Fréttablaðið - 26.10.2007, Blaðsíða 80
Mér líður bara eins og ég sé heima hjá mér
www.pitstop.is
Íslandsmeistarar KR
komust aftur á beinu brautina í
gær með öruggum sigri á Snæ-
felli, 85-71. Meistararnir voru tals-
vert sterkari aðilinn í leiknum en
það er eitthvað að hjá Snæfelli,
sem er ekki líkt sjálfu sér þessa
dagana.
Snæfell mætti til leiks stiga-
laust eftir tvö töp í upphafi leiktíð-
ar og var greinilega ákveðið að
rétta sinn hlut á móti meisturun-
um. Gestirnir úr Hólminum byrj-
uðu vel, spiluðu fína vörn og voru
þolinmóðir í sókninni.
Heimamenn voru ekki alveg
með á nótunum í fyrsta leikhluta
og voru sex stigum undir, 16-22.
Það kviknaði heldur betur á meist-
urunum í öðrum leikhluta, þar
sem þeir buðu til veislu. Vörnin
small algjörlega og það gekk allt
upp í sókninni, sama hvort um var
að ræða þriggja stiga körfur eða
skrautkörfur. Avi Fogel fór mik-
inn og setti þrettán stig í leikhlut-
anum. Mest náði KR fimmtán
stiga forystu, 48-33, en munurinn
var tíu stig í leikhléi, 49-39.
Snæfell lét flugeldasýningu KR
í öðrum leikhluta ekki koma sér úr
jafnvægi og gestirnir voru mjög
grimmir og söxuðu jafnt og þétt á
forskot KR. Heimamenn rönkuðu
aftur á móti við sér undir lok leik-
hlutans þegar Snæfell var farið að
anda ofan í hálsmálið á þeim. Mun-
urinn níu stig þegar einn leikhluti
var eftir, 65-56.
Hann var algjörlega eign KR,
sem hafði öll tök á leiknum og hélt
Snæfelli allan tímann í hæfilegri
fjarlægð. Það var einfaldlega
klassamunur á liðunum í gær og
hann sást best í lokaleikhlutanum.
„Þetta er svekkjandi því við
gerum einfaldlega ekki það sem
okkur er sagt að gera, sem er ótrú-
legt,“ sagði Snæfellingurinn Hlyn-
ur Bæringsson niðurlútur. „Það
fer í taugarnar á mér að við skul-
um ekki gera það sem búið er að
tala um. Það er eitthvað sam-
skipta- og einbeitingarleysi í gangi
hjá okkur. Við rífum okkur upp úr
þessu. Ég hef fulla trú á því.“
Fannar Ólafsson, fyrirliði KR,
var talsvert kátari. „Við erum að
fínpússa okkar leik smám saman.
Það var gaman að Fogel væri
góður í dag og hann er að komast
vel inn í þetta hjá okkur. Um leið
styrkjumst við.
Ég verð að viðurkenna að ég átti
von á Snæfelli sterkara hér í dag.
Mér sýnist á öllu að það vanti
breidd hjá þeim. Byrjunarliðið er
frábært en bekkurinn er ekki nógu
sterkur hjá þeim. Það er ljótt að
segja það en við völtuðum yfir þá
um leið og menn komu af bekkn-
um,“ sagði Fannar.
Íslandsmeistarar KR voru í fínu formi á heimavelli sínum í gær þegar Snæfell
kom í heimsókn. KR var mun sterkari aðilinn lengstum og vann sanngjarnan
14 stiga sigur, 85-71. Snæfell er án sigurs í deildinni eftir þrjá leiki.
Sundkonan og Njarðvíking-
urinn Erla Dögg Haraldsdóttir er
í frábæru formi þessa daganna og
í gær setti hún sitt fjórða
Íslandsmet á einum mánuði.
Erla bætti í gær eitt elsta
Íslandsmetið með því að synda
100 metra bringusund á 1 mínútu
10,16 sekúndum. Metið setti hún á
opna danska meistaramótinu sem
fer nú fram í Greve í Danmörku.
Gamla metið átti Ragnheiður
Runólfsdóttir og það var sett 18.
mars 1989.
