Fréttablaðið - 13.10.2007, Blaðsíða 74
Barnaleikritið Gosi verður
frumsýnt í Borgarleik-
húsinu í dag. Hér er á ferð
sannkölluð stórsýning og
mikið sjónarspil með glæsi-
legum búningum, gervum,
tónlist, fimleikafólki og
fleiru.
Ævintýrið um Gosa er vel þekkt.
Þar segir frá leikfangasmiðnum
barnlausa Jakobi, sem sker út
strengjabrúðu á töfrastund og
brúðan lifnar við. Brúðan fær nafn-
ið Gosi, en reynist vera óstýrilátur
strákur sem óhlýðnast föður sínum.
Í stað þess að mæta í skólann stefn-
ir Gosi á vit vafasamra ævintýra
sem reka hann á ótrúlegustu staði.
Með þátttöku í ævintýrunum
skerpist samviska hans, hann lærir
og þroskast.
Víðir Guðmundsson leikur Gosa.
Hann segir hlutverkið ekki vand-
alaust. „Gosi er náttúrlega þekkt
persóna og því er ekki alveg sama
hvernig ég leik hann. En sagan um
Gosa er sígild þroskasaga; Gosi er
fremur einfaldur í fyrstu og lætur
ginna sig en svo þroskast hann og
vitkast eftir því sem hann kynnist
heiminum betur. „Karl Ágúst Úlfs-
son vann leikgerðina upp úr ævin-
týri Carlo Collodi sem kom út árið
1883 og náði þegar nokkrum vin-
sældum í heimalandi sínu, Ítalíu.
„Upprunalega sagan af Gosa er
dálítið ólík Disney-ævintýrinu sem
flestir þekkja; í ævintýri Collodis
kveður við öllu dekkri tón. Leik-
gerðin sem við setjum á svið hér
fer nokkurs konar milliveg á milli
frumútgáfunnar og Disney-útgáf-
unnar. Hún hefur sama fallega boð-
skapinn og er svo áberandi í Disney-
myndinni, en aðrir þættir hennar
sækja jafnframt í heim upprun-
alegu sögunnar,“ segir Víðir.
Víðir tók þátt í uppfærslu barn-
aleikrits með Nemendaleikhúsinu á
sínum tíma. Hann hefur því reynslu
af að koma fram fyrir unga áhorf-
endur. „Börn og fullorðnir eru
vissulega fremur ólíkir áhorfend-
ahópar. Það er afskaplega gaman
að leika fyrir börn, enda eru þau
ekki komin í leikhús til að dæma
heldur frekar til að upplifa og njóta
sýningarinnar. Maður getur treyst
þeim fullkomlega vegna þess að
þau eru alveg einlæg í viðbrögðum
sínum; maður verður strax var við
hvernig leikritinu er tekið.“
Sýningin um Gosa er afar sjón-
ræn og því vel til þess fallin að
vekja sterk hughrif og viðbrögð hjá
áhorfendum. „Þetta er einfaldlega
frábær sýning fyrir alla fjöl-
skylduna. Þetta verður eflaust ein
af þessum uppfærslum sem lifa
lengi í hugum ungra áhorfenda,“
segir Víðir.
Spýtustrákur lærir á lífið
Fjöllistamaðurinn Auxpan,
sem dagsdaglega heitir
Elvar Már Kjartansson,
tekur þátt í Sequences-
myndlistarhátíðinni með
gjörningi sem hann flytur í
Gallerí Dvergi í kvöld.
Gjörningurinn, sem kall-
ast „Hæhó Auxpan“, hefur
ekki verið lengi í undirbún-
ingi. „Ég ákveð gjarnan með
skömmum fyrirvara hvað ég geri á
gjörningum. Í Gallerí Dvergi verð
ég eflaust með einhverja tónlist og
fleira skemmtilegt,“ segir Elvar
spurður um hvað fer fram á
gjörningnum.
