Fréttablaðið - 31.08.2007, Side 73
Á morgun opna þrír myndlistarmenn sýningu í
SAFNI á Laugavegi 37. Þeir eru Sigurður
Guðjónsson, Huginn Þór Arason og Tony Trehy.
Í SAFNI er samtímamyndlist til sýnis á
þremur hæðum. Aðgangur er ókeypis en
Reykjavíkurborg hefur til þessa veitt Pétri
Arasyni og Rögnu Róbertsdóttur, sem eiga
einstakt safn nútímaverka, styrk til reksturs
þess. Þar hefur um langt árabil verið rekin
metnaðarfull sýningarstefna sem vakið hefur
athygli langt út fyrir landsteinana.
Sigurður Guðjónsson er fæddur 1975 og býr
og starfar í Reykjavík. Hann fæst að mestu við
gerð vídeóverka, ljósmynda og innsetninga í
myndlist sinni. Í Safni sýnir Sigurður tvö
vídeóverk sem ekki hafa verið sýnd á Íslandi.
Að auki sýnir hann ljósmyndaverk sem eru
stillur úr fyrri verkum og verkum í vinnslu.
Vefur Sigurðar er www.sigurdurgudjonsson.net.
Huginn Þór Arason er fæddur 1976 og býr og
starfar í Reykjavík.Hann fæst við afar fjöl-
breytta efnisnotkun og ýmsa miðla. Sem dæmi
hefur hann gert gjörninga, málverk, teikningar
og skúlptúra t.d. úr pitsum, barnaleir og bómull.
Í verkum sínum hefur Huginn skapað eigin
heim, þar sem fléttast saman barnsleg form,
sem líkjast hlutum úr daglega lífinu, skærir litir
og kjánalegir gjörningar. Á annarri og þriðju
hæð Safns sýnir Huginn Þór leirverk, lyktar-
verk, ljósmyndateikningar, og endurunnið
málverk.
Þriðji maðurinn í Safni er Tony Trehy, fæddur
1960. Tony er enskt ljóðskáld og sýningarstjóri,
búsettur í Manchester. Hann hefur um árabil
fengist við að gera ljóðaskrif sín að myndrænni
upplifun fyrir áhorfendur/lesendur. Eftir
heimsókn sína til Reykjavíkur árið 2006 hóf
Tony að vinna að textaverkinu Reykjavík, þar
sem hann notar, að eigin sögn, tungumál
stærðfræðinnar og margvíddar rúmfræði, svo
og jarðfræði, heimspeki og myndlist í kerfi um
rými og táknfræði borgarinnar. Í Safni kynnir
Tony Trehy bókverkið Reykjavík, sem er
handinnbundið og prentað í litlu upplagi. Bókin
verður fáanleg í Safni. Vefslóðir með upplýsing-
um um hann eru: www.tonytrehy.com og www.
sleeper1.com.
Sýningarnar standa til 7. október. Opið er frá
14-18 miðvikudaga til föstudags, en frá 14-17
laugardag og sunnudag.
Þríeyki sýnir í Safni
Það er frítt föruneyti sem fylgir
þeim Sigurði Flosasyni og
Aðalsteini Ásberg ljóðasmið í
kvöld. Sigurður býður upp á glæný
lög við texta Aðalsteins Ásbergs og
eru flytjendur þau Egill Ólafsson,
Ragnheiður Gröndal, Kjartan
Valdemarsson og Matthías
Hemstock á slagverk. Eru þetta
lög af disknum Bláum skuggum
sem nú er kominn út.
Til að bæta gráu ofan á svart eða
bláum á bláan verða einnig flutt
lög af glænýrri plötu sem nefnist
„Bláir skuggar“. Þar er teygt á
blúsforminu svo lög sem hljóma
eins og blús verða eitthvað allt
annað. Sem sagt tilraunastarfsemi
með kunnar uppskriftir. Lifandi,
skemmtilegt, blúsað og fjörugt
segja menn að þetta verði enda
engir aukvisar á ferð: Jón Páll
Bjarnason á gítar, Pétur Östlund á
trommur og Þórir Baldursson á
Hammond-orgel. Þetta gerist í
Iðnó í kvöld kl. 20 og eru tónleik-
arnir hluti af dagskrá Jazzhátíðar í
Reykjavík.
Bláir söngvar
í kvöld
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
2 fyrir 1 á Gretti!
Vátryggingafélag Íslands Ármúla 3 108 Reykjavík Sími 560 5000 www.vis.is
Söngleikurinn fjallar um hinn lánlausa Gretti. Hann lendir í fangelsi eftir misheppnaðan glæp og þar hellir hann sér af
krafti í lyftingar og vaxtarrækt. Eftir fangelsisvistina nær hann skjótum frama fyrir hlutverk í sjónvarpsseríu byggðri á
Íslendingasögunni um Gretti sterka. Frægðin færir honum peninga og ástir kvenna í ríkum mæli og framtíðin virðist
blasa við björt og fögur.
Viðskiptavinir geta nálgast tilboðsmiða á þjónustuskrifstofum VÍS.
Tryggið ykkur miða í tíma á þessa frábæru fjölskylduskemmtun.
VÍS býður viðskiptavinum sínum tvo miða á verði eins
á söngleikinn Gretti í Borgarleikhúsinu í september.
Innritun og upplýsingar
í síma 561 5620 frá kl. 12-17.
Kennsla hefst
10. september
www.schballett.is
GERÐUBERG
www.gerduberg.is
Ég bið að heilsa
Sýning á bútasaumsverkum
í tilefni af 200 ára
fæðingarafmæli
Jónasar Hallgrímssonar
Erró - Kvenfólk
Grafíkverk í eigu
Listasafns Reykjavíkur
Af hjartans list!
Alþýðulistamaðurinn
Ágúst Jónsson
sýnir málverk í Boganum
Vissir þú...
að í Gerðubergi er góð
aðstaða fyrir ráðstefnur,
námskeið, fundi og móttökur.
Sjá www.gerduberg.is
Sýningarnar standa til 9. september
og eru opnar virka daga frá 11-17
og um helgar frá 13-16. Sími 575 7700