Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.10.2007, Qupperneq 72

Fréttablaðið - 26.10.2007, Qupperneq 72
Fyrir rétt um ári síðan skrifaði ég þrjá pistla hér á tónlistarsíðum Fréttablaðsins um niðurgang íslensks popps. Beindi ég gagnrýni minni að útvarpsstöðvunum og hljómsveitunum sjálfum en þó aðallega að útgáfufyrirtækjunum og auðvitað mest að Senu, langstærsta tónlistar- útgáfufyrirtæki landsins. Sagði ég íslensku poppsenuna einkennast af ófrumlegum, leiðinlegum og óáhættusömum uppátækjum sem væru ekki í samræmi við íslenskt samfélag. Fyrir loks tveimur vikum síðan kvað við nýjan tón í íslenskri poppmenningu og ég verð að viðurkenna að það gladdi mitt litla hjarta einstaklega mikið. Tímarnir okkar með Sprengjuhöllinni er ekkert annað en Sumar á Sýrlandi minnar kynslóðar. Sneisafull af ódauðlegum poppmelódíum sem verða kyrjaðar af íslensku þjóðinni um ókomna framtíð. Um daginn var ég einmitt staddur á tónleikum með Sprengjuhöllinni. Mér á vinstri hönd var ungt par í frekar djúpum sleik og mér á hægri hönd söng móðir mín hástöfum með og klappaði. Þetta kallar maður klassík. Og nú er kominn tími til þess að láta kné fylgja kviði enda ætti flestum að vera ljóst að 98% þeirra sem eru að skapa tónlist á Íslandi eru ekki í þessum Ædol/X-faktor/ kareokí-pælingum sem hafa þó verið ráðandi í íslenskri tónlistarútgáfu. En þetta er ekki eingöngu undir útgáfu- fyrirtækjunum komið enda taka þau oftast töluverða áhættu. Útvarpsstöðvarnar, þið vitið, þessar ljúfu topptónlistarstöðvar sem eru alltaf bjartar og brosandi, þurfa að vakna og sjá að nútíma íslenskt popp heillar hlustendur alveg jafn mikið og gamli góði Rod Stewart, ef ekki meira. Hljómsveitirnar þurfa einnig að átta sig á að poppformið er ekki svo óheillandi eftir allt saman. Spilun á FM 957 og/eða Bylgjunni þarf ekki að þýða endalok heimsins. Ég gæti núna dottið í upptalningu á þeim fjölmörgu íslensku hljómsveitum sem mér finnst vera að hjálpa Sprengjuhöllinni að breyta íslensku popplandslagi og gætu jafnvel breytt því enn meira en Sprengjuhöllin hefur gert til þessa. Listinn er einfaldlega of langur og þeir sem hafa á annað borð áhuga á að finna þær þurfa ekki annað en að líta í kringum hornið. Breyttir tímar Platan Raising Sand með Robert Plant og Alison Krauss hefur komið aðdá- endum þeirra skemmtilega á óvart. Ekki bara sú stað- reynd að þessir ólíku tón- listarmenn hafi gert plötu saman, heldur líka hversu vel hún heppnaðist. Trausti Júlíusson skoðaði samstarf rokkarans og blúgrass-gyðj- unnar. Nú í vikunni kom út platan Raising Sand með Led Zeppelin-söngvar- anum Robert Plant og blúgrass- gyðjunni Alison Krauss. Platan, sem hefur fengið afbragðsdóma, var tekin upp undir stjórn T-Bone Burnett, sem er talinn eiga stóran þátt í því hversu vel tókst til. T- Bone er sennilega þekktastur fyrir að hafa stjórnað upptökum á tón- listinni á kvikmyndaplötunum O Brother, Where Art Thou?, Cold Mountain og Walk The Line. Forsögu plötunnar má rekja til símtals sem Alison Krauss fékk algerlega óvænt þegar hún var heima hjá sér í Nashville fyrir sjö árum. Í símanum var enginn annar en Robert Plant, sem tjáði henni að hann væri mikill aðdáandi og að hann vonaðist til þess að þau gætu einhvern tímann unnið saman. Nokkrum árum seinna var Plant beðinn um að taka þátt í dagskrá til heiðurs blúsgoðsögninni Leadbelly og hann notaði tækifærið og bað Alison að syngja með sér. Þau tóku saman fjögur lög og komust að því að þau vildu gjarna vinna meira saman. Robert Plant er að sjálfsögðu óþarft að kynna, en Alison Krauss, sem er fædd 1971 var fyrst þekkt sem fiðlu-undrið frá Illinois sem fékk plötusamning þrettán ára. Hún hefur undanfarin ár verið fremst í flokki þeirra tónlistar- manna af yngri kynslóðinni sem halda merkjum blúgrass-tónlistar- innar á lofti, en blúgrass