Fréttablaðið - 16.10.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 16.10.2007, Blaðsíða 2
Friðrik, verður þú klár í slaginn fyrir næsta leik? Karlmaður á þrítugs- aldri hefur verið dæmdur í hér- aðsdómi í sex mánaða óskilorðs- bundið fangelsi, til ævilangar sviptingar ökuréttinda og til greiðslu nær 500 þúsunda króna í málskostnað. Maðurinn var ákærður fyrir margítrekuð umferðarlagabrot og ofsaakstur. Hann var jafnframt ákærður fyrir akstur undir áhrif- um fíkniefna og án ökuréttinda. Í það skiptið var hann á stolnum bíl og endaði ökuferðin á ljósastaur í Sandgerði. Maðurinn á að baki langan brotaferil. Hann rauf skilorð með brotum sínum nú. Hálfs árs fang- elsi og svipting Málshöfðun Svandísar Svavarsdóttir, oddvita VG, gegn Orkuveitu Reykjavíkur um lögmæti eigenda- fundar Orkuveit- unnar var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Ragnar H. Hall lögmaður er staddur erlendis en fulltrúi hans lagði fram gögn í málinu og hefur Orkuveitan nú frest til að svara með greinargerð. Málið fær flýtimeðferð hjá héraðsdómi en Ragnar segir erfitt að giska á hversu langan tíma það taki, fyrr en hann sjái greinargerð Orkuveitu. „En þetta gengur hratt fyrir sig, nokkrar vikur.“ Þingfest í gær Karlmaður hefur verið sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að nefbrjóta fyrrverandi sambýliskonu sína. Málsatvik voru þau að maðurinn fór í heimsókn til vinar síns. Þar var fyrir fyrrver- andi kærasta gestsins uppi í rúmi húsráðanda. Mennirnir ruku saman og bárust slagsmál- in inn í herbergið. Gesturinn sló fyrrum sambýliskonuna í andlitið með fyrrgreindum afleiðingum. Hann hlaut þriggja ára fangelsisdóm á síðasta ári fyrir nauðgun. Niðurstaða dómsins var sú að refsing ákærða hefði ekki orðið þyngri en nauðgunardómurinn, þótt bæði málin hefðu verið dæmd saman. Manninum var því ekki gerð sérstök refsing nú. Nefbraut fyrr- um kærustu Vladimír Pútín hélt í gær ótrauður til Írans, þrátt fyrir fréttir um að þar ætli sér hugsan- lega einhverjir illvirkjar að ráða hann af dögum. „Auðvitað fer ég til Írans,“ sagði hann á blaða- mannafundi í Þýskalandi í gær eftir að hann hafði rætt þar við Angelu Merkel kanslara. „Ef ég hlustaði alltaf á allar hótanir og varnaðarorð leyniþjónustunnar þá myndi ég aldrei fara að heiman.“ Þau Pútín og Merkel ræddu bæði málefni Írans og deilur um Kosovo-hérað, en Merkel lét að mestu eiga sig að gagnrýna mannréttindaástandið í Rússlandi. „Samstarf okkar er ólgandi af lífi,“ sagði Merkel um tengsl Rússlands og Þýskalands, og Pútín tók undir þau orð. Í Íran ætlar Pútín að hitta Mahmoud Ahmadin- ejad forseta og taka þátt í ráðstefnu Kaspíahafs- ríkja. Á Vesturlöndum er beðið eftir því hvað Pútín hyggst gera varðandi kjarnorkuvinnslu Írana. Rússar hafa ekki tekið undir kröfur Bandaríkja- manna um að Sameinuðu þjóðirnar samþykki harðari refsiaðgerðir gegn Íran. Rússar hafa þess í stað hjálpað Írönum að byggja kjarnaofn, en hafa reyndar frestað þeim framkvæmdum og hvatt Írana til að fara að kröfum um alþjóðlegt eftirlit með kjarnorkuáætlun sinni. 32 ára gamall karlmaður lést á Landspítalanum eftir bifhjóla- slys í gærdag. Slysið varð með þeim hætti að maðurinn missti stjórn á bifhjóli sínu í beygju á gatnamótum Bláfjallavegar og Krýsuvíkurvegar. Hann var fluttur á Landspítalann á fjórða tímanum en var úrskurðaður látinn skömmu eftir komuna þangað. Þetta er tíunda banaslysið í umferðinni það sem af er þessu ári. Karlmaður lést eftir útafakstur „Við þurfum að slökkva þá elda sem brenna heitast,“ segir Margrét Sverris- dóttir, verðandi forseti borgar- stjórnar, spurð um framtíð Reykjavíkur- flugvallar og samgöngumið- stöðvar þar. Mál Orkuveit- unnar gangi fyrir hjá nýjum meirihluta og ekki hafi verið samið um flug- vallarmál enn sem komið er. „En ég vil hafa flugvöllinn í Reykjavík. Það er búið að tryggja að hann verði í Vatnsmýrinni til 2016, þannig að ég sé ekki að það verði gerðar neinar grundvallar- breytingar á þessu kjörtímabili,“ segir Margrét. Málefni OR ganga fyrir „Ertu tilbúinn til að vitja þíns skerfs af milljarðatekjum ver- aldarvefsins?