Fréttablaðið - 16.10.2007, Side 50

Fréttablaðið - 16.10.2007, Side 50
Verðum erfiðir heim að sækja í vetur Íslenska landsliðið þarf að endurskipuleggja varnarleik- inn eftir útreiðina gegn Lettum á laugardag. Landsliðsþjálfarinn Eyjólfur Sverrisson á ás uppi í erminni fyrir leikinn á móti Liechtenstein annað kvöld. Vörn íslenska landsliðsins í knattspyrnu er nefnilega sterkust með Hermann Hreiðarsson. Þessu hafa margir haldið fram og sann- ast þegar tölfræði íslenska lands- liðsins í undankeppni EM er skoð- uð. Eyjólfur Sverrisson hefur notað níu varnarmenn í tíu leikj- um íslenska liðsins í undankeppn- inni og það líður lengst á milli marka mótherja liðsins þegar Hermann Hreiðarsson er í öftustu línunni. Hermann hefur misst af tveimur af síðustu fjórum lands- leikjum og í báðum hefur íslenska liðið fengið á sig fjögur mörk eða fleiri. Hermann tók út leikbann í leiknum á móti Lettum á laugar- daginn en verður sem betur fer klár í slaginn gegn Liechtenstein á morgun. Kristján Örn Sigurðsson er í öðru sæti rétt á eftir Hermanni en bæði hann og Ragnar Sigurðsson voru ofar en Hermann fyrir Letta- leikinn um síðustu helgi. Íslenska liðið hafði sem dæmi fyrir leikinn um helgina aðeins fengið á sig 2 mörk þær 180 mínútur sem Ragn- ar hafði spilað og íslenska vörnin hafði enn fremur „aðeins“ fengið á sig 6 mörk þá 451 mínútu sem Kristján hafði spilað. Ívar Ingimarsson er eini varn- armaður íslenska liðsins sem hefur spilað allar 900 mínúturnar til þessa í undankeppninni en hann er í fimmta sæti á listanum. Íslenska vörnin stóð sig mjög vel í leikjunum á móti Spáni og Norður-Írlandi og því má búast við að þeir Kristján Örn, Ragnar og Hermann spili við hlið Ívars í leiknum í Ölpunum annað kvöld. Íslenska vörnin er best með Hermann innanborðs Einn heitasti leikmaður- inn á sænska leikmannamarkaðn- um er íslenski landsliðsmaðurinn Ragnar Sigurðsson. Árbæingur- inn hefur blómstrað í sænsku deildinni og hefur verið greint frá því að stórlið á borð við ítalska félagið Roma séu að bera víurnar í Ragnar. Hefur heyrst að Roma væri til í að borga 5 milljónir evra fyrir Ragnar en það samsvarar 440 milljónum króna. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er verðmiðinn á Ragnari þessa dagana í kringum 300 millj- ónir króna en leikmenn hækka hratt í verði þegar fleiri en eitt félag berjast um hituna. Ragnar gæti þar af leiðandi vel farið á yfir 400 milljónir króna haldi hann áfram að standa sig. Uppeldisfélag Ragnars, Fylkir, fylgist grannt með gangi mála enda gæti félagið hagnast vel fari svo að Ragnar verði seldur fyrir slíkar upphæðir. Þegar Fylkir seldi Ragnar til sænska félagsins IFK Gautaborg sló það nokkuð af verðinu gegn því að það fengi 30 prósent af söluverðinu yrði Ragn- ar seldur áfram frá Gautaborg. Þetta hefur Fréttablaðið eftir áreiðanlegum heimildum. Yrði Ragnar seldur á 450 millj- ónir króna þá fengi Fylkir 135 milljónir í sinn hlut. Fari Ragnar á 350 milljónir þá fær Fylkir 105 milljónir. Þó svo að Ragnar yrði ekki seldur nema á tæplega helm- ing þess sem talað hefur verið um eða 200 milljónir þá myndi Fylkir samt græða 60 milljónir króna sem er dágóð upphæð fyrir íslenskt knattspyrnufélag. Håkan Mild, yfirmaður knatt- spyrnumála hjá IFK Gautaborg, sagði við Fréttablaðið að ekkert félag væri búið að gera formlegt tilboð í Ragnar en hann hefði þó heyrt af áhuga. „Ragnar er mjög góður leikmað- ur og í miklum metum hjá okkur. Ef hann spilar með okkur næstu tvö árin og heldur áfram að þróa sinn leik þá er ég þess fullviss að hann mun leika með stórliði í stóru deildunum. Hann er góður leik- maður en ég tel að hann eigi eftir að verða frábær leikmaður,“ sagði gamla landsliðskempan Mild við Fréttablaðið í gær. Mild vildi ekk- ert tjá sig um hversu mikið Gauta- borg vill fá fyrir Ragnar en sagði að öll tilboð yrðu skoðuð með Ragnari þá og ef þau bærust félag- inu. Arnór Guðjohnsen, umboðsmað- ur Ragnars, hefur orðið var við mikinn áhuga á Ragnari og vissi af að minnsta kosti tveim liðum sem fylgdust með honum gegn Lettum á laugardag. „Ég hef fengið töluvert af fyrir- spurnum og það er mikið verið að fylgjast með honum. Öll hans mál eru samt á byrjunarstigi en því er ekki að neita að frammistaða hans hefur vakið mikla athygli og varn- armenn með hans eiginleika eru eftirsóttir,“ sagði Arnór sem er þegar byrjaður að semja um nýjan og betri samning við Gautaborg enda kemur vel til greina að Ragn- ar leiki þar næstu tímabil. „Ragn- ar verður aldrei seldur nema fyrir rétt verð en fyrir hversu mikið hann gæti farið er erfitt að segja,“ sagði Arnór. Fylkismenn fylgjast spenntir með gangi mála hjá Ragnari Sigurðssyni, leikmanni IFK Gautaborg. Fylkir á hagsmuna að gæta enda fær félagið 30 prósent af söluverðinu selji Gautaborg leikmanninn. Það gæti skilað Fylki tugum milljóna ef ekki hundrað færi hann á yfir 300-400 milljónir króna líkt og talað er um. Emil Hallfreðsson, leikmaður Reggina og íslenska landsliðsins, hefur verið valinn í ellefu manna lið yfir bestu kaupin í ítölsku deildinni í ár, samkvæmt úttekt ítalska blaðsins La Gazzetta dello sport. Farið er eftir einkunnargjöf blaðsins þar sem Emil er með 6,43 í meðalein- kunn og er í sjöunda sæti yfir bestu nýliðana í deildinni. Emil er ekki í slæmum félagsskap í liðinu en þar er meðal annarra að finna ítalska landsliðsmanninn Vinc- enzo Laquinta hjá Juventus og rúmenska landsliðsmanninn Cristian Chivu hjá Inter. Í úrvalsliði nýliða í Serie A Mamady Sidibe og Fredi Kanoute, leikmenn landsliðs Malí í fótbolta, urðu fyrir fólskulegum árásum eftir 2-0 sigur Malí gegn Tógó í Afríkukeppninni á dögunum þegar áhangendur Tógó réðust að þeim. „Það var blóð út um allt. Mamady var laminn með barefli og hlaut ljótan skurð á olnbogann og Kanoute var laminn með belti og hlaut áverka af því. Þetta var eins og vígvöllur,“ sagði Jean-Francois Jodar, þjálfari Malí, í viðtali eftir leikinn. Þetta var eins og vígvöllur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.