Fréttablaðið - 26.10.2007, Blaðsíða 12
Fangaverðir á Litla-Hrauni hafa sent frá sér
greinargerð þar sem þeir lýsa kostum þess að stækka
við fangelsið frekar en að ráðast í að reisa fyrirhugað
fangelsi á Hólmsheiði með plássi fyrir sextíu fanga.
Þeir skora á stjórnvöld að setja stækkun Litla-Hrauns
í forgang.
Í greinargerðinni segir að aðstaða á Litla-Hrauni sé
til fyrirmyndar, þar starfi reynslumikið starfsfólk og
að svæðið sé auðvelt til byggingar. „Fangelsismála-
stofnun á góð svæði í kringum Litla-Hraun innan
öryggisgirðingar sem auðveld eru til bygginga
þannig að byggingarkostnaður verður minni en á
öðrum stöðum. […] Hægt er að selja stór og verð-
mæt byggingarsvæði sem ríkið er eigandi að á
svæðinu til að fjármagna byggingarkostnað.“
Starfsfólkið búi þar að auki flest í námunda við
fangelsið, sem sé ómetanlegt ef upp komi neyðartil-
vik. Stór hluti starfsfólks sé einungis þrjár til tíu mín-
útur á leið til vinnu. Jafnframt er lagt til að Fangelsis-
málastofnun verði færð til Árborgar. Góð reynsla sé
af flutningi Landbúnaðarstofnunar á Selfoss og víst
sé að sama yrði með Fangelsismálastofnun.
Allt starfsfólk fangelsisins skrifar undir áskorun-
ina.
Borgartúni 29 + Höfðabakka 3
Smiðjuvegi 5 + Glerárgötu Akureyri
Aðalstræti 27 Ísafirði
Sími 515 5100 + www.a4.is
Föndraðu jólin inn
með Panduro Hobby
föndurvörum
Jólatréð í stofu stendur …
Heims um ból …
Skín í rauðar skotthúfur …
Ég ætla að föndra
jólagjafirnar í ár
með Panduro Hobby
jólaföndursettum
RV Unique örtrefjaræstikerfið
- hagkvæmt, vistvænt og mannvænt
Á kynningartilboðiRV Uniqueörtrefjaræstikerfið
Bodil Fur,
sölumaður hjá
RV Unique í Danmörku
UniFlex II H Fiber ræstivagn
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Prestum Þjóðkirkjunnar
verður heimilt að staðfesta sam-
vist ef lögum um slíkt verður
breytt á Alþingi. Þetta var sam-
þykkt á Kirkjuþingi sem lauk í
Grensáskirkju í gær. Þingið
stendur þó enn við hefðbundinn
skilning á hjónabandinu sem sátt-
mála karls og konu.
„Við erum hrædd um að með
þessari ályktun
sé Þjóðkirkjan
búin að segja við
Alþingi að reyna
ekki að leggja
niður staðfesta
samvist þannig
að hjónaband
verði eini kost-
urinn. Þá er ekki
hægt að taka
þessa umræðu
aftur upp,“ segir
Hulda Guð-
mundsdóttir, guðfræðingur og
kirkjuþingsfulltrúi.
Hulda sagði í umræðum á þing-
inu að eftir að hafa hitt forsvars-
menn Samtakanna ´78 hefði hún
áttað sig á því að tillagan myndi
valda meiri sársauka en gleði.
„Við fögnum þessu skrefi en
gerum alvarlegar athugasemdir
við að kirkjan sjái sig knúna til að
ríghalda í þennan hjónabandsskiln-
ing. Þetta er orðræða mismununar
og útilokunar,“ segir Hrafnkell
Tjörvi Stefánsson, framkvæmda-
stjóri Samtakanna ´78. „Við teljum
að umræðunni um hjónabandið sé
ekki lokið. Það er ekki kirkjunnar
að gefa út einhliða yfirlýsingu um
hjónabandið, heldur er þetta sam-
félagsleg spurning.“
Kirkjuþing lagði áherslu á að
frelsi presta til að staðfesta sam-
vist verði virt. „Við göngum út frá
því að þetta sé heimildarákvæði og
gerum ekki alvarlega athugasemd
við það að prestar megi neita sam-
kynhneigðum um þjónustu að því
gefnu að þeir megi neita öðrum um
þjónustu.“
Í umræðum um staðfesta sam-
vist var sérstaklega rætt um hvort
tala ætti um vígslu staðfestrar
samvistar eða ekki og vildi biskup
ekki taka afstöðu til þess.
„Það er undarlegt að ekki sé tekið
fram hvort verið sé að meina vígslu
eða staðfestingu. Kirkjan á eftir að
svara því hvort það sé verið að
vígja staðfesta samvist eða stað-
festa samvist.“
Hjónaband einungis
fyrir karl og konu
Þjóðkirkjan hefur heimilað prestum að staðfesta samvist, fyrst allra þjóðkirkna.
Í þingsályktun sem lögð var fram á kirkjuþingi er sérstaklega tekið fram að
hjónabandið sé sáttmáli karls og konu. Þá er lögð áhersla á frelsi presta.