Millitími Erlu í sundinu var
einnig Íslandsmet en hún synti
fyrstu 50 metranna á 32,76
sekúndum en gamla metið
Ragnheiðar var upp á 32,93
sekúndur. Þetta voru síðustu
Íslandsmetin sem Ragnheiður átti
í 25 metra laug. Erla Dögg syndir
í úrslitum í sundinu í dag en hún
átti besta tímann í undanúrslitun-
um.
Bætti 18 ára Ís-
landsmet í gær
Knut Tørum sagði af sér
sem stjóri Rosenborg í kjölfar
eins besta sigurs í sögu liðsins í
gær þegar það skellti Valencia 2-0
í Meistardeildinni, en ákvörðunin
var tekin í samráði við stjórn
félagsins. „Ég hef reynt að gera
mitt besta til þess að ná árangri
með liðið. Staða okkar í deildinni í
Noregi gefur til kynna að
breytinga sé þörf, en ég yfirgef
félagið með mikið af góðum
minningum í farteskinu,“ sagði
Tørum.
Stjóri Rosen-
borgar hættur
Hinn 18 ára gamli
framherji Arsenal Theo Walcott
er ekki spenntur fyrir að vera líkt
við Thierry Henry, markahæsta
leikmann félagsins frá upphafi.
„Það var frábært að fá að æfa
með honum á hverjum degi og
læra af honum. Það eru allir alltaf
að líkja mér við Thierry en ég vil
vera þekktur fyrir að vera ég
sjálfur,“ segir Walcott, sem játar
það þó að Thierry Henry hafi
verið hans uppáhaldsleikmaður
og fyrirmynd.
„Það voru allir svekktir yfir því
að hann fór en nú erum við
eiginlega búnir að gleyma honum
því það gengur svo vel án hans,”
sagði Walcott en hann skoraði tvö
mörk í stórsigrinum á Slavia Prag
í vikunni. Líkt og Henry byrjaði
Walcott sem vængmaður en
Arsene Wenger, stjóri Arsenal,
var fljótur að setja hann fram
alveg eins og hann gerði með
Henry á sínum tíma.
Ég er ekki
Thierry Henry
Grindavík sigraði
Stjörnuna 86-92 í Ásgarði í gær-
kvöld en fyrir leikin voru bæði
liðin búin að vinna einn leik og
tapa einum í Iceland Express
deildinni í ár.
Heimamenn í Stjörnunni tóku
forystu byrjun og leiddu leikinn
nánast allan fyrsta leikhlutann.
Grindavík var þó aldrei langt
undan og staðan var orðin jöfn 27-
27 í lok leikhlutans.
Jafnræðið hélt áfram í öðrum
leikhluta þar sem liðin skiptust á
að taka yfirhöndina og þegar flaut-
að var til hálfleiks voru gestirnir
frá Grindavík með forystu 47-48.
Miklar sviptingar áttu sér stað í
þriðja leikhluta þar sem bæði lið
náðu ágætis forystu, en staðan að
honum loknum var 67-69 Grinda-
vík í vil.
Fjórði leikhluti var æsispenn-
andi eins og við var að búast og
staðan var jöfn 78-78 þegar fimm
mínútur lifðu leiks. Þá tók hins
vegar við vondur kafli hjá Stjörn-
unni, sem skoraði aðeins 5 stig á
tæpum fimm mínútum og gerði
það að verkum að sigur Grinda-
víkur varð þægilegri en efni stóðu
til og lokatölur urðu 86-92.
Friðrik Ragnarsson, þjálfari
Grindavíkur, var fyrst og fremst
sáttur með að vinna leikinn og
hrósaði seiglunni í liðinu.
„Við vorum langt frá okkar
besta leik en ég er mjög sáttur
með að við náðum að vinna leik-
inn, því það er sérstaklega mikil-
vægt að klára líka þá leiki þar
sem liðið er ekki að spila vel. En
auðvitað þurfum við að spila
betur ef við ætlum okkur ein-
hverja hluti,“ sagði Friðrik en sá
þó ástæðu til þess að hrósa liði
Stjörnunnar.
„Það er alveg ljóst að þetta er
besta Stjörnulið sem ég hef nokk-
urn tímann mætt og Stjörnumenn
eiga eftir að vinna mikið af leikj-
um í deildinni í vetur og þá sér-
staklega á heimavelli sínum.“
Grindavík sigraði á seiglunni
Iceland Express deild karla:
N1-deild kvenna í handbolta
Evrópuk. félagsliða í fótbolta