Fréttablaðið - 13.10.2007, Page 66
Hver er fyrsta minningin þín? Hún er úr bæjar-
læknum sem rann við hús okkar á Seyðisfirði.
Ég hlýt að hafa verið 3-4 ára og var þar að leik
niður með læk þegar minkur birtist mér. Pabbi
mætti fljúgandi „át off nóver“ galvaskur og
lagði til atlögu við minkinn, mér til mikillar
skelfingar. Miklu seinna eignaðist ég tvö kvik-
indi, afbrigði af minkum, sem gæludýr, þannig
að þessi reynsla kenndi mér ekki að hræðast
minka sérstaklega. Ég á líka ljóslifandi minn-
ingu frá æskuárunum á Seyðisfirði þegar
hljómsveitin The Mamas & The Papas gistu
heima hjá okkur í nokkra daga og brölluðum ég
og Mama Cass margt saman. Það var ekki fyrr
en ég var kominn á þrítugsaldur sem ég komst
að því að þetta hafði verið ímyndun í öll þessi ár
og The Mamas & The Papas hafði ég aldrei
hitt.
Ef það væri gerð kvikmynd um ævi þína, hver
ætti að leika þig? Mickey Rourke.
Ef þú gætir valið þrjár hljómsveitir, lifandi eða
dauðar, til að spila á Organ, hverjar myndir þú
velja? Þeyr, Fugazi og Fleetwood Mac.
Ef þú værir ekki að vinna, hvernig myndir þú
eyða deginum? Ég veit það ekki. Bara veit það
ekki …
Hver er versta vinna sem þú hefur nokkurn
tíma unnið við? Ég vann eitt sinn til styttri tíma
í bílaþvottastöð, svona færibandsstöð, þar sem
ég þurrkaði bíla inni í því sem verður best lýst
sem risavöxnum hárblásara, sirka 60 bíla á
klukkustund. Ég hef aldrei upplifað annan eins
varaþurrk. Annars vann ég líka í nokkra daga
sem krakki í Miklagarði við að blása upp
blöðrur fyrir einhverja tilboðsviku og eftir þrjá
tíma af blæstri var ég orðinn blár í framan og lá
við yfirliði. Það var fyrst þá sem mér var bent
á helíumkút sem mér hafði verið fenginn í verk-
ið.
Fylltu í eyðuna: Það er eitthvað gruggugt við …
þennan gamla góða Villa. Hver hefur ekki séð
vhs-myndina Good Old Willy Hunting?
Hefurðu einhvern tíma birst á skjánum? Já, í
viðtali á PoppTíví með grímu fyrir andlitinu,
sem Ragnar Hansson hafði gert fyrir vídeó
fyrir Kimono, og hárkollu á hausnum. Ég og
Alex vinur minn hræddum líftóruna úr starfs-
fólki stöðvarinnar enda mættum við í smink
með grímurnar og neituðum að taka þær niður.
Stöðin var að brjóta odd af oflæti sínu með því
að bjóða einhverjum skrítnum prog-rokkurum í
viðtal en við létum öllum illum látum. Ég get
svarið það að liðið var skíthrætt.
Hvað veldur þér mestum áhyggjum? Gegndar-
laust dráp á saklausu fólki um allan heim. Ég
naga á mér neglurnar á fréttatímanum og velti
fyrir mér hvenær röðin komi að mér.
Hvað, að þínu mati, er kynþokkafyllsti klæðn-
aður sem kona getur klæðst? Sumarkjóll úr
bómull. Grrrr …
Gerir fólk grín að þér fyrir eitthvað sérstakt?
Það er helst gert grín að mér fyrir frekar glopp-
ótt minni. Ég á það til að segja sömu manneskj-
unni einhverja sögu tvisvar eða gleyma því á
fimm mínútum að ég hafi sagt eitthvað og segi
það því aftur. Svo hefur verið gert grín að mér
fyrir að stíga léttan dans þegar Kimono spilar á
tónleikum, og hef ég því lagt niður þá iðju.
Hvort er betra að gefa eða þiggja? Ég myndi
segja að mér finnst bara bæði betra. Ég fíla
samt alveg fínt að þiggja.
