Fréttablaðið - 26.10.2007, Blaðsíða 28
Fjölskyldan að Holtseli í Eyjafirði framleiðir
sælkeraís með alls konar bragði og
annar ekki eftirspurn.
„Við rákum augun í auglýsingu frá
hollenskum aðilum þar sem boðið
var upp á aðferð til að auka nýtingu
á mjólkurafurðum. Við sendum
tölvupóst til að kanna málið og
vorum komin til Hollands viku
síðar,“ segir Guðmundur Jón Guð-
mundsson, bóndi að Holtseli í Eyja-
firði, sem framleiðir sælkeraís sem
nefnist Holtselshnoss ásamt konu
sinni, Guðrúnu Egilsdóttur, og dótturinni
Örnu Mjöll. Að sögn Guðmundar tók undir-
búningsferlið um tvö ár og segir hann að yfirvöld á
Íslandi hafi verið lengi að taka við sér þegar leitað
var eftir leyfi.
„Það má segja að við höfum brotið ísinn í bókstaf-
legri merkingu þegar við hófum framleiðslu,“ segir
Guðmundur en Holtsel er eina mjólkurbúið á Íslandi
sem framleiðir ís af þessu tagi. Á bænum eru í dag
sextíu kýr ásamt slatta af hænum eins og Guðmundur
orðar það og nú hefur ísgerðin skapað tvö ný störf.
„Holtsel notar eigin afurðir í ísinn bæði mjólk og egg
en það fara um sextíu eggjarauður í níu lítra af ís og
hámarksafköst á dag eru 150-170 lítrar,“ segir Guð-
mundur en hann er aðeins hálftíma að búa til ísinn.
Á höfuðborgarsvæðinu fæst ísinn aðeins í Nóatúni
en fyrir norðan er hægt að
nálgast hann í Holtseli þar
sem einnig er rekið kaffi-
hús á sumrin, hjá sælkera-
búð Friðriks V og í Heilsu-
horninu.
„Við hættum að anna eftir-
spurn eftir fyrstu vikuna og
ég held að við séum eini
birgirinn þar sem Nóatún þarf
að vera á biðlista,“ útskýrir
Guðmundur hlæjandi og bætir
við að Nótaún bjóði upp á sex bragð-
tegundir af Holtselshnossinu.
„Við getum framleitt 30-50 tegundir, allt eftir
hvernig liggur á okkur. Þar á meðal er skyrís með
íslenskum bláberjum í samstarfi við KEA. Sá er öskr-
andi fjólublár og án allra litarefna. Hins vegar fæst
hann aðeins þegar berjavertíðin stendur yfir,“
útskýrir Guðmundur og segir hverfandi litla notkun
á rotvarnarefnum í ísnum.
Ásamt venjulegum ís býður Holtsel einnig upp á ís
fyrir sykursjúka og tekur við sérpöntunum. „Við
höfum verið að gera Grand Marnier-ís og jafnvel
tekið á móti fólki sem velur ís úr litaflórunni okkar
fyrir brúðkaupið sem er þá í stíl við skreytingarnar,“
segir Guðmundur og nefnir eina tegund sem þykir
æði sérstök. „Lakkrísísinn fer misjafnlega í fólk og
er kannski sá sérstakasti. Annaðhvort finnst fólki
hann alveg hrikalega vondur eða mjög góður.“
Óteljandi bragðtegundir
Mörkinni 6, Símí 588-5518
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 10-16