er eins- konar frum-kántrý. Alison hefur fengið fleiri Grammy-verðlaun en nokkur önnur kona, 20 talsins. T-Bone Burnett vakti athygli á áttunda áratugnum sem gítarleik- ari í bandi Bob Dylan, Rolling Thunder Revue, en fór að snúa sér meira að upptökustjórn á níunda áratugnum, tók til dæmis upp plötu Elvis Costello King of America árið 1986. Alison hafði unnið með honum á O Brother... og Cold Mountain-plötunum og stakk upp á því að hann stjórnaði upptökunum á plötunni hennar með Plant. Raising Sand var tekin upp á tíu dögum síðasta haust. Á henni eru þrettán lög eftir lagahöfunda eins og Gene Clark, Tom Waits, Townes Van Zandt, The Everly Brothers og Little Milton. T-Bone valdi lögin í samráði við Plant og Alison. Tón- listin á Raising Sand sækir í banda- ríska alþýðutónlistarhefð. Á henni blandast saman áhrif frá blúgrass, kántrý, þjóðlagatónlist, soul og rokkabillý. Bæði Robert Plant og Alison Krauss tala um að gerð plötunnar hafi verið reynsla sem breytti lífi þeirra. Þau voru bæði stressuð í byrjun, en svo small allt og útkom- an er heillandi plata sem líkist engu öðru sem þau hafa áður gert. Þau syngja mikið í harmóníu, en það er nokkuð sem Robert Plant hefur ekki fengist við áður. Raising Sand hefur fengið frábæra dóma, til dæmis fimm stjörnur af fimm mögulegum í Mojo, Uncut og breska dagblaðinu Independent. Hljómsveitin Dýrðin fær góða dóma fyrir frammi- stöðu sína á Iceland Airwaves-hátíðinni hjá tón- listarsíðunni Pitchfork. Ákvað greinarhöfundur að sjá Dýrðina spila fyrir um þrjátíu manns á Grand Rokk í stað þess að fylgjast með hinum þekktu !!!, Bloc Party og Chromeu troða upp. Ástæðan var sú að hann hafði heyrt lög með sveit- inni á heimasíðu Iceland Airwaves. „Sem betur fer fannst mér Dýrðin vera uppgötvun hátíðarinnar,“ sagði blaða- maðurinn, sem heillaðist sérstaklega af lokalagi tón- leikanna, Bubble Girl. „Það var ennþá í höfðinu á mér morguninn eftir þegar allir pökkuðu föggum sínum og ráfuðu síðan um Reykjavík til að eyða sínum síðustu krónum í undarlegt lakkrís- sælgæti og ullarpeysur.“ Dýrðin uppgötvuð Tónlistarmaðurinn Pétur Ben er hálfslappur þessa dagana eftir að hafa komið fram á hverjum tónleik- unum á fætur öðrum í tengslum við Airwaves-hátíð- ina. Sérstaklega var síðasti föstudagur viðburðamikill hjá Pétri þegar hann spilaði með félaga sínum Mugi- son í beinni útsendingu í dönskum útvarpsþætti, í nýjum skemmtiþætti Loga Bergmanns, á podcast- tónleikum, á öðrum tónleikum í Skífunni, auk þess sem hann tróð upp sjálfur í Lídó um kvöldið. „Það voru frábærir tónleikar. Ég myndi vilja eiga þessa áhorfendur og fara með þá hvert sem ég fer,“ segir Pétur Ben. Hann var eins og gefur að skilja dauð- þreyttur eftir daginn og er í rauninni ennþá að jafna sig. „Þetta var dagur þar sem maður átti ekkert eftir en hátíðin gekk rosalega vel upp og mér fannst allt sem við tókum þátt í hafa gengið vel.“ Kona Péturs, Anna Kristín Guðmundsdóttir, var honum til halds og trausts í Lídó eins og svo oft áður. Hann segir það æðislegt að hafa hana með sér á svið- inu. „Það er mjög þægilegt og eiginlega eins og að vera heima hjá sér.“ Anna Kristín spilaði einnig með Pétri í þættinum Söngvaskáld sem var sýndur í Sjónvarpinu á dögun- um og stóð sig þar með mikilli prýði. Vanalega hefur hún sungið með Pétri með hristu í hendi en í þættin- um brá hún sér í nýtt hlutverk. „Ég lét hana spila á trommur, bassa og orgel. Hún hafði aldrei spilað á þessi hljóðfæri áður og við höfðum bara þrjá daga til að undirbúa okkur. Ég gerði léttar útsetningar á lög- unum og það gekk rosalega vel upp. Hún söng um leið og þetta var ótrúlega vel af sér vikið hjá henni. Þetta sýnir að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi.“ Úrvinda eftir Iceland Airwaves / rakel@osk.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.