Fréttablaðið - 31.08.2007, Síða 54
BLS. 12 | sirkus | 31. ÁGÚST 2007
Við héldum öll að við myndum fá upp í kok af Brangelinu-klíkunni,
enda líður varla sá dagur að við fáum
ekki að sjá stórfjölskylduna miklu á
ferð og flugi um allan heim. En það
gerist ekki, sérstaklega ekki af Brad og
umhyggju hans til barna sinna.
Þessar myndir voru teknar af Pittar-
anum og krökkunum án Shiloh í New
York á dögunum. Og á meðan Angel-
ina er í Írak á vegum Sameinuðu þjóð-
anna var Brad í pabbahlutverkinu.
Maðurinn er náttúrlega sá alflottasti
og börnin gera hann enn fallegri. Brad
Pitt er myndarlegasti pabbi í heimi.
Brad er langfalleg-
asti faðir í heimi
Gott að vera hjá pabba
Zahara Jolie-Pitt heldur fast um
pabba sinn.
Á ferð og flugi
Pax Thien virðist vera að aðlagast vel,
sérstaklega í fangi föður síns.
Aðeins að spjalla
Zahara hefur eitthvað mikilvægt að
segja við elsta bróður sinn, Maddox.
Við fáum ekki nóg
Af Brad Pitt og Zahöru. Hún er bara
aðeins of sæt.
Góður dagur
Eins og sést á myndinni var þetta góður
dagur hjá Brad og börnunum.
Mamma í írak
Á meðan börnin léku sér í Central
Park var Angelina Jolie á fullu í Írak.
Þessar myndir eru ótrúlegar.
Marilyn Manson er heimskasti maður í heimi að vilja ekki
fyrrverandi konu sína, Ditu Von
Teese. Í stað hennar hefur hann
fundið sálufélagann sinn í hinni 19
ára gömlu leikkonu Rachel Evan
Wood.
Það bar ekki mikið á Ditu á meðan
hún var gift kappanum, en á síðustu
mánuðum hefur hún mikið látið
koma mikið til sín og er eitt alveg á
hreinu: Marilyn Manson var ekki að
gera henni neitt gott.
Dita var stödd á lítilli tónlistarhátíð
á Ítalíu er þessar myndir voru teknar.
Það er guðdómlegt að sjá hana brosa,
hvað þá dansa. Þessar myndir eru
stórkostlegar.
Dansandi Dita
Gyðja
Dita Von Teese er ein flottasta konan í
Hollywood.
Eins og í gamalli bíómynd
Dita og ítalskur söngvari taka nokkur
spor á tónlistarhátíð sem fór fram á
Ítalíu á dögunum.
Það hljómar kannski ekki svo vel að blanda saman bjór og ís en
ótrúlegt nokk þá leggst þessi blanda
afar vel í bragðlaukana eins og
framleiðsla Ísgerðarinnar í Holtsseli í
Eyjafirði sannar. Ísgerðin, sem
stofnuð var í fyrra, hefur verið
óhrædd við að fara ótroðnar slóðir í
framleiðslunni og hefur í sumar
meðal annars framleitt bjórís.
Norðlendingarnir eru svo sem ekki
að finna upp hjólið í þessum efnum
þar sem Belgar hafa lengi framleitt
slíkan ís. Holtssel fer hins vegar ekki
eftir uppskrift Belganna heldur notar
íslenskan bjór úr heimabyggð í ísinn,
Kalda frá Bruggsmiðjunni á Árskógs-
sandi. Að sögn Guðrúnar Egilsdóttur í
Holtsseli hefur bjórísinn fallið vel í
kramið hjá þeim sem hann hafa próf-
að en þó segir hún að skyrís með
íslenskum bláberjum hafi ekki síður
verið vinsæll í sumar.
Bjórísinn, sem er brúngullinn að lit,
hefur mátt nálgast á býlinu sjálfu, á
kaffihúsinu Vogafjósi í Mývatnssveit
og á veitingahúsinu Friðriki V á Akur-
eyri.