“ Á þessa leið hljómar ein af fullyrðingum fyrirtækisins StoresOnline.com sem hefur sent fjölda auglýsinga inn á íslensk heimili. Fyrirtækið býður fólki upp á frían málsverð og fyrirlestur á Hótel Sögu næsta mánudag og þriðjudag en þar vill það kenna fólki að græða á netverslunum. Svipuð bréf bárust Íslendingum fyrir um tveimur árum og var fólki þá gert að greiða staðfestingar- gjald að sögn lögreglu en enginn fundur var haldinn þar sem fulltrú- ar fyrirtækisins létu aldrei sjá sig. Hótel Saga segir þessa aðila þó þegar hafa greitt fyrir salinn og að fyrirlesarar séu þegar mættir. Þær fregnir fengust frá Ríkislögreglu- stjóra að fyrirspurnir um fyrirtæk- ið hefðu borist en málið hefði ekki enn verið kannað. Samkvæmt upplýsingum neyt- endasíðunnar Ripoffreport.com, sem rekin er af einkaaðilum sem hvetja fólk til að tilkynna þar um fyrirtæki sem ekki standa við sölu- skilmála, hafa 351 manns kvartað yfir StoresOnline.com. Kvartanirn- ar snúa að kaupum á hugbúnaði og má finna frásagnir fólks sem segist hafa tapað háum fjárhæðum eftir viðskipti við fyrirtækið. Á ripoffreport.com kemur þó einnig fram að eftirgrennslan blaðamanna síðunnar hafi leitt í ljós að fyrirtækið hafi sýnt vilja til að bæta sig. Netfyrirtæki lofar auðæfum Stjórnarformenn Orku- veitu Reykjavíkur og Reykjavík Energy Invest (REI) segja Vil- hjálm Þ. Vilhjálmsson borgarstjóra hafa vitað um tuttugu ára samning Orkuveitunnar og REI tíu dögum fyrir stjórnarfund þar sem samn- ingurinn var samþykktur. Vilhjálmur hefur sagst ekki hafa vitað að því fyrirfram að samhliða samruna REI og Geysis Green Energy hafi verið ákvæði um að í tuttugu ár hefði REI forgang að verkefnum sem Orkuveitan aflar í útlöndum. Það er meðal annars í tilefni þessa sem þeir Bjarni Ármannsson, stjórnarformaður REI, Haukur Leósson, stjórnarfor- maður Orkuveitunnar og Hjörleif- ur Kvaran, forstjóri Orkuveitunn- ar sendu frá sér í gær greinargerð um atburðarásina í málinu. Þar kemur fram að Haukur og Bjarni hafi hitt borgarstjórann á löngum fundi á heimili hans og farið yfir minnisblað sem síðan var lagt til grundvallar endanlegum samningi. Í einum lið minnisblaðsins er rætt um aðgang REI að þekkingu, starfs- fólki og vörumerki Orkuveitunnar og að Orkuveitan beini öllum verk- efnum utan Íslands til REI. „Samn- ingur um slíkt sé til tuttugu ára,“ stendur í minnisblaðinu. Fundur- inn var 23. september en stjórnar- fundur í Orkuveitunni var síðan 3. október. „Við sátum yfir þessu í nokkra klukkutíma og fórum vandlega yfir málið. Þetta er á kjarnyrtri íslensku og það á ekki að leika nokkur vafi á því hvað var við átt,“ segir Bjarni sem kveðst hafa skilið eftir eintak af minnisblaðinu heima hjá Vil- hjálmi að fundinum loknum. Þessu harðneitar Vilhjálmur. „Ég minnist þess ekki að þetta blað hafi verið skilið eftir á mínu heim- ili og ég hef enga ástæðu til að vera að fara með rangt mál í þessu. Aldrei var talað um það í mín eyru að þetta fyrirtæki fengi einkarétt til þess að veita aðgang að okkar þjónustu og sérfræðiþekkingu,“ segir Vilhjálmur. „Þetta er mér óskiljanlegt. Ég sat á fundi með Vilhjálmi og Hauki Leósyni þar sem við fórum yfir minnisblaðið og skildi það eftir á heimili hans sunnudaginn 23. sept- ember,“ ítrekar Bjarni. „Ég er algerlega gáttaður en er svo sem hættur að kippa mér upp í þessu máli yfir viðbrögðum manna við staðreyndum sem við þeim blasa.“ Borgarstjóri þverneitar frásögn formanns REI Stjórnarformenn Orkuveitunnar og REI segist hafa gefið Vilhjálmi Þ. Vilhjálms- syni borgarstjóra langa kynningu um sameiningu REI og Geysis Green Energy og afhent honum minnisblað þar sem getið er um samning fyrirtækjanna til 20 ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.