Hvaða frasa ofnotar þú? „Einmitt, fattarðu? og
þokkalega. „Shot of Bruchatti“ og „All CAPS!“
koma líka sterkir inn.“
Ef þú værir að fara á grímuball, í hvað myndir
þú fara? Í sundskýlu páfans.
Hvaða núlifandi manneskju hatar þú og hvers
vegna? Ég trúi ekki á hatur og vil meina að
manneskja sem hatar sé yfirleitt verri en sú
sem hún hatar. En Dick Cheney og George W.
Bush skora hátt á óvildarlistanum. Björn Ingi
framsóknarmaður fer líka óstjórnlega í taug-
arnar á mér. Sér hann enginn leggja drullu-
ólöglega uppi á gangstétt þegar hann er að
mæta á fund í Framsóknarhúsinu í fréttatíman-
um? Come on!
Ef þú gætir stýrt framtíð þinni, hvað sæir þú
fyrir þér í þremur setningum?
Eftir að ég hef lokið mér af við að gera Organ
að lifandi goðsögn í skemmtanalífinu myndi ég
snúa mér að óhjákvæmilegri heimsfrægð Kim-
ono. Í kjölfarið myndi ég redda þessum heims-
friði sem allir eru að tala um, taka á móti Nób-
elsverðlaunum og verða fyrsti trúleysinginn
sem kjörinn verður páfi. Frá Vatíkaninu myndi
ég svo eyða ævikvöldinu í að leysa upp öll trú-
arbrögð heimsins til að tryggja eilífan heims-
frið og setja svo sjálfan mig af sem páfa og
verða þar með síðasti páfinn.
Hefurðu einhvern tímann lent í ógurlegri
hættu? Svo sannarlega, nokkrum sinnum. Að
horfa á bíl koma akandi á 90 km hraða inn í bíl-
sætið þitt er viðburður sem fær þig til að fara
snögglega yfir helstu vonbrigði lífsins, og
spyrna fótum svo ærlega í gólfið. Svo sneri ég
gamla Volvonum mínum í nokkra hringi í snjó-
byl á hraðbraut í New Jersey og rétt sleikti
hornið á 18 hjóla trukk. Æðislegt. Það kostaði
buxnaskipti á næstu bensínstöð.
Hvað er það versta sem einhver hefur nokkurn
tímann sagt við þig? „Eitthvað fleira?“
Hvaða bók er á náttborðinu? Sjálfsævisaga
Davids Lee Roth; Crazy From The Heat. Þetta
er önnur lesning, nota bene.
Drykkurinn? Vodka, tónik og latte með vanillu-
bragði.
Facebook eða MySpace? Gimme some space
and get off my face!
Heldurðu að Britney eigi afturkvæmt?
Bíddu, er hún hótelerfinginn eða poppstirnið
nærbuxnalausa? Eða eru þær sama manneskj-
an? Hver var spurningin?
Hvaða kvikmynd getur þú horft á aftur og aftur
og aftur?
Barfly með Mickey Rourke og Faye Dunaway
eftir handriti Charles Bukowskis. Ótrúlega
heiðarleg mynd.
Hver er syndsamlegasta nautnin þín? Þýskt
súkkulaðikex. Þeir skilja þetta sem vilja.
Hvaða lag ætti að spila í jarðarförinni þinni?
Landslide með Fleetwood Mac. Ég myndi
syngja með úr kistunni.
Hvað er á döfinni hjá þér í október? Flottir tón-
leikar eins og Skakkamanage, Motion Boys,
Ólöf Arnalds vs. Ólafur Arnalds og svo á Ice-
land Airwaves eftir að heimta mikla orku. Að
mála eldhúsið heima er alveg inni í myndinni
líka.
Ætla að verða síðasti páfinn
Tónleikastaðurinn Organ hefur slegið rækilega í gegn enda mikil þörf fyrir slíkan stað í hjarta borgar-
innar. Staðarhaldari, Gylfi Blöndal, sem jafnframt er gítarleikari í rokksveitinni Kimono, er nú í óða
önn að undirbúa stífa Iceland Airwaves-dagskrá í næstu viku. Gylfi var tekinn í yfirheyrslu helgarinnar.