Fréttablaðið - 16.10.2007, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 16.10.2007, Blaðsíða 16
nær og fjær „ORÐRÉTT“ Bíllaus hugsjón Þöggun Endurspeglar flýti Hringdu í síma ef blaðið berst ekki Biðskylda þurfti að víkja og straumur var tekinn af háspennulínu þegar Þristurinn var fluttur frá Reykjavík til Keflavíkur á sunnudagskvöld. Fimm lög- regluþjónar á mótorhjólum fylgdu ellefu manna föru- neyti á vegum Þristavina- félagsins eftir krókaleiðum út úr borginni með þessa merkilegu flugvél. Flytja þurfti vélina úr geymslu- stað sínum á Reykjavíkurflugvelli vegna þess að leigusamningi Þristavinafélagsins hafði verið sagt upp, segir Tómas Dagur Helgason formaður. Því þurfti að finna vélinni nýjan samastað, sem fannst í flugskýli á Keflavíkur- flugvelli með hjálp flugvallaryfir- valda í Reykjavík. Leiðin sem Þristurinn fór í gegn- um borgina var valin gaumgæfi- lega enda ekki hægt flytja slíkt flykki undir brýr eða um þröngar götur. Frá Reykjavíkurflugvelli var Snorrabrautin keyrð endilöng, og beygt í austur inn á Sæbraut. Til að vélin lenti ekki í árekstri við ljósastaur þurfti að fjarlægja bið- skyldumerki rétt á meðan bíllinn tók beygjuna. Á Sæbrautinni var skipt um veg- arhelming og ekið öfugum megin að brúnni við Ártúnsbrekku, þar sem flutningabíllinn ók eins konar öfuga slaufu og síðan sem leið lá upp Árstúnsbrekkuna. Eftir nokkr- ar krókaleiðir, sem lágu meðal annars í gegnum Árbæinn og upp að Bláfjöllum, þar sem þurfti að taka straum af háspennulínu, komst vélin loks á Reykjanes- braut. Þaðan lá leiðin nokkuð bein til Keflavíkurflugvallar. „Þegar við vorum komnir á leið- arenda tók Björn Ingi Knútsson, flugvallarstjóri á Keflavíkurflug- velli, á móti okkur og hjálpaði ásamt starfsfólki flugvallarins við að koma vélinni inn í skýlið. Allar tímaáætlanir stóðust því við höfð- um áætlað að taka þrjár klukku- stundir í þetta,“ segir Tómas. „Ferðin gekk í raun vonum framar.“ Þristur fluttur flugvalla á milli Fjallgöngugarpurinn Þorvaldur V. Þórsson náði merkum áfanga á laugardaginn þegar hann gekk á síðasta af hundrað hæstu tindum landsins á aðeins einu ári. Þorvaldur bauð öllum áhugasömum að fylgja sér á tind Heklu, sem er 1.500 metrar, og lögðu yfir sjötíu manns af stað þrátt fyrir afleitt veður. Þorvaldur var staðráðinn í að klára verkefnið áður en hann yrði fimmtugur á þriðjudag og tókst ætlunarverkið. „Ég held að þetta sé besta afmælis- gjöf sem ég hefði getað fengið. Þetta var eiginlega afmælisgjöf sem fjölskyldan gaf mér. Hún er búin að styðja mig gífurlega og það er ótrúlegt hvað þau hafa verið þolinmóð,“ segir Þorvaldur, sem var afar ánægður með stuðninginn á lokaáfanganum. „Ég er næstum því klökkur að sjá hversu margir mættu. Mig hefði aldrei grunað þetta.“ Þorvaldur gekk alls í 550 klukkustundir til að komast á tindana hundrað og nam vegalengdin tæpum 1.400 kílómetrum. Fyrsta fjallgangan var á nýársdag þegar hann gekk upp á Tindfjöll og eftir það varð ekki aftur snúið. „Ég gerði ráð fyrir því að líkaminn myndi segja til sín, til dæmis ökklar, kálfar og hásinar, en það er furðulegt hvað líkaminn er fljótur að ná sér. Ég er þakklátur fyrir að skrokkurinn skyldi standast þetta álag,“ segir hann. Næst á dagskrá hjá Þorvaldi er að vinna úr þeim upplýsingum sem hann safnaði að sér við fjall- gönguna og hugsanlega ætlar hann að skrifa bók um ævintýrið. Með gott fólk á öllum stöðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.