Fréttablaðið - 16.10.2007, Side 6
Ætlar þú á Iceland Airwaves?
Finnst þér biðlaun stjórnmála-
manna of há?
Gengi Bandaríkjadals er
óvenjulágt þessa dagana, miðgengi
dalsins hjá Seðlabanka Íslands fór
niður fyrir sextíu krónur á fimmtu-
daginn var og hefur ekki verið svo
lágt frá því um miðjan júlí þegar
dalurinn fór niður í 59,34 krónur.
Hæst hefur gengið verið um ára-
mótin þegar það fór upp í 72,38
krónur. Gengið hefur að vísu sveifl-
ast nokkuð og fór upp í 69,5 í ágúst
áður en það fór lækkandi aftur.
Netverslanir hafa auglýst lágt
gengi dalsins upp á síðkastið og
hvatt þannig óbeint til innkaupa
frá Bandaríkjunum. „Um leið og
dollarinn fer í þessa tölu sem hann
er í núna finnum við fyrir verulega
auknum fyrirspurnum í tölvupósti
og síma,“ segir Hannes Strange,
viðskiptastjóri í innflutningsdeild
hjá Eimskip.
Töluverð bið er eftir plássi fyrir
bíla í skipum heim. „Í Ameríku-
skipinu okkar er biðtíminn núna
átta vikur en er venjulega þrjár til
fjórar vikur. Það er mjög eðlilegur
flutningstími,“ segir Hannes og
telur innflutning á vörum frá
Bandaríkjunum mun meiri nú en á
sama tíma í fyrra.
Björn Einarsson, framkvæmda-
stjóri TVG Zimsen, segir að mikil
aukning hafi verið í innflutningi til
landsins. „Langstærstu mánuðirn-
ir eru framundan, október og nóv-
ember eru algjörir toppar hvað það
varðar. Allt þetta ár höfum við
fundið sterka og góða aukningu,
líka milli mánaða.“
Snorri Olsen, tollstjóri í Reykja-
vík, kannast við aukningu í inn-
flutningi frá Bandaríkjunum og
telur að það sé helst í dýrum hlut-
um á borð við bíla. „Það er alveg
ljóst að gengi dollarans hefur áhrif
á innflutning, það endurspeglast í
verði vörunnar. Undanfarið höfum
við orðið mest vör við innflutning á
dýrum bílum. Í slíkum hlutum
hefur gengið meira að segja og
getur munað um hundruð þúsunda
eftir því hvert gengið er, segir
hann og bendir á að tollgengið sé
mánaðargengi, gengi síðasta dags
mánaðarins á undan. Lágt gengi nú
hafi því ekki áhrif á tollgengið
strax.
„Ef gengið heldur áfram að
lækka þá sjáum við meiri breyt-
ingu eftir næstu mánaðamót,“
segir Snorri og spyr hvort auglýs-
ingarnar séu ekki bara gott auglýs-
ingabragð. Fasti kostnaðurinn sé
hvort sem er svo mikill, afgreiðslu-
gjald og flutningskostnaður, þegar
um ódýrar vörur sé að ræða.
Bið eftir skipafrakt
lengri en venjulega
Bið eftir frakt til landsins er tvöfalt lengri en venjulega. Viðskiptastjóri segir
fyrirspurnum um bílainnflutning fjölga snarlega þegar gengi krónunnar styrk-
ist gagnvart erlendri mynt. Stærstu innflutningsmánuðirnir eru framundan.
Mikilvægt er að almenn-
ingur og alþingismenn fái upplýs-
ingar um áætlaðan heildarkostnað
við Kárahnjúkavirkjun, segir
Álfheiður Ingadóttir, þingmaður
Vinstri grænna. Hún hefur óskað
eftir því að iðnaðarráðherra flytji
Alþingi skýrslu um virkjunina.
„Ég vil fá allt upp á borðið, fá að
vita hvað þessi langstærsta fram-
kvæmd Íslandssögunnar kostar,“
segir Álfheiður. Hún segir sífellt
bætast við aukaverk og aukakostn-
aður, sem yfirleitt sé sagt vera
innan skekkjumarka.
Þá sé ákveðinn vafi á því hvaða
tölur séu lagðar til grundvallar,
hvort þar sé talað um upphaflega
kostnaðaráætlun, tæpa 100 millj-
arða króna, eða hvort talað sé um
tilboð Impregilo, sem hafi verið
talsvert undir þeirri áætlun.
Álfheiður óskar eftir því að í
skýrslu ráðherra komi fram upp-
lýsingar um alla verksamninga sem
nemi hærri fjárhæð en 10 milljörð-
um króna, og hversu mikil frávik
hafi orðið á samningunum.
Einnig verði þar að finna upplýs-
ingar um öll aukaverk, þar á meðal
viðbótarsamninga við verktaka, og
um kostnað við mótvægisaðgerðir
samkvæmt ákvörðun umhverfis-
ráðherra.
