Fréttablaðið - 16.10.2007, Blaðsíða 54
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Garðurinn við Klapparstíg er
með frábæran mat. Þeir heita á
ensku Ecstacy´s Heart-Garden
og veitingahús með nafn eins
og það getur ekki verið annað
en stöngin inn. Þetta er svolítið
jógatengdur staður og voða
heilsusamlegur og góður.“
Meira en eitt þúsund manns hefur
verið boðið í glæsilega opnunar-
veislu Hilton Reykjavík Nordica-
hótelsins í dag. Saga Film ætlar að
skapa ævintýralegan blæ í
veislunni þar sem eldfjöll, jöklar
og hverir verða áberandi. Kokkar
frá veitingastaðnum Vox munu
jafnframt sjá um að elda dýrindis-
mat ofan í gestina.
„Þetta verður skemmtilegt partí
þar sem við ætlum að leyfa gest-
unum að upplifa þetta alþjóðlega
umhverfi sem við vinnum í,“ segir
Ingólfur Haraldsson hótelstjóri.
„Þetta verður þannig séð ekkert of
formlegt heldur meira bara
gaman. Við erum að sýna okkur og
leyfa fólkinu að sýna sig.“
Yoko Ono var einn af fyrstu
gestunum á nýja Hilton-hótelinu
þegar hún var stödd
hérlendis á dögun-
um. Það var einmitt
á Amsterdam
Hilton sem hún og
John Lennon
héldu fyrstu rúm-
mótmælin gegn
stríðinu í Víetnam.
„Hún er einn af okkar
fastagestum,“ segir
Ingólfur sem leyfði Ono vitaskuld
að gista í einni af svítunum.
Fyrsta Hilton-hótelið var opnað
í Texas árið 1919. Stofnandi hótel-
keðjunnar, Conrad Hilton, var
langafi Parísar Hilton og afi henn-
ar, Barron Hilton, er enn í stjórn
Hilton-keðjunnar. Alls eru Hilton-
hótelin um heim allan orðin tæp-
lega fimm hundruð talsins og
hefur Ísland nú bæst í hópinn.
„Við höfum verið að vinna í
því undanfarna mánuði
eða ár að koma þeim til
Íslands. Þetta er viður-
kenning á því sem við
erum að gera og
sýnir að við erum á
þessum alþjóðlega
staðli,“ segir Ingólf-
ur.
Þúsund manns í Hilton-veislu
Friðgeir Bergsteinsson, sem hefur verið
aðstoðarmaður og rótari hljómsveitarinnar
Skítamórals síðustu ár, hlaut glaðning á
dögunum, þegar liðsmenn sveitarinnar
hjálpuðu honum að taka bílpróf með fjár-
styrk. „Hann hefur verið okkur innan
handar síðustu ár og aðstoðað okkur við
hitt og þetta,“ sagði Gunnar Ólason,
liðsmaður Skítamórals, og neitar
því hlæjandi að hljómsveitin hafi
þar með verið að kaupa sér
einkabílstjóra. „Nei, nei, nei,
alls ekki. Hann átti þetta bara
svo sannarlega skilið,“
sagði Gunnar.
Friðgeir, sem er tuttugu og tveggja
ára gamall, var að vonum afar
ánægður með stuðninginn þegar
Fréttablaðið náði tali af honum,
skömmu eftir verklega prófið síð-
astliðinn föstudag. „Þetta er nátt-
úrulega mjög vel þegið, enda er
þetta svo rándýrt nám að það
hálfa væri nóg. Ég ætla að launa
þeim þetta einhvern tíma
fljótlega,“ sagði Friðgeir,
sem er nemi í matreiðslu.
„Ég læt námið alltaf
ganga fyrir, og strákarn-
ir vita það,“ sagði hann
og hló við.
Friðgeir, sem segir
það alls ekki verra að
bíða með að taka bíl-
prófið, kvaðst ekki
vera í þann mund að kaupa sér bíl. „Ég reikna
samt með að ég fái bíl til að keyra, mamma á
einn gamlan sem ég get örugglega fengið að
keyra þangað til að hann er útbrunninn,“ sagði
Friðgeir, sem kann Skítamóral bestu þakkir.
„Þetta eru frábærir strákar,“ sagði hann.
Fékk styrk frá Skítamóral
„Ég ætla nú ekkert að erfa þetta
við dagskrárstjórann en þegar
þetta var kynnt fyrir mér var
þetta ekki undankeppni fyrir Eur-
ovision,“ segir Magnús Eiríksson,
einn þátttakenda í skemmtiþætt-
inum Laugardagslögin í Sjónvarp-
inu.
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að sumir lagahöfundanna
sem sömdu lög fyrir skemmtiþátt-
inn hafi ekki gert sér grein fyrir
því að þeir væru að taka þátt í for-
keppni Eurovision og að þeir hefðu
ekki fallist á að vera með á þeim
forsendum. Fréttablaðið ræddi við
nokkra af lagahöfundunum í gær
og tóku þeir flestir undir athuga-
semdir Magnúsar en fengust hins
vegar ekki til að tjá sig um málið.
Heimildir blaðsins herma að
minnsta kosti einn lagahöfund-
anna hafi íhugað að hætta við þátt-
töku í keppninni, en síðan horfið
frá því.
„Ég var nú ekkert á þeim bux-
unum að semja fyrir Eurovision
og hefði varla nennt því. Kannski
bara sent inn eitt lag. Enda bera
lagasmíðar mínar í þessari keppni
þess merki að lögin voru nú ekki
hugsuð fyrir Eurovision,“ bætir
Magnús við. Hann segir jafnframt
að þegar falast hafi verið eftir
hans framlagi hafi þetta átt að
vera skemmtiþáttur en rúsínan í
pylsuendanum væri sú að eitt lag-
anna gæti orðið Eurovision-fram-
lag þjóðarinnar. Magnús óttast þó
ekki að verða Eurovision að bráð.
„Nei, það hlýtur að koma eitthvað
„júróvisjónlegra“ lag fram heldur
en mitt,“ segir hann.
Þórhallur Gunnarsson, dag-
skrárstjóri RÚV, vísar því alfarið
á bug að lagahöfundar hafi verið
plataðir í Eurovision. „Ég taldi
mig hafa gert skýra grein fyrir
því að þetta væri ferlið í keppn-
inni og sú hugmynd hefur ekkert
breyst frá því snemma í vor,“
segir Þórhallur í samtali við
Fréttablaðið. „Hins vegar er alveg
ljóst að við erum að fá 33 ný
íslensk lög og áherslan er ekki
Eurovision heldur fyrst og fremst
að sjá þá grósku sem er í íslensku
tónlistarlífi,“ bætir Þórhallur við.
Hann segir jafnframt að höfund-
arnir níu hafi skrifað undir samn-
ing um að þeir skuldbindi sig til að
semja þrjú lög fyrir söngvakeppni
Sjónvarpsins.
ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is
Rafstöðvar
Bensín- og díselrafstöðvar
í stærðum 2,5 kW -4,2 kW.
HAGSTÆTT VERÐ