Fréttablaðið - 13.10.2007, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 13.10.2007, Blaðsíða 66
Hver er fyrsta minningin þín? Hún er úr bæjar- læknum sem rann við hús okkar á Seyðisfirði. Ég hlýt að hafa verið 3-4 ára og var þar að leik niður með læk þegar minkur birtist mér. Pabbi mætti fljúgandi „át off nóver“ galvaskur og lagði til atlögu við minkinn, mér til mikillar skelfingar. Miklu seinna eignaðist ég tvö kvik- indi, afbrigði af minkum, sem gæludýr, þannig að þessi reynsla kenndi mér ekki að hræðast minka sérstaklega. Ég á líka ljóslifandi minn- ingu frá æskuárunum á Seyðisfirði þegar hljómsveitin The Mamas & The Papas gistu heima hjá okkur í nokkra daga og brölluðum ég og Mama Cass margt saman. Það var ekki fyrr en ég var kominn á þrítugsaldur sem ég komst að því að þetta hafði verið ímyndun í öll þessi ár og The Mamas & The Papas hafði ég aldrei hitt. Ef það væri gerð kvikmynd um ævi þína, hver ætti að leika þig? Mickey Rourke. Ef þú gætir valið þrjár hljómsveitir, lifandi eða dauðar, til að spila á Organ, hverjar myndir þú velja? Þeyr, Fugazi og Fleetwood Mac. Ef þú værir ekki að vinna, hvernig myndir þú eyða deginum? Ég veit það ekki. Bara veit það ekki … Hver er versta vinna sem þú hefur nokkurn tíma unnið við? Ég vann eitt sinn til styttri tíma í bílaþvottastöð, svona færibandsstöð, þar sem ég þurrkaði bíla inni í því sem verður best lýst sem risavöxnum hárblásara, sirka 60 bíla á klukkustund. Ég hef aldrei upplifað annan eins varaþurrk. Annars vann ég líka í nokkra daga sem krakki í Miklagarði við að blása upp blöðrur fyrir einhverja tilboðsviku og eftir þrjá tíma af blæstri var ég orðinn blár í framan og lá við yfirliði. Það var fyrst þá sem mér var bent á helíumkút sem mér hafði verið fenginn í verk- ið. Fylltu í eyðuna: Það er eitthvað gruggugt við … þennan gamla góða Villa. Hver hefur ekki séð vhs-myndina Good Old Willy Hunting? Hefurðu einhvern tíma birst á skjánum? Já, í viðtali á PoppTíví með grímu fyrir andlitinu, sem Ragnar Hansson hafði gert fyrir vídeó fyrir Kimono, og hárkollu á hausnum. Ég og Alex vinur minn hræddum líftóruna úr starfs- fólki stöðvarinnar enda mættum við í smink með grímurnar og neituðum að taka þær niður. Stöðin var að brjóta odd af oflæti sínu með því að bjóða einhverjum skrítnum prog-rokkurum í viðtal en við létum öllum illum látum. Ég get svarið það að liðið var skíthrætt. Hvað veldur þér mestum áhyggjum? Gegndar- laust dráp á saklausu fólki um allan heim. Ég naga á mér neglurnar á fréttatímanum og velti fyrir mér hvenær röðin komi að mér. Hvað, að þínu mati, er kynþokkafyllsti klæðn- aður sem kona getur klæðst? Sumarkjóll úr bómull. Grrrr … Gerir fólk grín að þér fyrir eitthvað sérstakt? Það er helst gert grín að mér fyrir frekar glopp- ótt minni. Ég á það til að segja sömu manneskj- unni einhverja sögu tvisvar eða gleyma því á fimm mínútum að ég hafi sagt eitthvað og segi það því aftur. Svo hefur verið gert grín að mér fyrir að stíga léttan dans þegar Kimono spilar á tónleikum, og hef ég því lagt niður þá iðju. Hvort er betra að gefa eða þiggja? Ég myndi segja að mér finnst bara bæði betra. Ég fíla samt alveg fínt að þiggja. Hvaða frasa ofnotar þú? „Einmitt, fattarðu? og þokkalega. „Shot of Bruchatti“ og „All CAPS!