkardóttir voru á
meðal gesta. MY
N
D
IR
/H
R
Ö
N
N
V ið höfum staðið okkur vel og því hefur kvennaboltinn fengið aukna athygli. Það
má samt alltaf gera meira og betur,“ segir
Hólmfríður Magnúsdóttir knattspyrnukona,
sem hefur slegið í gegn með liði KR í sumar.
Fríða, eins og hún er oftast kölluð, er tiltölu-
lega nýbúin að jafna sig af slæmum meiðslum
sem hún varð fyrir þegar hún lenti í samstuði í
leik gegn Stjörnunni um miðjan mars. Við
höggið fór viðbeinið úr lið og stakkst í gegnum
bringuna og inn í brjóstholið. Fríða var send
heim eftir skoðun hjá lækni en vissi sjálf sem
var að ekki væri allt með felldu. „Næsta morg-
un fór ég svo til annars læknis sem sá strax
hvað var að. Ég var mjög heppin, þetta hefði
getað farið enn verr,“ segir Fríða, sem var
óvinnufær í tvo mánuði á eftir og varð að
bryðja allt upp í 32 verkjatöflur á dag. „Í júní
var ég svo valin í landsliðið án þess að hafa
spilað neitt með KR og mér hefur gengið ótrú-
lega vel síðan,“ segir Fríða, sem ólst upp á
sveitabæ í Landeyjum. „Ég spilaði fótbolta í
sveitinni með strákunum og æfði frjálsar
íþróttir í mörg ár. Þegar ég varð að velja á milli
kom aldrei neitt annað til greina en að halda
áfram í boltanum. Fótboltinn er lífsstíll sem
tekur mjög mikinn tíma en það er skemmtileg-
ur félagsskapur í kringum þetta og margar af
mínum vinkonum eru í fótboltanum,“ segir
Fríða en bætir við að hún gefi sér þó tíma til að
kíkja á lífið þegar færi gefst. Aðspurð segir hún
draum sinn að komast út í atvinnumennsku en
Fríða hefur þegar reynt fyrir sér með einu topp-
liðinu í Danmörku. „Ég þurfti að ákveða mig á
tveimur dögum og vissi ekkert út í hvað ég var
að fara. Þetta hafði sína kosti og galla, maður
er vanur að vinna hér heima en þarna gerði ég
ekkert annað en að æfa og mér var farið að
leiðast eftir tvær vikur. Ef ég fer aftur út mun ég
skoða liðið betur en mig langar mest til Sví-
þjóðar. Það er um að gera að leika sér aðeins á
meðan maður er barnlaus.“
indiana@frettabladid.is
Fótboltinn er lífsstíll
HÓLMFRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR
„Það er um að gera að leika sér aðeins á meðan
maður er barnlaus.”
MYND/ANTON
HAUSTTÍSKAN Á GÖTUNNI
TÓTA DESIGN Um fyrstu fatalínu
Tótu er að ræða en pottþétt ekki þá
síðustu.