Fréttablaðið - 16.10.2007, Blaðsíða 25
Hlutafélag hefur verið stofnað utan um stóð-
hestinn tilvonandi, Hákon, sem er aðeins
nokkurra mánaða.
Stofnað hefur verið hlutafélag um stóðhestinn Hákon
frá Ragnheiðarstöðum, sem er undan hinni frægu
Hátíð frá Úlfsstöðum og Álfi frá Selfossi, einum
eftirsóttasta stóðhesti landsins um þessar mundir.
Telst það til nokkurra tíðinda vegna þess að Hákon
er aðeins nokkurra mánaða gamall, folald síðan í vor.
Boðnir voru til sölu 30 hlutir í folaldinu, sem seldust
upp á augabragði og fengu færri en vildu.
Skapast hefur sú venja að stóðhestum er skipt í
sjötíu hluti, sextíu eru til eignar og gefa rétt á einum
folatolli á ári, en tíu folatollar eru seldir á frjálsum
markaði og standa undir rekstri hestsins.
Verð á hlut fékkst ekki uppgefið en ekki er óvar-
legt að áætla að hann kosti á bilinu 200 til 300 þús-
und krónur. Miðað við sextíu söluhluti er folaldið því
metið á 12 til 18 milljónir króna.
Hátíð var ein af skærustu stjörnum á Landsmóti
hestamanna 2006 á Vindheimamelum. Hún var sýnd í
5-vetra flokki og fékk 8,62 fyrir kosti, sem er mjög há
hæfileikaeinkunn hjá klárhrossi. Þar af fékk Hátíð 10
fyrir tölt, 9,5 fyrir fegurð í reið og 9,0 fyrir brokk
og vilja/geðslag. Álfur sló í gegn á sama móti, einn-
ig klárhestur með tölti. Hann var sýndur í flokki 4-
vetra stóðhesta og fékk 9,0 fyrir tölt, brokk og fegurð
í reið, og 9,5 fyrir vilja/geðslag.
Á fundi sem boðað var til vegna stofnunar félags-
ins um Hákon var Erlingur Erlingsson fenginn til að
lýsa foreldrum folaldsins, en hann tamdi og sýndi
bæði Álf og Hátíð. Sagði hann aðal þeirra beggja vera
mjög jákvæða lund og vilja ásamt miklu og sjálf-
gerðu tölti, sem einkenndist af mýkt og rými.
Fyrstu eigendur og ræktendur Hákons eru Helgi
Jón Harðarson, Hannes Sigurjónsson og Inga Christ-
ina Campos.
Ætla þau að eiga áfram 30 hluti í hestinum, að
minnsta kosti fyrst um sinn.
Stórt félag um lítinn hest
Hákon frá Ragnheiðarstöðum nokkura daga gamall. MYND/ HANNES SIGURJÓNSSON.
Jóna Fanney Friðriksdóttir, bæj-
arstjóri á Blönduósi, hefur verið
ráðin framkvæmdastjóri Lands-
móts ehf. en næsta landsmót
hestamanna verður haldið á
Gaddstaðaflötum við Hellu í júlí
á næsta ári.
Jóna Fanney nam fjölmiðla-
fræði í Berlín og hefur starfað við
blaðamennsku og stjórnunarstörf.
Hún hefur ekki áður unnið fyrir
hestamannahreyfinguna en stund-
ar hestamennsku í frístundum.
„Ég er ekki þaulkunnug fé-
lagsmálum hestamanna af eigin
raun, en maðurinn minn, Hjört-
ur Einarsson, hefur lengi verið í
hrossarækt og hestamennsku og
var meðal annars í framkvæmda-
nefnd landsmótsins á Vindheima-
melum 2002. Þannig að ég er ekki
alveg græn í þessu, hef fylgst með
af hliðarlínunni.
Ég hef hins vegar allgóða
reynslu af félags- og stjórnun-
arstörfum á öðrum sviðum og
vona að ég geti komið með ferska
vinda inn í landsmótshaldið. Ég
geri mér þó alveg grein fyrir að
það þarf ekki að finna hjólið upp
á nýtt. Landsmótin eru í nokkuð
fastmótuðum farvegi,“ segir Jóna
Fanney.
Framkvæmdastjóri LM08
Jóna Fanney er nýráðinn framkvæmdastjóri Landsmóts ehf. MYND/JENS EINARSSON
Einn fegursti gæðingur landsins,
Hrímnir frá Hrafnagili, er fallinn,
32 vetra. Hann var heygður undir
húsvegg í garðinum hjá eiganda
sínum, Birni Sveinssyni á Varma-
læk.
Hrímnir kom fyrst fram 5 vetra
árið 1980 á Vindheimamelum, knapi
þá Marjolyn Tiepen. Ári síðar varð
Björn Sveinsson Íslandsmeistari á
honum í tölti. Á Landsmóti hesta-
manna á Vindheimamelum árið
1982 varð Hrímnir svo efstur í B-
flokki gæðinga, eigandinn þá knapi.
Eftir það tók Björn þá ákvörðun að
Hrímnir skyldi ekki koma fram í
keppni framar. Hann stóð við það
og skipaði hestinum slíkt öndvegi
að sómi er að.
