Fréttablaðið - 16.10.2007, Qupperneq 40
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
Fyrir um einu og hálfu ári ákvað Þor-
valdur Víðir Þórsson, tölvufræðingur
og fjallamaður, að setja sér það mark-
mið að klífa hundrað hæstu tinda Ís-
lands áður en hann yrði fimmtug-
ur. Verkefnið hefur verið nefnt „100
hæstu“ og hefur Þorvaldur nú lokið því
af miklum dugnaði og elju.
„Ég hef verið nálægt fjallamennsku
lengi og hef meðal annars setið í stjórn
Íslenska alpaklúbbsins. Áður fyrr var
ég í frjálsum og þaðan kemur keppnis-
skapið. Ég hef líka alltaf haft gaman af
því að gera óvenjulega hluti og langaði
að gera eitthvað óvenjulegt,“ útskýrir
Þorvaldur sem hóf í kjölfarið að und-
irbúa verkefnið. Hann komst að því að
ekki var til neinn listi yfir hæstu fjöll
Íslands og hóf Þorvaldur að útbúa þann
lista. Hann hafði samband við Land-
mælingar og þeir keyrðu úr gagna-
grunni sínum alla mælipunkta sem þeir
eiga yfir 1.400 metrum. Út frá því púsl-
aðist áætlunin smátt og smátt saman.
„Ég sá að þá voru um það bil hundrað
fjöll yfir 1.400 metrum sem var viðmið-
ið og þá ákvað ég að breyta takmarkinu
úr fimmtíu fjöllum í hundrað.
Ég sá það í september á síðasta ári að
það yrði gríðarlega erfitt mál að gera
þetta og að það yrði engin leið nema að
vera með alla hnúta hnýtta,“ segir Þor-
valdur sem lét það þó ekki aftra sér
frá verkinu og skipulagði verkefnið í
þaula með tilliti til veðurfars, árstíða
og fleira.
„Mikilvægt er að fá einhvern með
sér í þessar ferðir og það er ekki gefið
að það sé alltaf einhver tilbúinn til þess
þegar manni hentar. Maður þarf samt að
halda áfram planinu alveg sama hvern-
ig ástatt er hjá öðrum því veðurspáin
er þannig að ef hún er góð þá verð-
ur maður að gjöra svo vel að fara. Ég
fór í átta eða tíu ferðir einn og var að
ganga á stöðum sem ég hefði raunveru-
lega ekki átt að vera einn á ferð þar
sem það er mjög varhugavert,“ segir
Þorvaldur sem komst oft í hann krapp-
an á ferðum sínum. Hann fór stundum
um mikil sprungusvæði en hafði alltaf
á sér gervihnattasíma sem var mikið
öryggistæki.
Eina helgina lagði Þorvaldur að baki
um 135 kílómetra á tveimur og hálf-
um sólarhring! Segir hann það vera
gott dæmi um hvað þarf í svona verk-
efni en Þorvaldur gekk tindana í frí-
tíma sínum og vann fulla vinnu þess á
milli. Þorvaldur lenti í ýmsum ævintýr-
um en þau væru efni í heila bók. Hægt
er að lesa blogg um ferðir kappans á
www.utivera.is/100haestu og einnig
eru til nákvæmar upplýsingar um allar
vegalengdir sem Þorvaldur skráði með
GPS-tæki.
Síðastliðinn laugardag gekk Þorvald-
ur á Heklu sem var lokatindurinn. Af-
mælisdeginum ætlar hann að fagna
með því að slappa loks af og njóta þess
að hafa náð takmarki sínu.
„Vandamálin og leyndar-
dómarnir gefa lífinu gildi.“
Drottning hálshöggvin
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Jóna Fanney Gunnarsdóttir
kjólameistari, Bólstaðarhlíð 41,
lést á Droplaugarstöðum þriðjudaginn 9. október.
Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn
18. október kl. 13.00.
Jón Helgason Salóme H. Magnúsdóttir
Gunnar Helgason Inga Arndís Ólafsdóttir
Sigríður Halldórsdóttir Þorbjörn Gíslason
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Birna Hafstein
er látin. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Jakob V. Hafstein
Júlíus Hafstein Erna Hauksdóttir
Áslaug B. Hafstein Ingimundur Konráðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
dóttir, systir, tengdadóttir og mágkona,
Þuríður Linda Alfreðsdóttir
Hjöllum 7, Patreksfirði,
sem lést sunnudaginn 7. október, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 18. október kl. 15.00.
Ragnar Fjeldsted
Stella Björk Fjeldsted Elmar Már Einarsson
Kristinn Fjeldsted
Alfreð Már Fjeldsted
Rakel G. Magnúsdóttir
Kristinn Fjeldsted
systkini og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Guðrún Anna Kristjánsdóttir
(Dúna), Mýrarvegi 115, Akureyri,
andaðist að morgni hins 12. október. Útförin fer fram
frá Akureyrarkirkju föstudaginn 19. október kl. 13.30.
Sigmundur Magnússon
Þórný Kristín Sigmundsdóttir
Stefanía Gerður Sigmundsdóttir Helgi Jóhannesson
Sigrún Hulda Sigmundsdóttir Finnbogi Rútur Jóhannesson
Þórir Sigmundur Þórisson Guðrún Erla Gísladóttir
Björn Þór Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
Jónasar Guðmundssonar
Langholti 20, Akureyri.
Jenný Ólöf Valsteinsdóttir
Sigurður Valur Jónasson
Birna Friðrika Jónasdóttir Ómar Valgarðsson
Valgarður Óli Jónasson Kathleen Jensen
afabörn og langafabörn.
Þorsteinn Jónsson
(Steini tangó) frá Gunnarshólma, Vestmannaeyjum,
lést á dvalarheimilinu Hjallatúni, Vík í Mýrdal,
laugardaginn 13. október.
Sveinn Þorsteinsson Hafdís Eggertsdóttir
Þorsteina Jóna Þorsteinsdóttir Antonio Losa Garcia
Elías Kristinn Þorsteinsson Valgerður Magnúsdóttir
Vilborg Þorsteinsdóttir
Þorsteinn Þorsteinsson Eva Lilja Árnadóttir
Hrefna Vestmann Þorsteinsdóttir Birgir Haraldsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
Jón Helgason
tæknifræðingur, Árskógum 6, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans, Landakoti, laugardag-
inn 13. október. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
mánudaginn 22. október kl. 15.00.
Valgerður Þorsteinsdóttir
Þorteinn A. Jónsson Martha Á. Hjálmarsdóttir
Helgi Jónsson Jónína Sturludóttir
Þórður Jónsson Jytte Fogtmann
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og
tengdamóðir,
Þórunn Elíasdóttir
Herjólfsgötu 36, áður til heimilis að
Lækjarkinn 14, Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans þann 14. október.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á kvenfélagið
Hringinn Hafnarfirði.
Yngvi Rafn Baldvinsson
Friðrik E. Yngvason Theodóra Gunnarsdóttir
Björgvin Yngvason Birna Hermannsdóttir
Stefán Yngvason Nína Leósdóttir
Yngvi Rafn Yngvason Aldís Inga Freygarðsdóttir
og fjölskyldur.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
Sigurður Guðmundsson
frá Súluholti,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 8. október sl.
Útförin fer fram frá Hraungerðiskirkju laugardaginn
20. október kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en
þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Guðrún Hjörleifsdóttir
Helgi Sigurðsson Hafdís Örvar
Hjördís Inga Sigurðardóttir Guðjón Guðvarðarson
Sigrún Sigurðardóttir Jónas Haraldsson
Guðmundur Valur Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.