Að lokum óskar Álfheiður eftir
upplýsingum um tekjutap Lands-
virkjunar vegna dráttar á raforku-
sölu frá Kárahnjúkum, vanáætlun-
um á bótum vegna vatnsréttinda og
mögulegrar skaðabótakröfu Alcoa-
Fjarðaáls vegna tafa.
Allar upplýsingar upp á borðið
350 manns sóttu
umhverfisþing sem lauk á laugar-
daginn. Þórunn Sveinbjarnardótt-
ir umhverfisráðherra boðaði til
þingsins. Til umræðu var stefna
stjórnvalda um líffræðilega fjöl-
breytni og náttúruverndaráætlun
fyrir tímabilið 2009-2013.
Þinginu lauk með pallborðsum-
ræðum með fulltrúum allra stjórn-
málaflokka Alþingis, fulltrúum
umhverfissamtaka og Samtaka
atvinnulífsins. Fyrirlesarar fjöll-
uðu um umhverfisstarf víðs vegar
um landið, en upptökur frá þinginu
verða birtar á vef umhverfisráðu-
neytisins á næstunni.
350 manns sóttu
Umhverfisþing
ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is
Hitablásarar
Hinir einu sönnu
hitablásarar
Rauði krossinn auglýsir eftir sjálfboðaliðum til að starfa
í Konukoti sem er athvarf fyrir heimilislausar konur.
Markmið verkefnisins er að veita heimilislausum konum
húsaskjól þar sem grunnþörfum þeirra er sinnt svo engin
kona þurfi að gista götur borgarinnar eða leita nætur -
skjóls á óæskilegum forsendum.
Sjálfboðaliðar þurfa að vera orðnir 20 ára. Allir sem
sækja um koma í viðtal og undirgangast námskeið og
þjálfun áður en þeir hefja störf.
Nánari upplýsingar í síma 570 4000
og á raudikrossinn.is
er styrktaraðili átaksins
Hugo Chavez, forseti
Venesúela, söng sálma til Fidels
Castro og sagði hann eilífan föður
allra byltingarmanna í vikulegum
sjónvarpsþætti sínum á laugar-
dagskvöld.
Castro hringdi í Chavez í beinni
útsendingu og ræddu þeir saman
í klukkustund, auk þess sem
Chavez sýndi sautján mínútna
langt myndband af fundi þeirra
degi fyrr.
Chavez gaf Castro sömuleiðis
málverk, sem hann sagðist
sjálfur hafa málað þegar hann sat
í fangelsi eftir misheppnaða
byltingartilraun árið 1990 í
heimalandi sínu.
Chavez segir
Castro eilífan
Allar líkur eru á
því að Matís ohf. flytji út úr
Sjávarútvegshúsinu við Skúla-
götu, Hafrannsóknastofnun verði
flutt til milli hæða og að landbún-
aðarráðuneytið flytji síðan inn í
húsið. Viðskiptaráðuneytið mun
því flytja inn í núverandi
húsnæði landbúnaðarráðuneytis-
ins við Sölvhólsgötu á næsta ári.
Jón Þór Sturluson, aðstoðar-
maður viðskiptaráðherra, segir
að leitað hafi verið tilboða í nýtt
húsnæði en ekki gengið til
samninga og nú séu þessi tilboð
fallin úr gildi. Ekki sé ákveðið
hvenær ráðuneytið flytur.
Flytur í hús
landbúnaðar-
ráðuneytis
Fjöldauppsagnir hjúkrunarfólks munu lama
sjúkrahúsin í Finnlandi eftir fimm vikur. Tæplega
þrettán þúsund hjúkrunarfræðingar og aðrir
umönnunarstarfsmenn eru reiðubúnir að
segja upp störfum og rúmlega þrjú þúsund,
flestir starfandi á stærstu sjúkrahúsunum á
höfuðborgarsvæðinu, hafa þegar skuldbund-
ið sig til þess.
Uppsagnirnar ná til tuttugu stærstu sjúkra-
húsanna í Finnlandi og eiga að taka gildi 19.
nóvember. Þær eru liður í baráttu fyrir bætt-
um kjörum en hjúkrunarfólk hafnaði nýlega
launahækkun upp á 12,7 prósent, að sögn
finnska dagblaðsins Hufvudstadsbladet.
Hjúkrunarfræðingarnir vilja fá 24 pró-
senta launahækkun, eða sem nemur 30-50 þúsundum
króna á mánuði. Launin verða þá 188 til 205 þúsund
krónur á mánuði en vinnuveitendur segja
þau nú þegar að meðaltali um 200 þúsund, að
sögn Helsingin Sanomat.
Jaana Laitinen-Pesola, formaður samtaka
umönnunarstétta, segir að stefnt sé að því að
allir snúi aftur til vinnu þegar samkomulag
hafi náðst. Til að tryggja öllum störf snúi
allir aftur sem einn og enginn fái að byrja á
undan öðrum.
Fjöldauppsagnir væntanlegar