Hrímnir var alla jafna notað-
ur til reiðar og kom stöku sinnum
fram við hátíðleg tækifæri. Bar
hann jafnan af öðrum hestum og
gladdi augu þeirra sem á horfðu.
Hrímnir fallinn
Hrímnir frá Hrafnagili, knapi Björn
Sveinsson. MYND/EIRÍKUR JÓNSSON
Tölvudeild Bændasamtaka Íslands,
BÍ, og tölvunefnd LH vinna nú að
frekari þróun á mótakerfinu Kappa
og Mótafeng. Nokkrar villur hafa
komið upp í Kappa og eins hefur
verið misbrestur á að félög hafi skil-
að upplýsingum inn í Mótafeng.
Jón Baldur Lorange, forstöðu-
maður tölvudeildar BÍ, segir að
opnast hafi spennandi möguleik-
ar með nýrri útgáfu af „þróun-
artólinu“ sem Kappi var hannað-
ur í, sem muni gera hann notenda-
vænni. Einnig þurfi að efla þjálfun
notenda í forritinu því fylgja þurfi
í þaula reglum FIPO.
Marko Mazeland, sportforseti
Félags eigenda íslenskra hesta er-
lendis, FEIF, hefur lagt til að Ís-
lendingar taki í notkun mótaforrit-
ið IceTest, sem hann er höfundur
að og er í notað í öllum FEIF-lönd-
unum nema Íslandi. Hann segir
forritið einfalt í notkun, það sé
frítt og öllum frjálst að nota það.
IceTest heldur utan um svokallað-
an WorldRanking lista sem vistað-
ur er á www.feif.org.
Jón Baldur segir það ekki sitt
hlutverk að ákveða hvaða mótafor-
rit sé notað en það sé sín skoðun að
aðeins eigi að nota eitt mótakerfi í
öllum FEIF-löndunum.
Endurbætur á
Kappa
Enginn af þeim tuttugu keppnis-
hestum sem fóru í lyfjapróf á
Heimsmeistaramótinu 2007 reynd-
ist vera með ólögleg lyf í blóði
eða vefjum. Er þessi niðurstaða
mjög jákvæð fyrir ímynd íslenska
hestsins, hreysti og heilbrigði. Til
samanburðar má geta þess að 30
prósent sýna úr keppnishestum
á Ólympíuleikum eru talin þurfa
frekari skoðunar við hverju sinni.
Allir edrú
Íslenskir keppnishestar eru ekki á lyfj-
um. Hér eru hinn frækni garpur Jarl frá
Miðkrika og knapi hans Stian Petersen
sem urðu heimsmeistarar í tölti og
fjórgangi á HM07. MYND/ÖRN KARLSSON
Hestamenn í Sóta á Álftanesi hafa
verið uggandi vegna reiðstíga í
hinu nýja miðbæjarskipulagi og
þéttingar byggðar á Álftanesi.
Einnig er tilfinnanlegur skortur á
nýjum lóðum undir hesthús.
Sigurður Magnússon bæjar-
stjóri og Bjarni Einarsson bæjar-
tæknifræðingur mættu á fund hjá
Sóta vegna málsins og er skemmst
frá því að segja að þeir voru já-
kvæðir í garð hestamanna enda
eitt af slagorðum Sveitarfélagsins
Álftaness: SVEIT Í BORG! Stefnt
er að því að leggja nýja reiðstíga
í námunda við hesthúsahverfið
og tengja þá við þá sem fyrir eru.
Steinunn Guðbjörnsdóttir, formað-
ur Sóta, segir hestamenn á Álfta-
nesi bjartsýna og þakkláta eftir
fundinn. Enginn vilji fara þaðan í
önnur hesthúsahverfi.
Nýir reiðstígar
á Álftanesi
„Það er mikill skortur á góðu tam-
ingafólki og það er slegist um það.
Launin í faginu hafa heldur aldrei
verið eins há og þar með launa-
kröfurnar,“ segir Hafliði Halldórs-
son, hrossabóndi og framkvæmda-
stjóri á Ármóti á Rangárvöllum.
„Því miður virðist sú vakning í
hestatamningum og þjálfun, sem
átt hefur sér stað undanfarin ár, og
hið mikla framboð á námi í hesta-
mennsku ekki skila sér nægilega í
fleiri og betri tamningamönnum.
Það eru að sjálfsögðu ýmsir sem
eru mjög færir, en of marga skort-
ir þá reynslu sem menn fá aðeins
með því að vinna við alls konar að-
stæður í lengri tíma.
Tamningar eru erfið vinna og
það þarf kjark og fimi, þor og þol
til verða góður í faginu. Bestu
tamningamennirnir eru þeir sem
hafa gamla skólann plús þá fag-
þekkingu sem hefur bæst við á síð-
ustu árum. Framboðið af þeim er
því miður bara allt of lítið.“
Slegist um
tamningafólk
ÍÞRÓTT • MENNING • LÍFSSTÍLL
lh hestar
ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2007
Bóndinn í Miðkoti
ræktar heilleg hross BLS. 4