Fréttablaðið - 16.10.2007, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 16.10.2007, Blaðsíða 26
Málgagn Landssambands hestamannafélaga Útgefandi: Landssamband hestamannafélaga Heimilisfang: Íþróttamiðstöðin, Engjavegi 6, 104 Reykjavík Netfang: lh@isisport.is Sími: 514-4030 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jens Einarsson Netfang: jenseinars@simnet.is Sími: 862-7898 Auglýsingar: Fréttablaðið/Bjarni Þór Sigurðsson sími: 512-5435 gsm. 822-5062 HELSTU SAMSTARFSAÐILAR LH ERU: lh hestar ÍÞRÓTT • MENNING • LÍFSSTÍLL 16. OKTÓBER 2007 ÞRIÐJUDAGURlh hestar2 Eitt af þeim málum sem liggja þungt á félögum innan Landssambands hestamannafélaga vítt og breitt um landið eru skipulagsmál. Í bæjarfélögum sækir íbúða-byggð hart að útivistarsvæðum hestamanna og þarf jafnvel að flytja heilu hesthúsahverfin vegna ágangs hennar. Stór umferðarmannvirki hafa jafnframt verið að sækja á og eru dæmi um að þurft hafi að rýma eða flytja hesthúsahverfi vegna byggingar þeirra. Hestamenn vítt og breitt um landið þurfa að standa við bakið hver á öðrum og miðla reynslu af skipulagsmálum sín á milli. Inn á borð LH hafa komið nokkrar beiðnir frá félögum um aðstoð í skipulagsmálum og hafa samtökin leitast við að aðstoða þau eftir bestu getu. Í ört stækkandi íþrótt megum við ekki sofna á verðinum hvað varðar umhverfi okkar. Því hvet ég alla hestamenn til að vera vel vakandi yfir skipulagsmálum í sínum bæjar- og sveitarfélögum og fylgjast með breytingum á skipulagi því betur sjá augu en auga. Ógnirnar sem hestamenn eiga við að etja eru ekki einung- is íbúðabyggð og umferðarmannvirki. Aðrar íþróttir eru farn- ar að sækja á svæðin okkar af mikilli hörku. Að öllu jöfnu ætti það að vera af hinu góða að margar íþróttir sameinuðust um útiveru á einu svæði. En þar sem hesturinn er flóttadýr og flýr það sem hann hræðist geta orðið slys við óvæntar utan- aðkomandi aðstæður. Því er hinn mikli ágangur vélknúinna ökutækja á reiðvegum landsins ekki af hinu góða. Reiðveg- ir eru gerðir til útreiða en ekki til aksturs ökutækja af neinu tagi. Liggja þeir margir hverjir undir skemmdum um land allt sama hvort um er að ræða í þéttbýli eða ekki. Að lokum vil ég hvetja alla hestamenn og einnig þá sem stunda aðra útiveru á svæðum hestamanna til að sýna hver öðrum tillitsemi. Hestamannafélagið Gustur hefur leitað eftir samstarfi við LH um gerð bæklings um hestamennsku fyrir al- menning, Hestamennska á Íslandi, og hefur heitið 1,5 milljónum króna til verkefnisins ef af verður. Bæklingurinn á að vera til upplýsingar fyrir almenn- ing í landinu og að auki vera leiðbeinandi fyrir ýmsa aðila svo sem skipulagsyfirvöld, lögreglu og sjúkra- liða og vera kennsluefni og leiðbeinandi fræðsluefni fyrir skóla og ökuskóla. Einnig fyrir þá sem eru nýir í hestamennskunni. Bæklingurinn á einnig að auka öryggi hestamanna. Ennfremur hefur Gustur veitt LH styrk upp á 500 þúsund krónur til að vinna að öryggismálum hesta- manna. Ákveðið var að veita styrkinn í framhaldi af því að síðasta ársþing LH skipaði sérstaka öryggis- nefnd sem þegar hefur hafið markvisst starf. Bjarnleifur Bjarnleifsson, formaður Gusts, segir að Landssamband hestamannafélaga hafi stutt dyggilega við bakið á Gusturum þegar ljóst varð að Glaðheim- ar yrðu að víkja. „Þetta er tilraun okkar í Gusti til að endurgjalda þann stuðning,“ segir Bjarnleifur. Það þrengir að hestamönnum Maríanna Gunnarsdóttir, gjaldkeri Landssambands hestamannafélaga. Æskulýðsráðstefna Landssam- bands hestamannafélaga var haldin 6. október síðastliðinn. Um fimmtíu æskulýðsfulltrúar frá hestamannafélögum um allt land sóttu ráðstefnuna. Meginverkefni æskulýðsráð- stefnunnar var að móta innihald og undirbúa handbók fyrir æsku- lýðsfulltrúa sem verður vistuð á heimasíðu LH, www.lhhestar.is. Einnig voru fluttir áhugaverðir fyrirlestrar, meðal annars um áhrif íþróttaiðkunar á börn og unglinga. HANDBÓKIN BRÝNASTA VERKEFNIÐ „Það var fyrst og fremst ánægju- legt hve