Fréttablaðið - 31.08.2007, Qupperneq 79
Kvikmyndin Away From Her
segir frá miðaldra hjónum, Fionu
og Grant, takast á við Alzheimer-
sjúkdóm Fionu og innlögn hennar
á hjúkrunarheimili fyrir Alzheim-
er-sjúklinga. Við fylgjumst með
Fionu missa minnið smám saman
og erfiðleika þeirra hjóna við að
sætta sig við sjúkdóminn og
afleiðingar hans.
Away From Her er fyrsta mynd-
in í fullri lengd sem Sarah Polley
leikstýrir. Sarah er tæplega þrí-
tug, margverðlaunuð leikkona,
sem hefur áður gert nokkrar stutt-
myndir.
Polley tekst einstaklega vel að
fjalla um þetta viðkvæma efni af
virðingu og án þess að vera væmin
eða of dramatísk. Í grunninn er
þetta einfaldlega saga um fólk
sem er að gera sitt besta til að tak-
ast á við lífið í skugga illviðráðan-
legs sjúkdóms.
Leikurinn í myndinni er góður.
Aðalleikkonan Julie Christie sýnir
snilldarleik. Henni tekst að túlka
andlega hnignun Fionu á einkar
sannfærandi hátt. Aðrir standa
nokkuð í skugganum af henni en
skila sínu áfallalaust.
Söguþráðurinn er að mörgu
leyti fyrirsjánlegur en það kemur
ekki að sök því ekki er verið að
elta einhverjar klisjur. Persónu-
sköpunin er það sterk að það sem
er fyrirsjánlegt verður samt
aldrei ósannfærandi.
Away from her er því þegar á
heildina er litið góð mynd um
manneskjur í erfiðum aðstæðum.
Ástarsaga í skugga Alzheimer
Höfundar teiknimyndaþáttanna
South Park hafa gengið frá
samningi um að þættirnir verði
fáanlegir á stafrænan hátt á net-
inu, í farsímum og í leikjatölv-
um.
„Núna getum við líka ofboðið
fólki í gegnum farsíma, leiki og
tölvur. Þetta er allt saman mjög
spennandi,“ sagði Trey Parker,
annar höfundanna.
Einnig undirrituðu Parker og
félagi hans, Matt Stone, samning
við Viacom um að búa til þrjár
þáttaraðir til viðbótar af South
Park. Hefur þátturinn verið
sýndur við frábærar undirtektir
frá árinu 1997.
Stafrænn South Park
Leikkonan Angelina Jolie fór í
opinbera heimsókn til Sýrlands og
Íraks, þar sem hún hitti flótta-
menn og bandaríska hermenn sem
þar eru staddir. Jolie, sem er góð-
gerðarsendiherra hjá flóttamanna-
hjálp Sameinuðu þjóðanna, hitti
fyrst íraska flóttamenn í Sýrlandi
og fór síðan yfir til Íraks í nokkrar
klukkustundir.
„Ég fór til Sýrlands og Íraks til
að vekja athygli á ástandinu sem
þar ríkir í mannúðarmálum. Vil ég
hvetja þjóðir heimsins til að auka
stuðning sinn við flóttamannahjálp
Sameinuðu þjóðanna og samstarfs-
aðila hennar,“ sagði Jolie. Talið er
að um 4,2 milljónir Íraka hafi þurft
að yfirgefa heimili sín síðan Íraks-
stríðið hófst fyrir fjórum árum.
Hitti íraska flóttamenn
Ronnie Wood, gítarleikari The
Rolling Stones, segir að sveitin sé
langt í frá hætt og eigi eftir að fara
í fleiri tónleikaferðir á næstu
árum. „Við þurfum hvíld núna en
að sjálfsögðu förum við aftur í
tónleikaferð. Við ætlum aldrei að
hætta því,“ sagði Wood.
Rollingarnir luku The Bigger
Bang-tónleikaferðinni á dögunum
með tónleikum í London. Orðróm-
ur hefur verið uppi um að þetta
væri síðasti túr sveitarinnar en
Wood hefur nú vísað honum til
föðurhúsanna.
Ekki hættir
Upptökur á nýjustu plötu U2 hafa
gengið vel. Upptökustjórinn
Daniel Lanois, sem tók upp
plöturnar The Unforgettable Fire,
The Joshua Tree og Achtung
Baby, var fenginn til að aðstoða
sveitina við lagasmíðar fyrir
plötuna ásamt öðrum góðvini U2,
Brian Eno.
Að sögn Lanois hafa upptökurn-
ar gengið vonum framar. „Í þetta
sinn var okkur boðið að taka þátt í
lagasmíðunum,“ sagði hann. „Ég
tók þátt í þremur samningalotum
með Eno og U2 og það gekk
frábærlega. Við ætlum að hittast
aftur í nóvember.“
Síðasta plata U2, How to
Dismantle an Atomic Bomb, kom
út árið 2004 við góðar undirtektir.
Upptökur ganga vel hjá U2