Fréttablaðið - 31.08.2007, Side 56
BLS. 14 | sirkus | 31. ÁGÚST 2007
Ég og maðurinn minn ákváðum að láta gott af okkur leiða og styrkja gott málefni sem er Blátt
áfram,“ segir Unnur Pálmarsdóttir,
framkvæmdastjóri Fusion, en Unnur
stendur fyrir heilsuhátíðinni Fusion
Fitness Festival í fimmta skiptið en á
hátíðinni verður hún með góðgerðar-
þolfimitíma til styrktar málefninu.
„Páll Óskar verður plötusnúður í
öðrum salnum og svo verður risa
spinningtími í hinum. Fólk greiðir sig
inn í þolfimitímann með frjálsum
framlögum og við ætlum að veita góð-
gerðarsamtökunum Blátt áfram upp-
hæðina, sama hversu mikið safnast,“
segir Unnur og bætir við að auk góð-
gerðartímans verði mikið um að vera
á heilsuhátíðinni sem fer fram í World
Class í Laugum 14.-16. september. „Ég
mun fá sex bestu kennara í Evrópu á
sviði líkamsræktar og heilsu auk þess
sem við verðum með okkar fremstu
þolfimi- og danskennara frá Íslandi. Í
boði verður meðal annars Workshop
með fitball líkamsræktarboltum,
hreyfilist með Árna Pétri Guðjónssyni
leikara, sem var ofsalega vinsælt í
fyrra, Army Training sem Konni og
Nonni stjórna í World Class ásamt
nýjungum í líkamsræktarheiminum í
dag. Nú er mikil samvinna á milli
þolfiminnar og dansins, þar sem dans-
inn er ávallt að verða vinsælli og því er
gaman að bjóða upp á fjölbreytta dag-
skrá á heilsuhátíðinni í ár á heims-
mælikvarða og því ættu allir að finna
eitthvað við sitt hæfi.“ Hægt er að finna
allar nánari upplýsingar um Fusion
Fitness Festival á heimasíðunni
fusion.is. Skráning fer fram í World
Class Laugum en einnig er hægt að
senda póst á unnur@fusion.is. „Þessi
hátíð er fyrir alla fjölskylduna og svo
er einnig upplagt fyrir fyrirtæki að
vera með hópefli og nýta heilsuhátíð-
ina til að koma og gera sér glaðan dag,“
segir Unnur. indiana@frettabladid.is
UNNUR PÁLMARSDÓTTIR HELDUR FUSION FITNESS FESTIVAL Í FIMMTA SKIPTIÐ.
Sigríður Snævarr er ás. Í spilum er ásinn annaðhvort hæstur eða lægst-ur en yfirleitt er hann aflmestur,“ segir Sigríður Klingenberg um fyrr-um sendiherrafrúna. „Ásinn er gríðarlega ábyrgðarmikill, byrjar að
skipta á sjálfum sér þegar hann er eins árs. Ásinn hefur alltaf réttu bækurn-
ar með sér í skólann og hugsar vel um sína, sérstaklega foreldra sína þegar
þeir þurfa á því að halda. Þar af leiðandi ráðlegg ég flestum að eignast alla-
vega eitt lítið ásabarn á sitt heimili. Þó að ásinn virki opinn og bjartur þá
hleypir hann oft hægt inn í vináttuna en ef maður er svo gífurlega heppinn
að eignast vináttu, til dæmis Sigríðar, þá verður maður húkkt ævilangt. Hún
berst fyrir sína eins og ljón og hefði verið góð hjúkrunarkona sem vinnur við
áfallahjálp þar sem hún fær sérstakan styrk þegar álagið dynur yfir. Hún og
kærastinn, Kjartan, eru gífurlega tengd úr fyrri lífum og þar af leiðandi hefur
hjónaband þeirra verið extra skemmtilegt og gott, þau voru búin að æfa sig
að minnsta kosti einu sinni. Sigríður byrjaði í
nýju tímabili í fyrra og er núna inni í í tíu ára
tímabili þar sem allt aðrir þættir eru miðju-
punkturinn, sem sagt litla kraftaverkabarnið.