Gjörningar hans hafa
getið sér orð fyrir að reyna
á líkamleg mörk. „Ég á það
til að stökkva úr mikilli
hæð eða gera annað sem
kannski lítur út fyrir að
vera hættulegt. Ég er þó
ekki í neinni hættu, þetta er
bara hluti af gjörningnum,“
segir Elvar. Hann vill þó ekkert
segja um hvort vænta megi slíkra
tilþrifa í gjörningnum á laugardag.
Hæhó Auxpan
Stórsýning verður opnuð
í dag í Hafnarborg með
mannamyndum af ýmsu
tagi: portrettum. Sýningin
byggir á samkeppni fyrir
portrettlistaverk sem efnt
er til að frumkvæði safns-
ins í Frederiksborgarhöll í
Danmörku (Det Nationalhis-
toriske Museum í Freder-
iksborg) en safnið á stærsta
safn portrettlistaverka á
Norðurlöndunum. Aðal-
styrktaraðili er Carlsberg-
sjóðurinn og eru verðlaunin
kennd við bruggmeistarann
J.C. Jacobsen og nefnast
Brygger J.C. Jacobsens Port-
rætpris.
Fyrstu verðlaun eru 75 þúsund
danskar krónur, önnur verðlaun 30
þúsund og þriðju verðlaun 15 þús-
und. Einnig eru veitt sérstök verð-
laun fyrir verk sem gestir sýning-
arinnar tilnefna og sérstök
viðurkenning fyrir frumlegasta
verk sýningarinnar. Fagleg
dómnefnd valdi verkin á sýninguna.
Á sjötta hundrað verk bárust í
keppnina og íslensku listamennirnir
sem valdir voru í keppnina voru þau
Dodda Maggý Kristjánsdóttir, Helgi
Gíslason, Kristveig Halldórsdóttir,
Sesselja Tómasdóttir og Sigrún Eld-
járn, en alls eru verk eftir áttatíu
listamenn á sýningunni. Þeir sem
hlutu verðlaun voru Sonja Lillebæk
Christensen, 1. verðlaun, Sven
Ljungberg, 2. verðlaun, Torben
Eskerod, 3. verðlaun og verðlaun
fyrir frumlega útfærslu portrett-
verka hlutu Daniel Hoflund og
Mette Watten.
Sýningunni Portræt nu svipar að
mörgu leyti til þeirra stórsýninga á
portrettverkum sem hefð er fyrir að
halda í Bretlandi, Ástralíu og Amer-
íku ár hvert og sem ætíð vekja mikla
athygli. Sú sýning sem íslensku
listamennirnir taka þátt í nú sker
sig þó úr að því leyti að hér verða
ekki eingöngu hefðbundin portrett
málverk eða skúlptúrar, heldur hafa
listamennirnir frjálst val um efnis-
tök. Þetta er í fyrsta sinn sem efnt
er til norrænnar samsýningar af
þessu tagi en stefnt er að því að por-
trett-sýningar með þessu sniði verði
framvegis haldnar annað hvert ár.
Þau söfn sem standa að sýningunni
auk safnsins í Frederiksborgarhöll
eru Hafnarborg, menningar- og list-
astofnun Hafnarfjarðar, Amos And-
ersson-listasafnið í Helsinki, Lista-
safnið í Gripsholmhöllinni í Svíþjóð
og Norska þjóðlistasafnið í Osló.
Sýningin var opnuð í Danmörku í
maí síðastliðnum og af því tilefni
var efnt til málþings um stöðu por-
trettlistar í dag, með áherslu á
Norðurlöndin. Þar voru forstöð-
umenn áðurnefndra portrettlis-
tasafna í Bretlandi, Bandaríkjunum
og Ástralíu, auk forstöðumanns Por-
trettlistasafnsins í Svíþjóð meðal
frummælenda og norrænir list-
fræðingar og gagnrýnendur voru
meðal þeirra sem tóku þátt í umræð-
um.
Sýningin er opin alla daga nema
þriðjudaga frá kl. 11 til 17. Fimmtu-
daga er opið til kl. 21. Síðasti sýning-
ardagur er 22. desember. Frítt er í
hafnfirsk söfn í boði Glitnis.