Fréttablaðið - 13.10.2007, Blaðsíða 4
Friðarverðlaun Nóbels
árið 2007 féllu í skaut loftslags-
nefndar Sameinuðu þjóðanna og
Als Gore, fyrrverandi varafor-
seta Bandaríkjanna, fyrir að hafa
stuðlað að vitundarvakningu um
loftslagsbreytingar af manna-
völdum og að leggja grundvöll að
því hvernig berjast megi gegn
þeim. Tilkynnt var um verðlauna-
hafana í Ósló í Noregi í gær.
Framkvæmdastjóri Umhverf-
isstofnunar Sameinuðu þjóðanna,
Achim Steiner, er staddur á
Íslandi vegna umhverfisþings
umhverfisráðuneytisins og fékk
hann fregnina um friðarverðlaun-
in frá Magnúsi Jóhannessyni,
ráðuneytisstjóra umhverfisráðu-
neytisins, í gærmorgun.
„Hann var afskaplega kátur og
átti síður en svo von á þessu,“
sagði Magnús. „Ég held að þetta
muni beina athygli fólks meira að
þessum vanda sem, ef ekkert er
að gert, mun vega enn frekar að
rótum friðar í heiminum.“
Fyrstu viðbrögð Steiners voru
að þetta væru ótrúlegar fréttir.
„Verðlaunin eru fyrst og fremst
viðurkenning á baráttu Als Gore
síðastliðin tuttugu ár. Hann hefur
lagt sitt að mörkum við að upp-
lýsa almenning um mjög flókin
tæknileg atriði og að breyta
umhverfisumræðunni.“
Steiner segir heimildarmynd
Gores mikilvægt innlegg til að
vekja athygli á loftslagsbreyting-
um. „Fjöldi fólks sá heimildar-
mynd hans og hún var sýnd í skól-
um um allan heim. Hún er hluti af
skilaboðum sem nú hafa öðlast
viðurkenningu. Nú ríkir ekki
lengur ágreiningur um vísinda-
legar staðreyndir málsins og öll
ríki heims hafa gert sér grein
fyrir hættum loftslagsbreyt-
inga.“
Aðspurður hvað taki nú við
segir Steiner það vera umræðu
um skilvirkar og réttlátar leiðir
til að hjálpa ólíkum ríkjum að tak-
ast á við vandann.
Karlmaður á fertugsaldri
hefur verið dæmdur í 12 mánaða
fangelsi fyrir fíkniefnabrot og
vopnalagabrot. Níu mánuðir þar af
eru skilorðsbundnir. Héraðsdómur
Reykjavíkur kvað upp dóminn.
Maðurinn var í tvígang tekinn
með fíkniefni. Um var að ræða
samtals 302 grömm af amfetamíni
og 3,4 kíló af kannabisefnum.
Fíkniefnin voru að hluta ætluð til
söludreifingar í ágóðaskyni.
Þá reyndist maðurinn geyma á
heimili sínu, án skotvopnaleyfis,
Remington XP-100 skotvopn með
kíki. Maðurinn greiðir málskostnað,
rúmar 220 þúsund krónur.
Fíkniefnasali
með skotvopn
Frétti af friðarverðlaunum
Nóbels í heimsókn á Íslandi
Loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna og Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, hlutu friðarverð-
laun Nóbels í ár. Achim Steiner, framkvæmdastjóri Umhverfisstofnunar SÞ, segir þetta ótrúlegar fréttir.
Sumar af fullyrð-
ingunum í óskarsverðlaunakvik-
mynd Al Gores „Óþægilegur
sannleikur“ eru ekki byggðar á
vísindalegum staðreyndum.
Þetta sagði breskur dómari er
úrskurður var kveðinn upp um
hvort heimilt skyldi að sýna
myndina breskum skólabörnum.
Skólastjórnarmaður hafði vísað
málinu til dómsins“.
Samkvæmt úrskurðinum má
sýna myndina í skólum, en
kennurum sem það gera er
uppálagt að láta pólitíska túlkun
Gores á loftslagsvandanum ekki
standa gagnrýnislausa.
Óvísindalegar
fullyrðingar
Lögreglan handtók í
fyrradag fjóra menn með fíkniefni
í Reykjavík. Þrír þeirra voru
vistaðir næturlangt í fangageymsl-
um og sleppt í gær eftir yfirheyrsl-
ur.
Það var um miðjan dag í
fyrradag sem lögreglumenn á
eftirlitsferð urðu varir við mikla
kannabislykt frá tilteknu húsi í
austurborginni. Við afskipti þeirra
af fjórum karlmönnum sem voru í
húsinu kom í ljós að þar var
talsvert af fíkniefnum. Um var að
ræða tíu kannabisplöntur, eitthvað
af kókaíni, tuttugu grömm af
amfetamíni og um 250 grömm af
kannabisefnum.
Kannabislykt
lagði frá húsi
Erlend framtíðarverkefni
Orkuveitunnar voru meginþunginn
í mati á óefnislegum verðmætum
Orkuveitunnar í Reykjavík Energy
Invest, að sögn Hjörleifs B. Kvar-
an, forstjóra Orkuveitunnar. Þessi
verðmæti voru metin á tíu millj-
arða króna á sínum tíma.
REI og Orkuveitan gerðu með sér
samning um að REI fái öll þau verk-
efni sem Orkuveitunni mun bjóðast
á erlendum vettvangi næstu tvo
áratugina, stuttu eftir að sameining
REI og Geysir Green Energy var
samþykkt.
Inni í tíu milljarða tölunni er
þjónustusamningur þar sem Orku-
veitan skuldbindur sig til að útvega
REI starfsfólk til þessara verk-
efna.
Hjörleifur segir rangt sem fram
hafi komið í fréttum Útvarps að
samningurinn hafi verið gerður
degi fyrir sameiningu fyrirtækj-
anna REI og Geysis Green Energy.
„Þessi samningur er partur af
sameiningunni og undirritaður
sama daginn, en eftir sameining-
una,“ segir hann. Hann vill ekki
veita fjölmiðlum afrit af samningn-
um.
Hjörleifur segir að deila megi um
tímalengd samningsins en bendir á
að Orkuveitan hafi með honum
tryggt sér 500 milljónir króna á ári,
greiddar fyrirfram, „sem sumum
þætti nú líklega dágóð summa. Ef
við hefðum samið til styttri tíma,
hefði fjárhæðin verið þeim mun
lægri, auðvitað.“
Meginþungi í hlut Orkuveitu