Fréttablaðið - 26.10.2007, Blaðsíða 77
Fyrirsætan Helena Christensen talar
um reynslu sína af fyrirsætustörf-
um í nýju viðtali við The Times. Toni
og Guy hafa nýverið sent frá sér
nýja hárvörulínu undir nafni fyrir-
sætunnar, en þær Erin O’Connor
og Jamelia hafa einnig farið í
samstarf með fyrirtækinu.
Í viðtalinu segist Helena ekki
hafa gert sér grein fyrir áhrif-
um ofurfyrirsætanna, en hún
telst oft til þess umtalaða hóps.
„Ég var bara að lifa lífinu og vinna
á hverjum degi. Það gafst enginn
tími til að taka eitt skref aftur á
bak og skoða hvað var að gerast,“
segir hún. „Ótrúlegt en satt, þá var engin
samkeppni. Við vorum bara nokkrar
stelpur á brjáluðu ferðalagi, svo ofar öllu
studdum við hver við bakið á hinum,“ segir
Helena.
Hún segir einnig frá óförum sínum á
tískupöllunum. „Þetta hljómar ekki eins og
þetta sé neitt mál, en það er ekki fyndið
þegar þú missir skóinn og þarft að draga
hann á eftir þér því hann er enn spenntur
um ökklann á þér. Eða þegar kjóllinn opn-
ast og brjóstin skjótast fram,“ segir hún.
„Og svo eru skiptin á tískuvikunni í París,
þegar þrjár litlar gamlar konur eru að
reyna að renna upp kjólnum þínum sem er
svo þröngur að hann skerst inn í húðina, og
það fer að blæða og þú svitnar. Svo senda
þeir þig út á pallinn og þú finnur dropana
leka niður andlitið. Það eru til stærri vanda-
mál í veröldinni, en nákvæmlega þarna er
þetta ekkert gaman,“ segir fyrirsætan.
Ekki gaman að sýna brjóstin
Pete Doherty hefur slitið trúlofun
sinni og fyrirsætunnar Irinu
Lazareanu, sem hann hefur átt í
sambandi við síðan leiðir Doherty
og Kate Moss skildu í júní. „Hann
trúlofaði sig í stundarbrjálæði
þegar hann var pissfullur,“ segir
heimildarmaður The Sun, sem
segir Irinu hafa elt Doherty á
röndum og ekki látið hann í friði.
„Að lokum varð hann að slíta
sambandinu,“ segir heimildar-
maðurinn.
Doherty ku hafa sagt vinum
sínum að hann langi nú að ná
Kate Moss aftur, en hún á í
sambandi við tónlistarmanninn
Jamie Hince. Sumir halda þó að
Moss sé ennþá ástfangin af
Doherty, svo vel gæti verið að
hún rati aftur í fang hans.
Hættur með
Irinu
Geri Halliwell kallar dóttur sína „fallegt slys“.
Kryddstúlkan á tæplega eins og hálfs árs gamla
dóttur að nafni Bluebell Madonna með fyrrver-
andi elskhuga sínum, Sacha Gervasi. „Það eru
svo margar konur einstæðar mæður í dag og
mér finnst ég ekkert öðruvísi. Ég held að maður
uppskeri það sem maður sáir og Bluebell var
fallegt slys,“ segir Geri í viðtali við dagblaðið
Guardian.
Hún segir móðurhlutverkið hafa breytt sér.
„Ég læri eitthvað á hverjum degi. Ég er að læra
að hún er eins og blóm sem þrífst í sólarljósi og
sólarljósið er sjálfstraust, ég finn að þegar ég
er sjálfsörugg eykst sjálfstraust hennar,“ segir
Geri. „Fyrst var ég einhleyp, ung Bridget
Jones-týpa. Ég lifði í sjálfselskum heimi. Nú
þegar ég er orðin móðir hef ég miklu meiri
samkennd,“ segir hún. Geri segist jafnvel
hafa velt því fyrir sér að ættleiða fleiri
börn. „Ég er að kynna mér þetta að svo
stöddu,“ segir hún.
Dóttirin fallegt slys
Bein fimmtu og síðustu eiginkonu
sænska leikstjórans sáluga
Ingmars Bergman verða grafin
upp og flutt í gröf hans á eyjunni
Färø. Þetta var hinsta ósk
Bergmans og ákváðu fjölskyldur
hans og eiginkonunnar Ingrid að
verða við ósk hans og leyfa þeim
að hvíla saman.
Bergman, sem leikstýrði meðal
annars myndunum Sjöunda
innsiglið og Fanny og Alexander,
lést 30. júlí á heimili sínu á Färø,
89 ára gamall. Ingrid lést aftur á
móti árið 1995. Þau áttu saman
eina dóttur en Bergman átti átta
til viðbótar, meðal annars
rithöfundinn Linn Ullmann sem
hann átti utan hjónabands.
Eiginkonan
grafin upp
Opin ker f i ve rs lun • Höfðabakka 9 • 110 Reyk jav ík • S ími 570 1000 • www.ok. i s
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
20
6
7
Ekki bíða í viku
Opin kerfi bjóða viðskiptavinum á myndina The Heartbreak Kid. Þeir sem
kaupa blek, pappír eða aðrar HP prentaravörur í verslun Opinna kerfa fá
tvo miða á þessa sprenghlægilegu gamanmynd.
Hann beið allt sitt líf eftir þeirri réttu... verst að hann beið ekki viku
lengur. Glæný mynd frá leikstjórum “There’s something about Mary”.
FRÍTT Í BÍÓ