Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.10.2007, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 16.10.2007, Qupperneq 4
 Götuhópur fíkni- efnadeildar lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu tók fólk með amfetamín, e-töflur, kókaín og marijúana um nýliðna helgi í hefðbundnu eftirliti. Mest var tekið af e-töflum og amfetamíni. Höfð voru afskipti af tíu til tólf manns. Flestir þeirra sem komu við sögu voru ungmenni undir tvítugu, flestir fæddir 1989, en sá elsti er fæddur 1979. Eftirlit lögreglunnar fór fram á veitingahúsum og á götum borg- arinnar. Efnin sem fundust voru einkum í neysluskömmtum. Mesta magnið sem tekið var í þessu eftirliti reyndist vera í bíl sem lögreglan stöðvaði í austur- borginni. Í honum voru tveir ungir menn, um 18 ára, sem voru með í fórum sínum um 20 e-töflur og eitthvað af marijúana falið innan klæða. Ökumaðurinn var ofan í kaupið réttindalaus. Þá höfðu lögreglumennirnir afskipti af réttindalausum öku- mönnum, einhverjum undir áhrif- um vímuefna. Sex mál urðu til í þessu eftirliti og var gengið frá þeim á vett- vangi nema í þeim tilvikum þegar um lögbrot við akstur var að ræða. Þeir sem áttu hlut þar að máli voru færðir á lögreglustöð. „Við viljum gefa nýjum meirihluta hjá Reykjavíkurborg tækifæri til þess að fara yfir málin heildstætt áður en ákvarðanir verða teknar,“ sagði Gunnar Svarsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fulltrúi Hafnarfjarðarbæjar í stjórn Hitaveitu Suðurnesja (HS), að loknum fundi með fulltrúum helstu eigenda HS. Fulltrúar hluthafa ætla að funda aftur um miðjan nóvember. Fulltrúar Hafnarfjarðar kölluðu eftir hluthafa- fundi eftir að ljóst varð að fulltrúar Geysis Green Energy (GGE) og Reykjavík Energy Invest (REI) ákváðu að leggja hluti sína í HS inn í sameinað félag þeirra undir nafni þess síðarnefnda. „Í sumar var gert hluthafasamkomulag milli Reykjanesbæjar, Hafnarfjarðarbæjar, OR og GGE, þar sem skerpt var á því að hver hluthafi myndi halda sínu. Í ljósi þessarar tilfærslu á eignarhlut í HS fannst okkur eðlilegt að ræða þessi mál og fara yfir þau áður en ákvarðanir yrðu teknar.“ Reykjavík Energy Invest, sameinað félag GGE og REI, eignast tæpan helming í Hitaveitu Suðurnesja eftir samrunann. Ákveði Hafnarfjarðarbær að selja sinn hluta til Orkuveitunnar fer hann til REI samkvæmt sameiningarsamningnum. Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir þetta ákvæði ekki samrýmast samkomulaginu sem hluthafar gerðu með sér í sumar. „Við ræddum það á fundinum, og ég held að það hafi allir verið sammála um það, að það myndist forkaupsréttur um leið og hlutir eru að skipta um eigendur. Þess vegna er ekki hægt að gefa sér það að einn hlutur renni til annars án þess að hluthafar hafi nokkuð um það að segja,“ sagði Árni. Hann sagði alla hluthafa hafa talað fyrir því að verja hagsmuni HS. „Við fórum yfir stöðuna eins og hún er og fengum upplýsingar frá Bjarna Ármanns- syni, stjórnarformanni REI, um hvernig málið í heild horfði við forsvarsmönnum REI. Það þarf að gefa nýjum meirihluta hjá Reykjavíkurborg tíma til þess að marka sér stefnu í þessum málum og þá er afar brýnt að lagaumhverfið um orkugeirann í heild sé skýrt en það er það ekki núna.