Fréttablaðið - 13.10.2007, Blaðsíða 86
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Samúel J. Samúelsson
góða
umfjöllun í hinu virta tímariti
Vaxpoetics.
Knattspyrnumaðurinn
Eiður Smári Guðjohnsen
sýndi á sér nýja hlið á
fimmtudag þegar hann
fór upp á svið í bíósal
Hótel Sögu og tók lagið
Mandy með Barry Mani-
low fyrir liðsfélaga sína
við undirleik Jóns Ólafs-
sonar. Ástæðan var hlut-
verkaskipti við Sverri Berg-
mann Magnússon fyrir
þáttinn Laugardagslögin
í Sjónvarpinu sem
sýndur verður í kvöld.
Sverrir Bergmann var
að sama skapi sendur á
landsliðsæfingu fyrr í
vikunni.
„Eiður kom bara
virkilega á óvart,“ segir
Birkir Kristinsson,
markmannsþjálfari lands-
liðsins. „Ég átti reynd-
ar von á að hann
myndi syngja
lag með
Whitney
Houston en
hann kom
þarna með
nýjan
vinkil.
Hingað til
hefur hann sérhæft sig í
lögum með Whitney og
Birgittu Haukdal þegar
hann syngur fyrir góða
vini sína. Maður var
bara hálfklökkur
þarna. Hann stóð sig
mjög vel.“
Meðlimir landsliðs-
ins vissu það fyrir
fram að Eiður ætlaði
að syngja. „Menn
voru mjög spenntir
eftir að hafa beðið
allan daginn,“ segir
Birkir sem vill
meina að Eiður hafi
sönghæfileika.
„Það er engin
spurning og
hann hefur tekið stórstígum
framförum í gegnum tíðina.
Ég hef ekki heyrt hann
syngja svona yndisfagurt í
nokkra mánuði. Ég átti von á
því að hann yrði skrækari
enda hefur hann sérhæft sig í
kvenröddum.“
Eiður Smári söng á Hótel Sögu
„Einar Bárðarson er að vinna í þessu
fyrir mig en það er ekkert í höfn og
þangað til hef ég báða fæturna á jörð-
inni,“ segir hinn færeyski Jógvan
Hansen en til stendur að koma honum
á hinn breska X-factor-tónleikatúr
sem verður farinn þegar nýr sigur-
vegari X-factor hefur verið krýndur
en samkvæmt heimasíðu þáttarins
hefst hún um miðjan febrúar í New-
castle. Einar hefur átt nokkra fundi
með fulltrúum Simon Cowell sem er
heilinn og hjartað á bak við þættina
og hafa þeir tekið vel í þessar hug-
myndir.
Talið er að um tíu milljónir manna
horfi á X-factor-þáttinn í Bretlandi
sem er mikið æði þar í landi en meðal
dómara er Danni Minogue, systir
Kylie Minogue. Nýverið var jafn-
framt tilkynnt að sjálfur poppkóng-
urinn, Michael Jackson, yrði sérstak-
ur gestadómari. Tónleikaröðin hefur
einnig farið vel ofan í tjallann en á þá
síðustu seldust yfir 200 þúsund miðar.
„Þetta yrði auðvitað mjög mikil kynn-
ing fyrir mig og ég kæmi þarna fram
sem gestasöngvari,“ heldur Jógvan
áfram en um yrði að ræða tíu til
fimmtán tónleika á tónleikastöðum
sem rúma milli átta og sextán þúsund
manns. Botninn verður síðan sleginn
á Wembley Arena í lok mars.
Jógvan varð fyrsti sigurvegarinn í
X-factor-leit Stöðvar 2 eftir harða
baráttu við Hara-systur úr Hvera-
gerði. Hann gaf út sína fyrstu sólós-
kífu undir nafninu Jógvan en hann
verður með Friðriki Ómari á Broad-
way í sérstakri sýningu sem sett
verður upp til heiðurs George
Michael á næstunni.
Jógvan syngur um allt Bretland
„Þetta getur alveg verið svona upp
og ofan,“ segir Dýri Kristjánsson
sem lifir tvöföldu lífi, rétt eins og
aðrar ofurhetjur á borð við Ofur-
mennið og Leðurblökumanninn. Á
daginn er hann starfsmaður eigna-
stýringar Kaupþings, klæðist
jakkafötum og lætur ekki mikið
fyrir sér fara, en á kvöldin skiptir
hann um ham og breytist í ofur-
hetjuna Íþróttaálfinn í Latabæ.
Bjargar Sollu stirðu og Sigga sæta
frá þrjótnum Glanna Glæp og fær
krakka til að borða hollan mat og
hreyfa sig.
„Það var hringt í mig fyrir
nokkrum árum þegar Magnús
Scheving meiddist og hafði bókað
sig á nokkrar skemmtanir. Þau
prófuðu að senda mig og það gekk
mjög vel,“ segir Dýri sem jafn-
framt hefur sinnt áhættustökkum
fyrir Magnús í sjónvarpsþáttun-
um vinsælu. Dýri er ekki óvanur
því að teygja sig á alla kanta því
hann lagði stund á fimleika í sautj-
án ár með góðum árangri.
Og Dýri taldi nokkuð víst að
fimleikarnir hefðu fært honum
það sem þeir gátu. Hann hafði
ferðast út um allan heim á keppn-
isferðalögum og loks fengið inni
hjá háskólanum í Minnesota þar
sem hann gat lært og æft sína
íþrótt. „En möguleikarnir virðast
vera óþrjótandi og það að vera
Íþróttaálfur er ágætis tilbreyting
frá tölvuskjánum,“ segir Dýri sem
má þó þola nokkrar góðlátlegar
háðsglósur frá vinnufélögunum.
„Já, ég er stundum nefndur Álfur-
inn og ef maður fær sér auka-sósu
ofan á kjötið þá er maður stundum
spurður hvort Álfurinn megi
borða svona,“ segir Dýri og hlær
og tekur slíkt augljóslega ekki of
nærri sér.
Latabæjar-gengið er nýkomið
heim frá Fíladelfíu þar sem það
skemmti í skemmtigarði sjón-
varpsþáttarins Sesam Street. Að
sögn Dýra sprengdu þau allar
áhorfendatölur en yfir tólf þúsund
manns komu og sáu þau skemmta.
„Þetta var ótrúlega gaman og við
tókum þátt í tveimur skrúð-
göngum,“ segir Dýri og bætir því
við að honum finnist stórskemmti-
legt að leika fyrir börnin, sjá þau
hoppa og dansa og fá útrás í bún-
ingum aðalpersónanna.
Gnoðarvogi 44, s. 588 8686.
Opið 10-18:15 laugardaga 11-14.
NÝR TÚNFISKUR ófrosinn • RISARÆKJUR
LÚÐA • SKÖTUSELUR • HÖRPUSKEL
skréttir i sparifötum