Fréttablaðið - 16.10.2007, Blaðsíða 48
Rafmagnaða andrúmsloftið milli
Vesturlandabúa og araba í Mið-
Austurlöndum er að verða næsta
„æðið“ í Bandaríkjunum. Óvinir í
hverju horni, hugmyndafræðilegar
andstæður, grá svæði og hið stór-
fenglega umhverfi Arabalandanna
eru uppskrift að góðri spennumynd.
Kröfurnar til The Kingdom voru
því nokkuð miklar og ekki skemmir
fyrir að heilinn á bak við myndina
er snillingurinn Michael Mann sem
kann þá list manna best að byggja
upp eftirvæntingu áhorfenda fyrir
uppgjörið mikla að hætti Heat og
Miami Vice.
Blóðugt hryðjuverk er framið á
svæði bandarísks olíurisa í Sádi-
Arabíu með þeim afleiðingum að
yfir hundrað manns falla, þar á
meðal tveir FBI-fulltrúar. Sérsveit
undir stjórn hins kokhrausta Ron-
alds Fleury þyrstir í hefnd en er
fljótlega stöðvuð af dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna. Nærvera
fleiri vestrænna þegna sé ekki til
þess fallin að róa öldurnar. En
Fleury sættir sig ekki við að lúta í
lægra haldi fyrir skrifræðinu og
pólitíkinni og fer sínar eigin leiðir
til að koma sínu fólki austur um haf
og hafa hendur í hári ofbeldismann-
anna. Þegar þangað er komið hafa
að sjálfsögðu margir horn í síðu
hinnar al-amerísku FBI-manna og
vilja koma þeim fyrir kattarnef
sem fyrst.
Leikstjórinn Peter Berg virðist
því miður ekki alveg valda verkefn-
inu og hefði betur átt að láta Mann
um stjórnartaumana. Handritið er
klaufalegt og samræðurnar á köfl-
um stirðbusalegar og þá virðast
vinsældirnar á glansblöðunum hafa
blindað heilbrigða skynsemi því
gæðaleikarinn Chris Cooper er lát-
inn mæta afgangi á kostnað hinnar
ákaflega leiðinlegu Jennifer Gar-
ner. Jason Bateman er síðan í einsk-
ismannslandi alla myndina. Jamie
Foxx stendur hins vegar fyrir sínu
og virðist á góðri leið með að taka
við keflinu af Denzel Washington.
The Kingdom líður fyrst og
fremst fyrir skort á tilfinningu
fyrir viðfangsefninu. Togstreitan
og tortryggnin sem ætti að svífa
yfir vötnum er víðs fjarri og mynd-
in nær fyrst hámarki þegar skot-
vopnin eru munduð í upphafi og
myndarlok. The Kingdom er því
nokkur vonbrigði en eflaust eiga
fleiri slíkar myndir eftir að flæða
yfir og vonandi hittir einhver þeirra
í mark, fyrr eða síðar.
Púðurskot í Sádi-Arabíu
Boys in a Band frá Fær-
eyjum spilar á vegum G!
tónlistarhátíðarinnar á Air-
waves í ár. Steinþór Helgi
Arnsteinsson hitti sveitina
á hinni fyrrnefndu G! hátíð
í sumar og spjallaði við
Færeyingana snjöllu.
Boys in a Band þykir eitt helsta
stolt færeysku tónlistarsenunnar
nú um stundir en þessi fimm manna
sveit spilar æsilegt, grípandi og gít-
ardrifið popp í anda til dæmis The
Hives og Franz Ferdinand. Þrír
meðlimir sveitarinnar eru frá Götu,
einmitt þar sem G! hátíðin fer fram,
en hinir tveir meðlimir sveitarinn-
ar eru úr nágrannabæjum. Boys in
a Band spila á Airwaves vegna sér-
staks skiptisamnings á milli Airwa-
ves og G! en Ultra Mega Techno-
bandið Stefán spilaði á G! fyrr á
þessu ári í tengslum við skipti-
samninginn.
„Við höfum þekkst í mörg ár og
sumir okkar höfum verið bestu vinir
frá því við fæddumst. Síðan hugsuð-
um við bara: „Hey, þarna er snilld-
arnafn sem ekki er frátekið, Boys in
a Band,“ og við urðum einfaldlega
að stofna hljómsveit,“ útskýrir
Pætur, söngvari sveitarinnar, um
upphaf sveitarinnar. Þegar þeir eru
síðan spurðir um áhrifavaldana
stendur ekki á svarinu, „Bob Dylan
og svo framvegis.“ Þetta þarf ekki
að vera flókið. „Við hljómum bara
eins Bob Dylan hermikrákur.“ Þegar
ég síðan andmæli þeirri staðhæf-
ingu eftir að hafa séð tónleika Boys
in a Band segjast piltarnar einfald-
lega ekkert vita hvað í ósköpunum
þeir séu þá að gera.
Meðlimum Boys in a Band finnst
fínt að vera frá Færeyjum þótt þeir
viðurkenni að þeir þurfi að sanna
miklu meira en sveitir frá flestum
öðrum löndum. „Það koma ekki
margir þekktir tónlistarmenn frá
Færeyjum, fyrir utan kannski Teit
og Eivøru. G! er samt búið að breyta
miklu og hjálpar okkur mikið. Við
höfum fengið að spila nokkuð fyrir
utan Færeyjar og erum til dæmis
komnir með gaur í Danmörku sem
sér um að bóka tónleika fyrir
okkur.“
Tónleikar Boys in a Band er líka
heljarinnar skemmtun og fjöl-
breytnin hjá sveitinni og í tónlist-
inni mikil. „Já, eins og þú segir þá
erum við mjög ólíkir innbyrðis og
þá verður tónlistargrauturinn okkar
skemmtilegri.“
Boys in a Band spilar í Lídó á
fimmtudagskvöld á Airwaves og
einnig í Norræna húsinu sama dag.
