Fréttablaðið - 13.10.2007, Blaðsíða 16
[Hlutabréf] Peningaskápurinn ...
Askar Capital hefur stofnað níu
milljarða króna fjárfestingasjóð.
Lágmarkskaup í sjóðnum nema
fimm milljónum dala, rúmlega
301 milljón íslenskra króna.
Sjóður Askar Capital nefnist
Enhanced Return Private Equity
Fund of Funds (ERPEFF) en það
er svokallaður sjóðasjóður og er
til hans stofnað í samvinnu við
þýska fjármálafyrirtækið VCM
Capital Management og hið
bandaríska Resource America
en þau höndla með ýmis verk-
efni. Á meðal þeirra eru skuld-
sett yfirtökuverkefni, kaup í
óskráðum félögum og svokölluð
brúar- eða millilagslán.
Dr. Bjarki A. Brynjarsson, for-
stöðumaður framtaksfjármögn-
unar hjá Askar Capital, segir
nokkra mánuði síðan grunnur
var lagður að stofnun sjóðsins,
sem ætlaður er stofnana- og fag-
fjárfestum, svo sem lífeyrissjóð-
um.
Bjarki segir aðstæður á fjár-
málamörkuðum undanfarið hafa
lítil áhrif á gengi fjárfestinga-
sjóða sem þessa þar sem þeir
taki stöður í óskráðum félögum
sem séu óháð markaðsaðstæðum
hverju sinni ólíkt viðskiptum
með skráð félög. „Þetta er lang-
tímaverkefni til tíu ára eða meira
en líftími hverrar fjárfestingar
er tvö til fimm ár áður,“ segir
hann en neitar því ekki að aðstæð-
ur undanfarið hafi gert fjár-
mögnun dýrari en áður.
Bjarki segir sjóðinn fjárfesta
með sjóðsstjórum erlendu sjóð-
anna en sú tilhögun dreifir áhætt-
unni.
Askar með milljarðasjóð
SPRON hf. og Byr spari-
sjóður hafa selt samtals
45,18 prósenta eignarhlut
sinn í Icebank. Hvor um sig
heldur þó eftir átta pró-
senta hlut. Icebank verður
eftir sem áður í meirihluta-
eigu sparisjóðanna sem
eftir standa. Bankastjóri
Icebank segir nánar verða
greint frá viðskiptunum
eftir helgina.
Byr sparisjóður og SPRON hf.
hafa selt eignarhlut sinn í Ice-
bank, þjónustubanka sparisjóð-
anna. Salan er háð samþykki Fjár-
málaeftirlitsins.
Hluturinn sem SPRON seldi
nam 20,5 prósentum hlutafjár í
Icebank, en hlutur Byrs 24,68 pró-
sentum. Hvor um sig heldur þó
eftir fjögurra prósenta eignarhlut
í Icebank.
Kaupverð er ekki gefið upp, né
heldur hver kaupir þarna tæplega
helmingshlut í Icebank. Finnur
Sveinbjörnsson, bankastjóri Ice-
bank, segir að næsta mánudag
verði upplýst nánar um kaupin.
Skömmu fyrir síðustu mánaðamót
var hins vegar frá því greint í
Markaðnum, sem fylgir Frétta-
blaðinu, að æðstu stjórnendur
bankans hefðu hug á að kaupa hlut
í bankanum í samstarfi við aðra
fjárfesta. Samkvæmt heimildum
blaðsins nú gengu þau viðskipti
eftir í einhverri mynd. Icebank
mun þó enn vera í meirihlutaeigu
sparisjóða, sem þýðir að helstu
sparisjóðir sem eftir standa í eig-
endahópi Icebank hafa jafnframt
aukið við eignarhlut sinn. Samtals
standa þá átján sparisjóðir að
bankanum, þeirra stærstir Spari-
sjóðurinn í Keflavík sem fór með
12,2 prósent fyrir viðskiptin og
Sparisjóður Mýrasýslu sem átti
8,7 prósent.
Guðmundur Hauksson, spari-
sjóðsstjóri SPRON hf., segir söl-
una framhald á stefnu sem áður
hafi verið kynnt hjá Icebank.
„Stefnt var að því að opna eignar-
haldið og skrá bankann síðan í
Kauphöllina á næsta ári. Starfs-
vettvangur bankans hefur verið
að þróast mikið í kjölfar stefnu-
mótunar og þetta er bara einn
liður af mörgum sem verið er að
framkvæma.“ Hann segir það hins
vegar nýrra eigenda að gera grein
fyrir kaupum sínum í bankanum.
Í tilkynningum SPRON og Byrs til
Kauphallar í gær kemur hins
vegar fram að salan hafi „jákvæð
áhrif“ á eigið fé sjóðanna. „Það
kemur náttúrlega annars vegar til
af því að eign sparisjóðanna í Ice-
bank hefur verið bókfærð á innra
virði, en núna kemur fram mark-
aðsverð og það skapar einhvern
hagnað. Í öðru lagi er jafnljóst að
eignarhald fjármálafyrirtækis á
hlutabréfum í öðru fjármálafyrir-
tæki er dregið frá eigin fénu þegar
eiginfjárhlutföll eru reiknuð út,
þannig að við þetta losnar um eig-
infjárbindingu.“
Að sama skapi segir Ragnar Z.
Guðjónsson, sparisjóðsstjóri
Byrs, að salan sé til komin vegna
breytinga á sambandi Byrs og
SPRON við Icebank. Icebank segir
hann að sinni meðal annars mikil-
vægu hlutverki við öflun erlendra
lána fyrir minni sparisjóði, en
stóru sjóðirnir annist nú alfarið
sjálfir fjármögnun erlendis.
„Bankinn hefur í raun breyst úr
samstarfsaðila yfir í fjárfestingu
og það er í raun rótin að þessum
breytingum sem eru að eiga sér
stað.“
Stærstu sjóðirnir
selja sig úr Icebank
Come2 Scandinavia, Vesterbrogade 17
1620 Kaupmannahöfn.
Á leið til Skandinavíu?
Við hjá Come2 Scandinavia aðstoðum þig að finna bestu verðin
á flugi, gistingu, bílaleigubíl og annarri afþreyingu.
Erum með tvær stórar og rúmgóðar íbúðir á Vesterbrogade til
leigu. Frábær lausn fyrir hópa og fjölskyldur.
www.come-2scandinavia.dk - info@come2scandinavia.com - +45 33 25 64 25
COME2 SCANDINAVIA