“ koma líka sterkir inn.“ Ef þú værir að fara á grímuball, í hvað myndir þú fara? Í sundskýlu páfans. Hvaða núlifandi manneskju hatar þú og hvers vegna? Ég trúi ekki á hatur og vil meina að manneskja sem hatar sé yfirleitt verri en sú sem hún hatar. En Dick Cheney og George W. Bush skora hátt á óvildarlistanum. Björn Ingi framsóknarmaður fer líka óstjórnlega í taug- arnar á mér. Sér hann enginn leggja drullu- ólöglega uppi á gangstétt þegar hann er að mæta á fund í Framsóknarhúsinu í fréttatíman- um? Come on! Ef þú gætir stýrt framtíð þinni, hvað sæir þú fyrir þér í þremur setningum? Eftir að ég hef lokið mér af við að gera Organ að lifandi goðsögn í skemmtanalífinu myndi ég snúa mér að óhjákvæmilegri heimsfrægð Kim- ono. Í kjölfarið myndi ég redda þessum heims- friði sem allir eru að tala um, taka á móti Nób- elsverðlaunum og verða fyrsti trúleysinginn sem kjörinn verður páfi. Frá Vatíkaninu myndi ég svo eyða ævikvöldinu í að leysa upp öll trú- arbrögð heimsins til að tryggja eilífan heims- frið og setja svo sjálfan mig af sem páfa og verða þar með síðasti páfinn. Hefurðu einhvern tímann lent í ógurlegri hættu? Svo sannarlega, nokkrum sinnum. Að horfa á bíl koma akandi á 90 km hraða inn í bíl- sætið þitt er viðburður sem fær þig til að fara snögglega yfir helstu vonbrigði lífsins, og spyrna fótum svo ærlega í gólfið. Svo sneri ég gamla Volvonum mínum í nokkra hringi í snjó- byl á hraðbraut í New Jersey og rétt sleikti hornið á 18 hjóla trukk. Æðislegt. Það kostaði buxnaskipti á næstu bensínstöð. Hvað er það versta sem einhver hefur nokkurn tímann sagt við þig? „Eitthvað fleira?“ Hvaða bók er á náttborðinu? Sjálfsævisaga Davids Lee Roth; Crazy From The Heat. Þetta er önnur lesning, nota bene. Drykkurinn? Vodka, tónik og latte með vanillu- bragði. Facebook eða MySpace? Gimme some space and get off my face! Heldurðu að Britney eigi afturkvæmt? Bíddu, er hún hótelerfinginn eða poppstirnið nærbuxnalausa? Eða eru þær sama manneskj- an? Hver var spurningin? Hvaða kvikmynd getur þú horft á aftur og aftur og aftur? Barfly með Mickey Rourke og Faye Dunaway eftir handriti Charles Bukowskis. Ótrúlega heiðarleg mynd. Hver er syndsamlegasta nautnin þín? Þýskt súkkulaðikex. Þeir skilja þetta sem vilja. Hvaða lag ætti að spila í jarðarförinni þinni? Landslide með Fleetwood Mac. Ég myndi syngja með úr kistunni. Hvað er á döfinni hjá þér í október? Flottir tón- leikar eins og Skakkamanage, Motion Boys, Ólöf Arnalds vs. Ólafur Arnalds og svo á Ice- land Airwaves eftir að heimta mikla orku. Að mála eldhúsið heima er alveg inni í myndinni líka. Ætla að verða síðasti páfinn Tónleikastaðurinn Organ hefur slegið rækilega í gegn enda mikil þörf fyrir slíkan stað í hjarta borgar- innar. Staðarhaldari, Gylfi Blöndal, sem jafnframt er gítarleikari í rokksveitinni Kimono, er nú í óða önn að undirbúa stífa Iceland Airwaves-dagskrá í næstu viku. Gylfi var tekinn í yfirheyrslu helgarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.