Fréttablaðið - 31.08.2007, Page 76
Lengsta vatnsrennibraut á Íslandi er í smíðum við
sundlaugina í Neskaupstað. Brautin, sem verður
opnuð í lok september, er um 63 metrar að lengd og
er gjöf frá Samvinnufélagi útgerðarmanna í Nes-
kaupstað, SÚN.
„Við höfum ekki haft rennibraut í mjög mörg ár,“
segir Benedikt Sigurjónsson, forstöðumaður íþrótta-
miðstöðvar Neskaupstaðar. „Ég held að fyrsta renni-
brautin á Íslandi hafi verið sett hér upp fyrir fimmtíu
árum. Það var ungur íþróttakennari sem kom með
þessa hugmynd og lét smíða hana á staðnum. Gólf-
dúkur var notaður sem renniflötur og það var vinsæl
rennibraut þótt hún væri ekki stór, eða um einn tíundi
af þessari nýju. Hún stóð uppi í fimm til sex ár en hún
stæðist ekki kröfur eftirlitsstofnana í dag,“ segir
Benedikt.
Hann segir það ekki skipta öllu máli þótt nýja
brautin sé sú lengsta á landinu eður ei. „Það er ekki
aðalmarkmið heldur að þetta virki eins og til er ætl-
ast hvað varðar afþreyingu og skemmtun.“ Stórar og
miklar dælur fylgja brautinni eins og gefur að skilja
og verður brautin þar af leiðandi ekki opin alla daga
ársins.
Að sögn Benedikts er mikill spenningur í bænum
fyrir nýju brautinni og hugsar unga fólkið sér gott til
glóðarinnar að skella sér í góða salibunu. Hann býst
þó ekki við því að nágrannasveitarfélögin verði dug-
leg við að koma í rennibrautina og hvað þá starfs-
menn álversins í Reyðarfirði. „Það verður nýjabrum
eins og gengur og gerist en þeir koma afskaplega
lítið hér.“
Lengsta vatnsrennibraut landsins
Guðmundur Sigurðsson fer
ekki troðnar slóðir í lífinu en
hann er á leiðinni á norrænt
þing eldsmiða um helgina.
Auk þess að vera menntaður hljóð-
færasmiður og umsjónarmaður
keilusalarins á Akranesi er Guð-
mundur einnig virkur meðlimur í
Víkingafélaginu Hringhorna. „Það
verða á fjórða tug eldsmiða sem
hittast þarna með afl og fýsibelg
til þess að smíða úr járni upp á
gamla mátann úti í guðs grænni
náttúrunni,“ segir Guðmundur en
mótið fer fram í Árósum í Dan-
mörku. Hann verður ekki eini
Íslendingurinn því Keflvíkingur-
inn Böðvar Gunnarsson fer utan
með Guðmundi. „Ég er búinn að
vera að fikta við eldsmíði í nokkur
ár og hitti umsjónarmenn þingsins
á víkingahátíðinni í Hafnarfirði
þar sem ég var að smíða flautur.
Þannig kom það nú til að ég ákvað
að fara.“
Guðmundur segist reikna með
að læra töluvert á þinginu þótt
hann hafi áður sótt námskeið í
greininni. „Ég fór á námskeið í
Reykjavík hjá Bjarna Þór Kristj-
ánssyni auk þess sem ég fékk til
mín smið frá Svíþjóð sem kenndi
mér í vikutíma. Hann hafði verið
að vinna fyrir austan sem fjár-
hirðir. En maður lærir eitthvað
nýtt við hvert tækifæri sem
maður fær til þess að smíða. Það
er ekki mikið hægt að stunda eld-
smíðina hér á landi, fólk þarf að
vinna fyrir salti í grautinn og
hefur ekki takmarkalausan tíma
til að dunda sér í einhverju svona.
Maður þyrfti að vinna við þetta til
að ná upp alvöru færni. Það er
ekki nóg að kveikja upp nokkrum
sinnum á ári.“
Þema þingsins er skurðarverk-
færi og ætlunin er meðal annars
að smíða eftirlíkingar af verk-
færum sem fundust í kistu árið
1936 og talið er að séu frá vík-
ingatímanum. En hvað er svona
skemmtilegt við eldsmíðina?
„Ekki neitt!“ segir Guðmundur
og skellir upp úr. „Maður er í því
að brenna sig og hvaðeina. Nei, ég
segi svona. Ég þarf bara að prófa
allt sem tengist þessum tíma
þegar menn gátu enn gert eitt-
hvað með höndunum.“
Hljómsveitin Buff ásamt Reykja-
vik Sessions Quartet verður með
tónleika til heiðurs Bítlinum fyrr-
verandi, Paul McCartney, í Aust-
urbæ fimmtudaginn 13. september.