„Við bjóðum upp á fimm rétta
óvissumatseðil þar sem leitast er við
að bjóða upp á það sem við erum
stoltust af hverju sinni úr hráefni
héðan af svæðinu. Í því samhengi
hefur okkur fundist einkar flott að
geta boðið upp á sveitaís úr fyrstu
míníísgerð landsins, ís sem búinn er
til úr bjór sem er bruggaður í fyrstu
míníbruggverksmiðju landsins,
hvorutveggja fyrirtæki sem eru hér í
Eyjafirði,“ segir Friðrik Valur Karls-
son, eigandi Friðriks V, sem ber ísinn
fram með slettu af Kalda út á. „Ekki
það að það þurfi þar sem það er mjög
gott bjórbragðið af ísnum,“ segir Frið-
rik en bætir við að að það geri mikið
fyrir steminguna að hella dass af bjór
út á ísinn. „Það er skemmtilegt bragð
af ísnum sem vakið hefur mikla
athygli.“ - snæ
Íslenskur bjórís slær í gegn
Segway er nafnið á afar sérstök-um fararskjóta sem undanfarið
hefur slegið rækilega í gegn í
Bandaríkjunum, ekki síst í
Kaliforníu. Farartæki þetta hefur
einnig verið að hasla sér völl í
Evrópu og ef að líkum lætur verður
þess ekki langt að bíða að Íslend-
ingar falli fyrir því, eins nýjunga-
gjörn og tæknisinnuð sem þjóðin
er.
Nokkrir Íslendingar hafa nú þegar
fallið fyrir Segway-fararskjótanum.
Þeirra á meðal er leikarinn Gunnar
Hansson sem sást þeysast um á
slíku tæki í gervi lífskúnstnersins
Frímanns Gunnarssonar í Reykja-
víkurmaraþoni Glitnis. Tækið spar-
aði Frímanni heldur betur sporin í
hlaupinu og vakti sannarlega bæði
undrun og eftirtekt annarra hlaup-
ara, enda ekki bara skemmtilegt og
þægilegt í notkun heldur einnig
algjörlega hljóðlaust og umhverfis-
vænt.
Segway-hjólið er rafknúið tvíhjól
sem er ólíkt öllum öðrum farartækj-
um sem fyrir eru á markaðinum.
Menn svífa í raun um í lóðréttri
stöðu rétt fyrir ofan jörðu með góða
sýn yfir það sem fram- undan er
og þeir sem
hafa prófað
tækið segja að
tilfinningin sé ekki
ólík því að fljúga
um á töfrateppi.
Engar bremsur
eða inngjöf eru á
hjólinu og stýra
menn því eingöngu með eigin lík-
amsþyngd. Þannig halla menn sér
fram til þess að komast áfram og
aftur til þess að stoppa. Hjólið, sem
gengur fyrir rafhlöðum, kemst á allt
að 20 km á klukkustund og undir
venjulegum kringumstæðum má
reikna með því að menn komist 39
km á hleðslunni. Hjólið kostar þó
sitt, eða í kringum hálfa milljón.
Það er fyrirtækið Léttitækni sem
er umboðsaðili hjólsins á Íslandi.
Frekari upplýsingar um hjólið má
finna á heimasíðunni www.lettita-
ekni.is/segway.
umhverfisvænn ferðamáti
Þeir sem prófað hafa Segway segja að
farartækið minni á töfrateppi. Engar
bremsur eru á hjólinu né inngjöf og
stýra menn því einungis með eigin
líkamsþyngd.
Svalandi eftirréttur
Ís og bjór er eitt það mest svalandi sem hægt er að hugsa sér og nú er hægt að slá
tvær flugur í einu höggi með því að fá sér bjórís á veitingastaðnum Friðriki V á
Akureyri. Þar er ísinn borinn fram með slettu af norðlenska bjórnum Kalda. MYND/HJALTI
Segway – næsta
æði á Íslandi
Gott atvinnutæki
Lögreglumenn víða í Evrópu nota
Segway til að sinna skyldustörfum
sínum en tækið er til í nokkrum
útgáfum. Þetta hjól er í torfæruút-
gáfu og er með stærri hjólum sem
henta vel á vegum utan borgar-
marka.