Fréttablaðið - 16.10.2007, Side 37

Fréttablaðið - 16.10.2007, Side 37
[Hlutabréf] Frosti Bergsson hefur keypt Opin kerfi ehf. á 1,8 milljarða króna. Félagið var áður í sameiginlegri eigu Teymis og Handsholding og hluti af Opnum kerfum Group. Áreiðanleikakönnun vegna kaup- anna var lokið síðdegis síðasta föstudag, en frá því var greint fyrir viku að gengið hefði verið að tilboði hans í fyrirtækið. Frosti segir engrar byltingar að vænta hjá félaginu í kjölfar kaupanna. „En við horfum náttúrlega til þess að bæta rekst- urinn enn frekar og skapa okkur sér- stöðu með því að veita afburðaþjón- ustu,“ segir hann. Frosti er gamalkunnugur Opnum kerf- um enda vann hann sem kunnugt er að stofnun HP á Íslandi snemma á níunda áratug síðustu aldar, sem síðar varð að Opnum kerfum og vann þar í 20 ár. Síðla árs 2004 gerði Kögun yfirtökutilboð í Opin kerfi Group og fór undir samstæðu Teymis við skiptingu Dagsbrúnar í tvö félög undir lok síðasta árs. Frosti áréttar þó að aðkoma hans að félaginu sé önnur núna. „Ég starfa sem fjárfestir og kem að félaginu sem slíkur, en treysti stjórnendateymi félagsins fyrir daglegum rekstri. „Ég hef áður sýnt félaginu áhuga án þess að kaup gengju eftir, en núna kom upp að menn ætluðu að selja bara íslensku eininguna og hana þekki ég vel og lít á hana sem gott fjárfestingartækifæri.“ Frosti kaupir Opin kerfi Sænski bankinn SEB hefur frá og með deginum í dag aðild að hluta- bréfamarkaði íslensku kauphallar- innar. Bankinn er þegar aðili að kauphöllum OMX í Kaupmanna- höfn, Stokkhólmi og Helsinki. Út frá markaðshlutdeild er SEB stærsti hlutabréfamiðlarinn í nor- rænu kauphöllum OMX-samstæð- unnar. Hann starfar á Norður- löndunum, í Eystrasaltsríkjunum, Þýskalandi, Úkraínu og Rússlandi. „Aðild SEB ber vott um þann aukna áhuga sem íslenski markað- urinn nýtur í kjölfar sameiningar- innar við OMX. Sýnileikinn hefur aukist og erlendir aðilar sjá tæki- færin sem felast í þátttöku á íslenska markaðnum,“ segir Þórð- ur Friðjónsson, forstjóri Kauphall- ar Íslands, í tilkynningu. SEB í íslensku kauphöllinni AÐEINS 2 KALORÍUR NÝ BRAGÐTEGUND ENN BETRA BRAGÐ Haldið verður áfram formlegum viðræðum LME eignarhaldsfélags ehf., Stork N.V. og Candover. Stefnt hafði verið að lokum viðræðna um miðjan þennan mánuð, en niður- staða tefst enn um sinn. LME, sem er í eigu Eyris Invest, Landsbankans og Marels, og á rúm 43 prósent í Stork, kom í veg fyrir yfirtöku Candover á félaginu. Félögin ræða nú möguleg kaup Candover á félaginu og yfirtöku Marel á Stork Food Systems, mat- vælavinnsluvélahluta Stork. „Til- kynning um árangur viðræðna verður birt þegar það er viðeig- andi,“ segir í tilkynningu Marels til Kauphallarinnar í gær. Enn semja Stork, LME og Candover Frönsku flugvélasmiðirnir hjá Airbus afhentu asíska flugfélag- inu Singapore Airlines fyrstu A380 risaþotuna við hátíðlega athöfn í Toulouse í Frakklandi gær að við- stöddu fjölmenni. Tafir hafa orðið á afhendingunni, en hún er 18 mánuðum á eftir áætlun. A380 risaþotan er sú stærsta í heimi og getur flutt 800 farþega á tveimur hæðum. Vélanna hefur verið beðið með eftirvæntingu en ein þeirra lenti í tilraunaflugi á Keflavíkurflugvelli í apríl. Airbus afhend- ir risaþotuna

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.