Flutt verða mörg bestu lög Bítils-
ins fyrrverandi með tilheyrandi
ljósasýningu og fínum
hljómgæðum.
Gestasöngvarar
verða Magni,
Matthías Matthías-
son og Ragnar Zol-
berg.
„Þetta verður geð-
veikt gaman. Mig hefur
lengi langað til að syngja
eitthvað á rólegri nótunum
sem er ekki bara brjálæði og
öskur,“ segir Ragnar Zol-
berg. „Ég er mikill Bítlamaður.
Pabbi var með Bítlana á fóninum
þegar ég fæddist þannig að þetta
rennur í blóðinu.“
Ragnar er um
þessar mundir
staddur í Englandi
með hljómsveit
sinni Sign. „Við
höfum verið hérna
í þrjár vikur. Það
hefur gengið frá-
bærlega og við höfum
fengið góða dóma,“
segir hann.
Miðasala á McCartney-
tónleikana hefst á mánu-
dag í Austurbæ, á midi.is,
Skífunni í Reykjavík og BT
úti á landi. - fb
Heiðra McCartney
Einn vinsælasti bloggari landsins,
Ellý Ármannsdóttir, hefur læst
bloggi sínu. Aðdáendur hennar
verða því að fá úthlutað sérstöku
lykilorði til að geta lesið hinar
skemmtilegu og erótísku sögur
hennar.
Ekki náðist í Ellý í gær þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir til að for-
vitnast um ástæður læsingarinnar.
Staðgengill netstjóra mbl.is, Árni
Matthíasson, sagðist ekki hafa hug-
mynd um af hverju Ellý hefði læst
bloggi sínu og taldi það ekki vera
neinn heimsendi fyrir Mogga-
bloggið þótt að þetta hefði gerst.
„En það voru vissulega heitar
umræður um skrif hennar á mið-
vikudagskvöldinu. Ég veit hins
vegar ekki hvort það hafði eitthvað
með þessa læsingu að gera,“ segir
Árni og viðurkenndi jafnframt að
netstjórninni hefðu borist ein-
hverjar athugasemdir við skrif Ell-
ýar. „Annars virðist fólk vera ótrú-
lega umburðarlynt á blogginu,“
bætir Árni við.
Á bloggsíðu Jennýar Önnu Bald-
ursdóttir, jenfo.blog.is sem hefur
verið í einum af efstu sætum vin-
sældalista Moggabloggsins, var
skrifuð færsla um skrif Ellýar og
sett spurningarmerki við hvort
sögurnar væru ekki komnar út
fyrir allt velsæmi. Ekki stóð á við-
brögðunum í athugasemdakerfinu
því yfir fjörutíu athugasemdir
voru skráðar við umrædda færslu.
Vinsældir Ellýar hafa nánast
verið lygilegar en hún skaust upp á
stjörnuhiminn bloggsins fyrr í
sumar. Í byrjun maí náði Ellý því
takmarki að yfir tíu þúsund heim-
sóknir voru á síðu hennar. Ellý
hefur jafnframt verið áberandi að
undanförnu í fjölmiðlum og vakti
ekki litla athygli þegar hún sat
fyrir með fartölvuna eina klæða á
forsíðu tímaritsins Ísafoldar.
Ellý Ármansdóttir
læsir bloggi sínu
BRETTIN UPP!
Frumsýnd 31. ágúst
með íslensku
og ensku tali!
Þú sendir
SMS skeytið
BT BTF á
númerið 1900.
Þú færð spurningu.
Þú svarar með því a
ð
senda SMS skeytið
BT A, B eða C á
númerið 1900.
Aðalvinningur
Toshiba Satellite fartölva + PSP tölva + leikir!
Aðalvinningur er Toshiba Satellite fartölva + PSP tölva + leikir!
Geggjaðir aukavinningar: Medion vídeóspilari, Playstation 3, iPod nano,
Panasonic tökuvél, Sony myndavél, GSM símar, Playstation 2 tölvur,Guitar
Hero, Gjafabréf frá Tónlist.is, bíómiðar á „Brettin upp“, DvD myndir,
Tölvuleikir, kippur af gosi og margt fleira!
*A
ða
lv
in
ni
ng
ar
d
re
gn
ir
út
ú
r ö
llu
m
in
ns
en
du
m
sk
ey
tu
m
. V
in
ni
ng
ar
v
er
ða
a
fh
en
tir
í B
T
Sm
ár
al
in
d,
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
. Þ
ú
fæ
rð
5
.m
ín
ti
l a
ð
sv
ar
a
sp
ur
ni
ng
u.
10.
hver
vinn
ur!