Fréttablaðið - 26.10.2007, Síða 36
BLS. 6 | sirkus | 26. OKTÓBER 2007
É g hef alltaf haft áhuga á fötum en þegar ég var barn og unglingur snerist þessi
áhugi minn frekar um flotta og
öðruvísi búninga,“ segir Maríanna
Clara Lúthersdóttir leikkona. Hún
var dugleg að gramsa í fötum
fjölskyldunnar þegar hún var lítil.
Maríanna Clara kaupir sín föt hér á
Íslandi aðallega í verslunum með
notuð föt eða í litlum, flottum
hönnunarbúðum í London og
Berlín. „Svo þegar maður á
stórafmæli eins og ég átti á árinu fer ég gjarnan í Trilogiu,
Kron og Kvk,“ segir hún en Maríanna er mjög hrifin af íslenskri hönnun. Beðin
um að lýsa smekk sínum segist Maríanna Clara hrifin af kjólum. „Ég er annars
vegar mjög hrifin af gullárum Hollywood og hins vegar einföldum gallabux-
um og minni glamúr. Það fer eiginlega bara eftir skapi og ég tek hlutina helst
alla leið,“ segir hún. „Ef ég er í kjól reyni ég að greiða mér í stíl og finna skó
sem passa við svo þetta jaðrar stundum við að vera búningar,“ segir hún og
bætir við að þar sem hún sé með þetta búningaæði sé skemmtilegt að vinna í
leikhúsi en Maríanna leikur í Killer Joe þessa dagana. Maríanna Clara segist
vera meira fyrir sumarið þegar kemur að fötum enda sé fjölbreytnin meiri
þegar hlýrra sé í veðri. „Ég á ekki margar hlýjar kápur og kuldaskó til
skiptanna enda eru þessir hlutir í dýrari kantinum. Á sumrin geturðu hins
vegar leyft þér meiri fjölbreytni.
Ég er samt ánægð með árstíða-
breytingarnar hérna því þannig
verður stemningin ólík. Ég held
ég yrði leið á að búa til dæmis í
Florída og ganga alltaf í svipuð-
um fötum. En ég vildi alveg að
það væri aðeins hlýrra hérna,“
segir hún brosandi að lokum.
indiana@frettabladid.is
MARÍANNA CLARA LÚTHERSDÓTTIR LEIKKONA HEFUR ALLTAF HAFT GAMAN AF SKEMMTILEGUM BÚNINGUM
OG SMELLPASSAR ÞVÍ INN Í LEIKHÚSIÐ.
STÍLLINN FER EFTIR SKAPINU
VIÐ EXTREME
TÆKIFÆRI
„Ég keypti
þennan
skærgula kjól í
Spútnik fyrir
tveimur árum
en hann hentar
vel sem gleði-
og áramóta-
dress auk þess
sem ég var í
honum á gay-
pride balli.“
/MYND VÖLUNDUR
ÚTSKRIFTAR-
KJÓLLINN
„Ég keypti
þennan kjól
fyrir útskriftina
úr leiklistar-
deildinni og hef
notað hann
heilmikið. Hann
gæti þess
vegna verið
brúðarkjóll ef
ég væri með
slör.“
ELSKAR BÚNINGA
Maríanna Clara
heldur mikið upp
á þennan
ljósbláa kjól sem
gæti þess vegna
verið frá árinu
1920.
ELSKAR
GLINGUR
Maríanna
Clara segist
kunna að
meta glingur
meira með
aldrinum.
Spöngina fékk
hún í KVK á
Laugavegin-
um.
LADEN ROOM
„Töskuna keypti ég í
uppáhaldsbúðinni
minni í London,
Laden Room. Þangað
fer ég alltaf og kaupi
mér hönnun ungra
hönnuða á góðu
verði.“
GAMALDAGS
„Ég fékk
þennan
gamaldags-
hatt í Rokki
og rósum en
þetta er svona
hetta með
fjöður sem
maður tyllir á
kollinn.“
FRÚIN Í HAMBORG
„Þennan
dökkgræna
jólakjól keypti ég
á Akureyri í
Frúnni í Hamborg
en ég mæli mikið
með þeirri búð.“
DANSANDI ELDHAF
„Þennan keypti ég
fyrir Grímuna þegar
ég var tilnefnd fyrir
Killer Joe. Ég átti
engan pening en
fann þennan í
Spútnik á aðeins 7
þúsund.“