Eru allir hvattir til þess að mæta og
hlýða á þessa prúðu pilta.
Safnplatan Iceland Airwaves ‘07
er komin út. Platan inniheldur 22
lög frá innlendum sem erlendum
flytjendum sem allir koma fram
á Iceland Airwaves-hátíðinni í
ár. Á meðal þeirra eru Bloc
Party, Sprengjuhöllin, Chromeo,
Of Montreal, Motion Boys, !!!,
Deerhoof, múm og GusGus.
Platan verður fáanleg í plötu-
verslunum, á völdum tónleika-
stöðum yfir hátíðina sjálfa og í
Airwaves Info Center-miðstöð-
inni sem verður í Hressingar-
skálanum. Airwaves-hátíðin
hefst á miðvikudag og stendur
yfir til sunnudags.
Airwaves-safnplata
Sofðu einu sinni hjá Chuck
og næsti maður sem þú hittir
er ást lífs þíns.
Brjálæðislega fyndin mynd!
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
14
16
12
16
14
16
14
14
GOOD LUCK CHUCK kl. 8 - 10
THE KINGDOM kl. 8 - 10.10
HALLOWEEN kl. 6
SUPERBAD kl. 6
14
16
16
12
12
12
14
16
14
4 MONTHS ENSKUR TEXTI kl. 5.40 - 8 - 10.15
EDGE OF HEAVEN ENSKUR TEXTI kl. 5.40 - 8 - 10.20
ALEXANDRA ENSKUR TEXTI kl. 10.15
HALLOWEEN kl. 8 - 10.30
VEÐRAMÓT kl. 5.40 - 8
GOOD LUCK CHUCK kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10
GOOD LUCK CHUCK LÚXUS kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10
HALLOWEEN kl. 8 - 10.25
SUPERBAD kl. 5.30 - 8 - 10.30
SHOOT´EM UP kl. 10.20
HÁKARLABEITA 600 KR. kl. 3.50 - 6
HAIRSPRAY kl. 5.30 - 8
BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl. 4
THE SIMPSONS MOVIE ÍSL. TAL kl. 3.45 300 kr. Síð. sýningar
- I. Þ. Film.is
- J. I. S. Film.is
“Skotheld skemmtun”
- T.S.K., Blaðið
“H EIMA ER BEST”
- MBL
“ ALG JÖRLEGA EINSTÖK”
- FBL
“VÁ”
- B LAÐIÐ
“ME Ð GÆSA HÚÐ AF
HRIFNIN GU”
- DV
“SI GUR ROS HAVE
REINVENTED THE
ROCK FILM”
- Q
“SO BEAUTI FUL
ITS HYPNOTIC”
- EMPIRE
Dóri DNA - DV
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU
LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST
Bölvun
eða
blessun?
GOOD LUCK CHUCK kl. 5.40 - 8 - 10.20
THE KINGDOM kl. 5.40 - 8 - 10.20
HEIMA - SIGURRÓS kl. 6 - 8 - 10
VEÐRAMÓT kl. 5.40 - 8 - 10.20
- L.I.B. Topp5.is
STARDUST ER MÖGNUÐ ÆVINTÝRAMYND
STÚTFULL AF GÖLDRUM, HÚMOR OG HASAR.
ROBERT DE NIRO OG MICHELLE PFEIFFER Í FRÁBÆRRI MYND SEM VAR
TEKINN UPP Á ÍSLANDI OG ALLIR ÆTTU AÐ HAFA GAMAN AF
www.SAMbio.is 575 8900i i
AKUREYRI
ÁLFABAKKA
THE BRAVE ONE kl. 5:30 - 8D - 10:30D 16
THE BRAVE ONE kl. 8 - 10:30
STARDUST kl. 5:30D - 8 - 10:30 10
STARDUST kl. 5:30
NO RESERVATIONS kl. 8 - 10:30 L
SUPER BAD kl. 8 - 10:30 12
CHUCK AND LARRY kl. 8 12
MR. BROOKS kl. 10:30 16
BRATZ kl. 5:30 L
ASTRÓPÍÁ kl. 6 L
RATATOUILLE M/- ÍSL TAL kl. 5:30 L
THE BRAVE ONE kl. 8 - 10:20 16
STARDUST kl. 8 -10:20 10
SELFOSSI
HAIRSPRAY kl. 8 L
BRATZ kl. 8 L
3:10 TO YUMA kl. 10:20 16
CHUCK AND LARRY kl. 10:20 12
KEFLAVÍK
GOOD LUCK CHUCK kl. 8 - 10 L
HAIRSPRAY kl. 10:20 L
STARDUST kl. 8 7
Hugljúf rómantísk gamanmynd
Leiðin að hjartanu er í
gegnum ljúfengan mat!
KRINGLUNNI
THE KINGDOM kl. 5:40 - 8 - 10:20 10
THE BRAVE ONE 5:40D - 8D-10:20D 16
STARDUST kl. 5:30D 10
NO RESERVATIONS kl. 10 L
ASTRÓPÍÁ kl. 8 L
JIS - FILM.IS
- bara lúxus
Sími: 553 2075
THE KINGDOM kl. 5.45, 8 og 10.15 16
3:10 TO YUMA kl. 5.30, 8 og 10.30 16
CHUCK & LARRY kl. 5.45, 8 og 10.15 12
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
www.laugarasbio.is - Miðasala á