Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.10.2007, Qupperneq 43

Fréttablaðið - 16.10.2007, Qupperneq 43
Tónlistardagar Dómkirkjunnar verða haldnir í 26. skipti í ár og standa frá 17. október til 10. nóv- ember. Haldnir verða fernir tón- leikar og að vanda verður hátíðar- messa á kirkjuvígsludegi Dómkirkjunnar sunnudaginn 28. október. Tilgangur tónlistardag- anna er að stuðla að eflingu kirkju- tónlistar og auðga sönghefð kirkj- unnar. Fyrstu tónleikarnir verða í Dómkirkjunni á morgun kl. 20 en þá leikur Matthias Grünert á orgel kirkjunnar. Grünert er kantor eða tónlistarstjóri Frúarkirkjunnar í Dresden sem var endurreist og vígð á nýjan leik í ársbyrjun 2005. Þar stjórnar hann 120 manna blönduðum kór og 30 manna kammerkór, auk þess að leika á orgelið. Fyrir orgelleik sinn hefur hann hlotið margvíslega viður- kenningu og verðlaun víða um heim, þar á meðal alþjóðaverðlaun kirkjutónlistarfólks árið 2000. Heimsókn hans verður því að telj- ast viðburður í íslensku tónlistar- lífi. Þess má geta að Dómkórnum hefur verið boðið að syngja í Frú- arkirkjunni næsta vor. Sú hefð hefur fylgt Tónlistar- dögum Dómkirkjunnar frá upp- hafi að Dómkórinn hefur pantað tónverk frá íslensku eða erlendu tónskáldi og frumflutt það á Tón- listardögum. Í ár er það ungt tón- skáld, Þóra Marteinsdóttir, sem hefur samið tónverkið Missa Brevis og verður það frumflutt á tónleikum í Dómkirkjunni laugar- daginn 27. október kl. 16. Dóm- kórinn endurflytur verk Þóru í útvarpsmessu daginn eftir frum- flutninginn kl. 11. Laugardaginn 3. nóvember er röðin komin að því að heiðra Jón Þórarinsson tónskáld sem varð níræður í september. Tónleikarnir fara fram í Dómkirkjunni en á þeim syngur Dómkórinn nokkur sálmalög eftir Jón og kammerkór- inn Hljómeyki og Kór Langholts- kirkju syngja einnig sem gestir Dómkórsins. Lokatónleikar Tónlistardaga Dómkirkjunnar verða svo í Krists- kirkju í Landakoti laugardaginn 10. nóvember. Þar flytur Dómkór- inn nokkrar mótettur, þær elstu eru frá barokktímanum á 16. og 17. öld en sú yngsta var frumflutt árið 1994. Tónlistardagar Dóm- kirkjunnar í 26. sinn Ljósmynd af tveimur rússnesk-um lögreglumönnum sem kyss-ast í skógi vöxnu vetrarlandslagi hefur valdið þó nokkrum usla í rússnesku menningarlífi. Ljósmyndin er verk listahóps- ins Bláu nefin, sem vildi með henni votta þekktu verki eftir graffarann Banksy virðingu sína. Myndin hefur verið til sýnis undanfarið í Tretyakov- listasafninu í Moskvu. Safnið stendur að sýningu á rússneskri samtímalist í París í vikunni en menningarmálaráðherra Rúss- lands, Alexander Sokolov, hefur ákveðið að myndin umdeilda fái ekki að vera með. „Birtist þessi mynd í París mun hún eingöngu kalla skömm yfir rússneska menningu. Því er ótækt að senda þetta klám til Parísar,“ sagði ráðherrann spurður um ákvörðun sína. Ráðherrann setti annað verk eftir blánefjahópinn einnig í far- bann, en það er mynd sem sýnir Vladimír Pútín, George W. Bush og Osama bin Laden hoppa um í hjónarúmi á nærfötunum einum klæða. Listamennirnir eru að vonum ekki ánægðir með ákvörðun ráð- herrans. „Ríkisafskipti af menn- ingarlífi og listsköpun í Rúss- landi eru að komast á sama stig og var undir stjórn Krústsjevs,“ sagði Alexander Shaburov sem er annar tveggja listamanna í Bláu nefjunum. Ljósmyndinni af lögreglu- mönnunum var ætlað að vera draumsýn um umburðarlyndan og ástríkan heim. „Ef tekið er til- lit til þess að verkið hefur verið bannfært af ríkinu er klárt að draumsýnin er ekki við það að rætast,“ sagði Shaburov. Koss í farbann Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur, í samvinnu við táknmálsfræði við Háskóla Íslands, stendur fyrir fyrirlestri á morgun kl. 16 í stofu 225 í aðalbyggingu Háskólans. Þar fjallar Russel Aldersson um hvort íslenskt táknmál hafi þróast út frá dönsku táknmáli. Hann leit- ast meðal annars við að skilgreina hvort íslenskt táknmál sé mál- lýska dansks táknmáls eða sjálf- stætt tungumál. Íslenskt táknmál er talið eiga rætur að rekja til dansks tákn- máls þar sem lengi tíðkaðist að senda íslensk heyrnarlaus börn til menntunar í Danmörku og því hafa lengi verið mikil samskipti á milli heyrnarlausra í löndunum. Staða táknmálsins hefur þó breyst töluvert eftir að skóli fyrir heyrn- arlausa var stofnaður á Íslandi 1906. Þar að auki hefur málið þró- ast um árin meðal heyrnarlausra á Íslandi sem er frekar lítill en afar samstæður hópur. Íslenskt táknmál er móðurmál um 300 Íslendinga og er stór hluti af menningu heyrnarlausra hérlend- is. Russel Aldersson, sem er sjálf- stætt starfandi táknmálstúlkur og kennari, byggir fyrirlesturinn á mastersritgerð sinni frá Birkbeck College í London. Rannsókn hans á þessum tveimur táknmálum er fyrsti samanburðurinn sem á þeim hefur verið gerður og mun hann í fyrirlestrinum lýsa aðferða- fræði sinni og niðurstöðum. Dönsk mállýska? Tríó Vadims Fedor- ov leikur á tónleik- um í Gerðubergi annað kvöld kl. 21. Tríóið skipa Vadim Fedorov á harmon- iku, Gunnar Hilmars- son á gítar og Leifur Gunnarsson á kontra- bassa. Efnisskrá tón- leikanna er fjölbreytt en á meðal þess sem þar má heyra verður frönsk valssveifla í bland við heimstónlist og djass. Vadim Fedorov er fæddur í Pétursborg í Rúss- landi árið 1969. Hann var aðeins 6 ára þegar hann byrj- aði að læra á harmon- iku og stundaði fram- haldsnám bæði í Rússlandi og Þýska- landi. Miðasala á tónleikana fer fram við inn- ganginn og er miða- verð 1000 kr. Húsið opnar kl. 20 og býðst tónleika- gestum þá leiðsögn um sýning- una Handverkshefð í hönnun. Nikkutónleikar Íslenskt stjórnborð Íslenskar leiðbeiningar Stórt hurðarop 20 ára ending Eirvík kynnir sportlínuna frá Miele AFSLÁTTUR 30% Miele gæði ÞVOTTAVÉL frá kr. 99.900 Vinningar verða afhendir hjá BT Sm áralind. Kópavogi. M eð því að taka þátt ertu kom inn í SM S klúbb. 99 kr/skeytið. SMS LEIKUR 9. HVER VINNUR! SENDU SMS JA GLF Á 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ BÍÓMIÐA! VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, DVD MYNDIR, TÖLVULEIKIR OG MARGT FLEIRA! Fru ms ýnd 12 . ok tób er

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.