Sigríður hefur þessa orku að vera fyrirmynd í
öllu sem hún gerir, hvort sem það er að baka
brauð, elska karlinn sinn eða
,vera móðir. Ef eitthvert orku-
leysi angrar Sigríði þessa
dagana skal hún passa að
það sé ekki þessi sífelldi
gestagangur og njóta ein-
verunnar með góðri tónlist.“
SPURNINGAKEPPNI sirkuss
Helgi Seljan
1. Hildur.
2. Jordan.
3. McLaren.
4. Pink Floyd.
5. Magnús Geir Þórðarson.
6. Jessica Alba.
Ragnar Santos
1. Hildur.
2. Naomi Campell.
3. Peugeot.
4. The Wall.
5. Magnús Geir Þórðarson.
Helgi heldur sigurgöngu sinni áfram. Hér sigrar hann með sex stigum gegn þremur. Ragnar skorar á fréttakonuna
Rakel Þorbergsdóttur. Fylgist með í næstu viku.
1. Hvað heitir persónan sem Ragn-
hildur Steinunn leikur í Astrópíu?
2. Undir hvaða nafni þekkist fyrirsæt-
an Katie Price betur?
3. Með hvaða Formúlu 1-liði ekur
ökuþórinn Lewis Hamilton?
4. Hvað heitir fyrsta plata Pink Floyd
og verður endurútgefin í næsta
mánuði?
5. Hver er leikhússtjóri Leikfélags
Akureyrar?
6. Hver var nýverið kosin kynþokka-
fyllsta kona heims á lífi af FHM
tímaritinu?
7. Hvað eru James Bond-myndirnar
margar?
8. Í hvaða borg gerist sápuóperan
The Guiding Light?
9. Hver er krónprins Noregs?
10. Hver leikur aðalhlutverkið í þátta-
röðinni Men in Trees?
6 RÉTT SVÖR
6. Angelina Jolie.
7. 23.
8. Los Angeles.
9. Hákon.
10. Pass.
3 RÉTT SVÖR
HELGI SELJAN HEFUR REYNST ERFIÐUR VIÐUREIGNAR EN HÉR MÆTIR HANN
RAGNARI SANTOS KVIKMYNDAGERÐARMANNI.
1.
Hi
ld
ur
. 2
. J
or
da
n.
3
. M
cL
ar
en
. 4
. T
he
Pi
pe
r a
t t
he
G
at
es
of
Da
w
n.
5
. M
ag
nú
s
Ge
ir
Þó
rð
ar
so
n.
6
. J
es
si
ca
A
lb
a.
7
.
21
. 8
. S
pr
in
gf
ie
ld
. 9
. H
ák
on
. 1
0.
A
nn
e
Ha
ch
e.
7. 12.
8. Los Angeles.
9. Hákon.
10. Veit ekki.
Sigríður Klingenberg spáir í Sirkus
www.klingenberg.is
Fyrirmynd í öllu sem hún
tekur sér fyrir hendur
Þolfimitímar
til styrktar
Blátt áfram
UNNUR
PÁLMARSDÓTTIR
„Þessi hátíð er fyrir
alla fjölskylduna og
svo er einnig
upplagt fyrir
fyrirtæki að vera
með hópefli og
nýta heilsuhátíðina
til að koma og
gera sér glaðan
dag,“ segir Unnur.
/MYND HÖRÐUR
SIGRÍÐUR SNÆVARR
„Hún og kærastinn,
Kjartan, eru gífurlega
tengd úr fyrri lífum og
þar af leiðandi hefur
hjónaband þeirra verið
extra skemmtilegt og
gott,“ segir Sigríður
um nöfnu sína.
„Haustið er eins og nýyddaðir blýantar,
allir tilbúnir að byrja á nýju verki.“
Bryndís Ísold Hlöðversdóttir samfylking-
arkona.
„Mér finnst fínt að fá smá rigningu og
kulda. Ég verð allavega ekkert
þunglyndur. Maður verður alltaf fyrir
vonbrigðum með sumarið en haustið er
alltaf eins.“
Davíð Smári Harðarson söngvari.
„Haustið leggst ekki nógu vel í mig. Ég
var að koma úr hitanum í Barcelóna og
hefði helst viljað vera lengur úti.“
Brynja Valdimarsdóttir söngkona.
Hvernig leggst
haustið í þig?
Útgáfufélag 365 prentmiðlar
Ritstjórn Kristján Hjálmarsson
kristjan@frettabladid.is
Þóra Karitas
Snæfríður Ingadóttir
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@frettabladid.is
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir
kristina@frettabladid.is
Forsíðumynd Hörður Sveinsson
Sirkusblaðið Skaftahlíð 24
105 Reykjavík, sími 512 5000
Sölustjóri Bergur Hjaltested
512 5466 bergurh@365.is