Fréttablaðið - 26.10.2007, Blaðsíða 86
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Eins og fram kom í Fréttablaðinu
bárust Sjónvarpinu yfir hundrað
umsóknir um starf dagskrárkynnis
áður en umsóknarfresturinn rann
út í byrjun þessa mánaðar. Af 103
umsóknum voru 18 frá karlmönn-
um. Það er því ljóst að vinsældir
þulustarfsins fara ekki dvínandi
nema síður sé. Þórhallur Gunnars-
son, dagskrárstjóri Sjónvarpsins,
segir að rúmlega fimmtungur hóps-
ins sé nú kominn í lokaúrtak og að
endanleg ákvörðun verði tekin fljót-
lega. „Við boðuðum 21 umsækjanda
í prufu og erum að vinna úr þeim.
Það er smám saman að koma skýr-
ari mynd á þetta og við reiknum
með að ráða í störfin í næstu viku.“
Í prufunum þurftu umsækjendur
sjálfir að skrifa texta um dagskrá
kvöldsins og lesa hann af mynda-
vélaskjá. „Við tökum allt með í
reikninginn,“ segir Þórhallur.
„Framkomu, málfar, textavinnu og
framsögn. Það er allt lagt undir.“
Þórhallur segir að líklega verði þrír
nýir dagskrárkynnar ráðnir. „Það
er þó ekki búið að taka endanlega
ákvörðun um það. Við erum hér
með starfandi dagskrárkynna sem
eru inni í þessu líka. Kannski verða
þau öll áfram.“ Hann neitar að gefa
upp hversu margir karlmenn séu í
lokahópnum. „Þeir eru færri en
konurnar.“ -
Lokaorustan hafin um þulustarf
„Ég sá byrjunina á þessu atriði og fannst eins
og ég kannaðist eitthvað við það,“ segir
Þorsteinn Guðmundsson en athygli vakti að
um helgina virtist Spaugstofan endurvinna
sígilt atriði úr Fóstbræðrum. Hjón á miðjum
aldri bjuggu í alltof stóru húsi og ákváðu að
gera eitt barnaherbergjanna að fangaklefa.
Glögga áhorfendur rámaði í að þarna væri á
ferðinni atriði sem svipaði óneitanlega til
þess þegar þau Þorsteinn og Helga Braga
gerðu slíkt hið sama í þáttunum sálugu. „Ég
held þó að allir sofi rólegir yfir þessu,“ bætir
Þorsteinn við.
„Spaugstofan er líka eilítið annars eðlis og
framleiðir gríðarlega mikið af efni og það er
því eðlilegt að svona komi upp. Efnistökin
eru líka alltaf ólík og mér finnst þetta ekkert
mál,“ útskýrir Þorsteinn og bætir því síðan
við að kannski hafi Spaugstofufélagarnir
horft á þættina og lært eitthvað af þeim. „Og
kannski hefur það verið þeirra gæfa. Síðan
koma vonandi Fóstbræðraþættirnir út á DVD
og þá hafa þeir efni fram á haust.“
Karl Ágúst Úlfsson, einn af forkólfum
Spaugstofunnar, sagðist ekki hafa séð
áðurnefnd atriði hjá Fóstbræðrum
og benti á oft gerðist það að menn
fengju svipaðar hugmyndir. „Og
það hefur komið fyrir að eldar
kvikni á mörgum stöðum
samtímis,“ bætir Karl við. Hvað
„útlenskuna“ varðar segir Karl að
það hafi komið úr Jamie Oliver en
Íslendingar séu farnir að versla
eftir erlendum matreiðsluþáttum.
Endurunnið grín í Spaugstofunni
„Holdafar er nokkuð sem við
gerum eitthvað í og allir eru að
eðlislagi grannir.“
„Þetta er mjög spennandi,“ segir söngkonan Bryndís
Jakobsdóttir, sem sendir frá sér sína fyrstu plötu
á næstunni. Eitt laganna á plötunni, Ljáðu
mér eyra, hefur þegar vakið athygli í kvik-
myndinni Veðramót en það samdi Bryndís
ásamt Dóra DNA. „Ég er búin að vera að
dunda mér í tónlist lengi, hef verið að æfa
mig að semja og finna minn eigin stíl. Svo
var ég komin með þó nokkuð mörg
lög og ákvað að gera plötu ásamt
breskum vini mínum sem ég kynnt-
ist í London og hef unnið töluvert
með.“
Bryndís á ekki langt að sækja
tónlistarhæfileikana því foreldrar
hennar eru þau Ragnhildur Gísla-
dóttir og Jakob Frímann Magnús-
son. „Þau hjálpuðu mér ekki við
gerð plötunnar hvað tónlistina
varðar, þar hef ég alveg ráðið
ferðinni,“ segir hún þegar hún er
innt eftir því hvort hún hafi notið
liðsinnis foreldranna. „En þau hafa veitt mér mikinn
stuðning. Pabbi hefur hjálpað mér að koma þessu öllu
heim og saman, séð um tæknilegar hliðar og almennar
reddingar. Kannski fæ ég þau til að spila eitthvað með
mér á næstu plötu.“
Platan hefur enn ekki hlotið nafn en
upptökur og annað er á lokastigi.
„Æ, ég er frekar sein með þetta allt
saman en er að vinna í því að finna
fallegt orð sem myndi lýsa plötunni
vel. Þetta er mjög persónuleg plata.
Ég samdi allt efnið sjálf, bæði ein og
í samstarfi við aðra. Mér finnst erfitt
að setja tónlist í orð en held ég
myndi segja að platan væri
mjög melódísk með persónu-
legum textum. Ég lagði líka
mikið upp úr því að hafa til-
raunakenndar útsetningar
og sérkennileg hljóð, til að
mynda þverflautur í popp-
lagi.“
Gnoðarvogi 44, s. 588 8686.
Opið 10-18:15 laugardaga 11-14.
NÝR TÚNFISKUR ófrosinn • RISARÆKJUR
LÚÐA • SKÖTUSELUR • HÖRPUSKEL
skréttir i sparifötum