“ Í fyrrnefndu hluthafasamkomulagi er einnig gert ráð fyrir því að HS verði skipt upp í tvo hluta. Annar hlutinn snúi að veitustarfsemi og smásölu rafmagns en hinn að rekstri orkuvera og heildsölu rafmagns. Iðnaðar- og viðskiptaráðherrarnir Össur Skarphéð- insson og Björgvin G. Sigurðsson vinna nú að endurskoðun lagaumhverfis fyrir orkugeirann. Borgarmeirihlutinn skapi sér stefnu fyrst Fulltrúar hluthafa í Hitaveitu Suðurnesja funduðu um sameiningarsamning Geysis Green Energy og Reykjavík Energy Invest í gær. Þeir vilja gefa nýjum meirihluta í borginni svigrúm til að fara yfir málefni Orkuveitu Reykjavíkur. Aðeins viku eftir að skógarbjörn réðst á og drap veiðimann í Norður-Svíþjóð urðu tveir aðrir veiðimenn fyrir árás skógarbjarnar þar í landi. Fyrir árásinni urðu tveir þaulvanir elgveiðimenn, um fertugt og sextugt, er þeir voru á leið heim úr veiðiferð í Lillhärdal í Mið-Svíþjóð. Mönnunum tókst að skjóta í háls bjarnarins eftir að hann hafði sært þá með tönnum og klóm. Björninn flúði þá aftur inn í skóg. Öðrum manninum tókst að hringja á hjálp úr farsíma og þeir voru fluttir í þyrlu á sjúkrahús, að því er fram kemur í sænska Aftonbladet. Björn ræðst aft- ur á veiðimenn Haustið 2008 hefst nám á meistarastigi í heimskautarétti við Félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri. Sambærileg námsbraut er ekki í boði annars staðar í heiminum. Guðmundur Alfreðsson, þjóðréttar- fræðingur og prófessor við Háskólann í Lundi og Háskólann á Akureyri, stýrir hinni nýju námsbraut en fjöldi erlendra sérfræðinga kennir einstakar greinar, að því er segir í fréttatilkynningu. Á undirbúningsfund sem haldinn var um helgina á Akureyri mættu sérfræðingar frá tólf löndum sem láta sig málefni beggja heimskauta varða. Meistaranám í heimskautarétti Kaþólskum presti, Tommaso Stenico, var samstundis vikið úr embætti sínu í Páfagarði eftir að upptaka birtist í sjónvarpi þar sem hann sést reyna við ungan mann. Stenico segist þó ekki vera samkynhneigður heldur hafi hann bara verið að þykjast þegar myndin var tekin upp án hans vitundar. Hann segist hafa verið að sinna starfi sínu sem sálgrein- andi og „safna upplýsingum um þá sem skemma ímynd kirkjunn- ar með samkynhneigðri hegðun“. Sagðist hafa verið að þykjast Ásgeir Jónsson fjallgöngumaður náði á hæsta tind Eyjaálfu, Carstensz Pyramid, á miðvikudaginn var. Tindurinn er 4.884 metrar á hæð og er Ásgeir fyrstur Íslendinga til að komast upp á toppinn. Hann segir að það hafi verið ótrúlega sætur sigur. „Það eitt að komast að fjallinu var langt frá því að vera einfalt og síðan tóku veðurguðirnir upp á því að láta snjó kyngja niður daginn sem toppnum skyldi náð. Það er mjög sjaldgæft á þessum slóðum, að minnsta kosti í þessu magni,“ segir hann. Sigur að kom- ast á toppinn Lögmenn Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, SPRON, hafa neitað að borga viðskiptavini sparisjóðsins til baka FIT-kostnað upp á rúmlega 33 þúsund krónur og því fer mál hans fyrir dómstóla. Bankar og sparisjóðir innheimta FIT- kostnað þegar viðskiptavinir eyða umfram heimild á debet- kortareikningi sínum. Eins og greint hefur verið frá í Fréttablaðinu taldi lögmaður viðskiptavinarins, Oddgeir Einarsson héraðsdómslögmaður, sparisjóðinn hafa innheimt svokallaðan FIT-kostnað ólöglega þar sem innheimtan færi gegn ógildingarákvæðum samningar- laga. Því neita lögmenn spari- sjóðsins og því fer málið fyrir dóm. FIT-mál fer fyrir dómstóla Ungmenni tekin með eiturlyf

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.