ráðstefnan var vel sótt. Að fá staðfestingu á því hversu margir eru ennþá tilbúnir til að leggja á sig fórnfúst sjálfboða- liðastarf fyrir börnin okkar og þar með hestamenn framtíðar- innar,“ segir Helga B. Helgadóttir sem er formaður æskulýðsnefnd- ar LH og starfar í hestamanna- félaginu Fáki. „Ráðstefnan var nú haldin í fyrsta sinn eftir nokkurra ára hlé og engin spurning að ástæða er til að halda hana með skemmra og reglulegra millibili. Það komu fram margar góðar hugmyndir varðandi handbók fyrir æskulýðsfulltrúa. Ég tel mjög brýnt að koma þessari hand- bók út sem fyrst, en hún er hugs- uð sem eins konar gagnabanki fyrir þá sem starfa að æskulýðs- málum. Þar verður að finna allar upplýsingar um þá vinnu sem er í gangi á hverjum tíma og leiðbein- ingar fyrir þá sem eru að byrja. Því miður hefur það oft viljað brenna við að fólk hefur hætt í félagsmálum og tekið þekking- una og reynsluna með sér.“ MEGUM EKKI MISSA GLEÐINA „Viðar Halldórsson, lektor við Há- skólann í Reykjavík, flutti mjög áhugavert erindi um íþróttir barna og unglinga og hlutverk for- eldra og forráðamanna í keppni,“ heldur Helga áfram. „Þar kom fram að of mikill þrýstingur frá foreldrum hefur neikvæð áhrif á árangur barna. Rannsóknir sýna að þeir sem ná bestum árangri eru þeir sem hafa mestu ástríð- una. Líka að íþróttiðkun hefur jákvæð áhrif: Líkamleg, sálræn og félagsleg. Krakkar í íþróttum hafa sterkari sjálfsmynd. Viðar spurði einnig: Hverjum á að hrósa? Barninu sem þarf ekki að leggja sig fram en vinnur verð- laun, eða barninu sem leggur sig mikið fram og vinnur ekki verð- laun. Hestamennskan er bæði keppnisíþrótt og tómstundagam- an og þannig á það að vera. En við megum ekki missa gleðina og leikinn út, keppnin má ekki verða of hörð. Á meðal hugmynda sem fram komu í vinnuhópum á æskulýðs- ráðstefnunni var hugmynd um að koma á eins konar sumarbúð- um fyrir börn og unglinga í hesta- mennsku. Þar verði lögð áhersla á leiki og samveru með öðrum börnum — og hestinum.“ ÞAKKIR TIL ROSEMARIE „Að lokum vil ég, fyrir hönd æskulýðsnefndarinnar, færa Rosemarie Þorleifsdóttur kærar þakkir fyrir allt sem hún hefur gert fyrir æskufólk í hesta- mennsku á löngum og farsælum ferli í æskulýðsmálum innan LH og FEIF,“ segir Helga, en Rosem- arie var heiðruð á ráðstefnunni fyrir framlag sitt til æskulýðs- mála þar sem hún hefur starfað ötullega á þeim vettvangi í fjölda ára. „Hún er frumkvöðull sem hefur lagt hestamannahreyfing- unni ómetanlegt lið, ekki bara hér heima, heldur í öllum þeim lönd- um sem eiga aðild að FEIF.“ Æskulýðsráðstefna LH fór fram með ágætum Frá vinstri: Andrea Þorvaldsdóttir, Helga B. Helgadóttir, Sóley Margeirsdóttir og Sigríður Birgisdóttir, allar í æskulýðsnefnd LH, Sigrún Ögmundsdóttir, ráðstefnustjóri og skrifstofustjóri LH, Rosemarie B. Þorleifsdóttir æskulýðsfrömuður Þorvarður Helgason, æskulýðsnefnd LH, og Regína Gunnarsdóttir, verkefnis- og markaðsstjóri LH. MYND/JENS EINARSSON Maður er aldrei of öruggur, ekki einu sinni með mömmu. Vissara að vera með hjálm. MYND/JENS EINARSSON Gustur veitir LH styrk Bergur Már Hallgrímsson, for- maður Freyfaxa, og Guðröður Ágústsson, formaður Hrossa- ræktarsamtaka Austurlands, hafa stofnað fyrirtæki um innflutn- ing á hestakerrum og stíuinnrétt- ingum frá Karlslund í Danmörku. Fyrirtækið heitir Austar ehf. og er starfsemin þegar komin í full- an gang. „Ég flutti inn tvær kerrur frá Karlslund fyrir nokkrum árum og líkaði þær vel. Verðið var einn- ig mjög hagstætt,“ segir Bergur Már. „Í sumar keyptum við svo inn- réttingar frá þeim í stóðhesta- húsið á Stekkhólma og Guðröður keypti einnig stíur í hesthúsið hjá sér. Þetta eru sterkar og góðar inn- réttingar og verðið töluvert lægra en gengur og gerist. Við teljum að þessar vörur eigi fullt erindi á ís- lenskan markað og erum mjög bjartsýnir,“ segir Bergur. Austar á Austurlandi Austar ehf. flytur inn hestakerrur og stíuinnréttingar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.