Fréttablaðið - 16.10.2007, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 16.10.2007, Blaðsíða 56
Enskukunnátta Íslendinga kemur fyrst og fremst úr afþreyingar- menningu. Eftir að hafa fermst, kyngt oblátu og messuvíni, tók ég utan af gjöfunum sem ég fékk í til- efni dagsins. Mér er minnisstæð gleðin sem gagntók mig yfir nýju græjunum, en svo voru hljómflutn- ingstæki kölluð í þá daga. Eftir að hafa sett tækið í samband varð að láta reyna á hljómgæðin. Geisla- diskar voru á þessum tíma fremur nýmóðins og stóð valið því aðeins á milli söngkonunnar Mariuh Carey eða rapparanna í Cypress Hill. Þeir síðarnefndu urðu fyrir valinu og ómuðu því lögin af geisladisknum Black Sunday í fermingarveislu minni; á fögrum apríldegi á æsku- heimili mínu í Leirár- og Melasveit. og haf skildu á milli veruleika nýfermdrar sveitastúlk- unnar og listamannanna af Grátvið- arhæð sem sungu af sannfæringu um hversu mikið þeir nytu hass- vímu. Ég lét þó ekki á neinu bera og þegar enginn sá til íslenskaði ég textana með hjálp orðabókar. Mörg orðin var þó ekki að finna í henni. Ég leitaði því aðstoðar hjá banda- rískum ættingja. Sá gekk í rúskinns- jakka í bandarísku fánalitunum og gortaði af stöðu sinni í samtökum bandarískra skotvopnaeiganda. Taldi ég hann kjörinn til að leiða mig inn í heim glæpona Ameríku. Kan- inn hristi höfuðið hins vegar forviða þegar ég leyfði honum að heyra; sagði að svona ensku talaði fólk ekki á Flórída. Rann þá upp fyrir mér að til eru margar tegundir ensku. Íslendingar skilja ensku í afþreyingarmenningu Kana nokkuð vel og þykir umræðan um að enska verði notuð í íslenska viðskiptageir- anum lítið mál. Stundum hef ég velt fyrir mér hvort allir, nema ég, séu altalandi á viðskiptaensku athafna- manna. En ég hef vissar grunsemd- ir um að flest fólk sé í sömu sporum og ég, dauðhrætt um að upp komist að það skilji ekki allar tegundir tungumálsins alþjóðlega. skrifað var undir samning þess efnis að í tuttugu ár gæti Orku- veita Reykjavíkur ekki veitt sér- fræðiaðstoð á erlendri grund nema í gegnum REI, hefur líklega flottræf- ilshátturinn ráðið því að ákveðið var að hafa þetta mikilvæga plagg á ensku, þótt aðeins væru Íslendingar á fundinum. Alþjóða- og enskuvæð- ing þykir hipp og kúl en fólk ætti ekki að fara fram úr sér. Þegar samningsmenn skrifuðu undir plaggið án þess að vita hvað í því fælist hljóta þeir að hafa vonað að Bjarni Ármannsson áttaði sig ekki á því að þeir hefðu ekki hugmynd um hvað þeir væru að gera. Væru alveg „insane in the brain,“ svo vitnað sé til áðurnefndra rappara. Sjúkir í sinni H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 0 7 -1 8 0 9 * M .v . 1 00 k m b la nd að an a ks tu r HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi SkodaOctavia TDI Ímyndaðu þér Afl og hagkvæmni • ESP stöðugleikakerfi og spólvörn • aksturstölva • tengi fyrir iPod • sex hátalarar • hanskahólf með kælibúnaði • sex loftpúðar Það sem oftast er aukabúnaður er staðalbúnaður í þessum glæsilega bíl. Það ríkir mikill friður og sátt á þeim heimilum sem eiga Skoda Octavia TDI. Dísilvélin er í senn aflmikil og eyðslugrönn, með aðeins 4,9 lítra eyðslu á hverja hundrað kílómetra. Octavia TDI er fáanlegur beinskiptur, sjálfskiptur og með sítengdu aldrifi. • hraðastillir (cruise control) • þokuljós í framstuðara • armpúði milli sæta • hiti í sætum og speglum • ISOFIX barnabílstólafestingar • hæðarstillanleg sæti Álfelgur og heilsársdekk fylgja, takmarkað magn!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.