Fréttablaðið - 26.10.2007, Qupperneq 79
Hljómsveitin Sigur Rós segir að
kvikmyndin Vanilla Sky, þar sem
lag hennar Untitled #4 hljómaði,
hafi verið ömurleg. Hljómborðs-
leikarinn Kjartan Sveinsson lét
hafa þetta eftir sér eftir sýningu
á heimildarmyndinni Heima á
bresku hátíðinni Electric Proms.
Vanilla Sky kom út árið 2001 og
skartaði Tom Cruise, Cameron
Diaz og Penelope Cruz í aðalhlut-
verkum.
Sigur Rós hefur einnig átt lag í
kvikmyndinni The Life Aquatic
with Steve Zissou með Bill
Murray í aðalhlutverki, auk þess
sem lög sveitarinnar hafa
hljómað í sýnishornum við
myndirnar The Invasion og
Children of Men.
Vanilla Sky
var ömurleg
Hljómsveitin Simply Red ætlar
að hætta störfum árið 2009, 25
árum eftir að hún var stofnuð.
Mick Hucknall, forsprakki
sveitarinnar, segir að platan Stay,
sem kom út í mars síðastliðnum,
sé síðasta plata hennar og hún
muni hætta störfum eftir að
tónleikaferð hennar lýkur eftir
tvö ár.
„Ég hef eiginlega ákveðið að
segja þetta gott eftir 25 ár,“ sagði
Hucknall, sem hyggst einbeita
sér að sólóferli sínum.
Simply Red komst á toppinn á
vinsældalistum með plötum á
borð við A New Flame, Stars og
Life sem hafa selst í rúmum
fimmtíu milljónum eintaka. Á
meðal vinsælustu laga hennar eru
Holding Back the Years, If You
Don´t Know Me By Now, Some-
thing Got Me Started og Fair-
ground.
Simply Red
að hætta
Veðramót Guðnýjar Halldórsdóttur fékk
ellefu tilnefningar til Eddunnar og er þetta
aðeins í annað sinn sem íslensk kvikmynd
fær fleiri en tíu tilnefningar. Hafið eftir
Baltasar Kormák á enn sem fyrr metið
með tólf tilnefningar og Mávahlátur Ágústs
Guðmundssonar vermdi annað sætið með
sínar tíu samkvæmt imdb.com þar til á
þriðjudaginn þegar Veðramót velti henni
úr sæti.
Veðramót hefur fengið frábæra dóma í
fjölmiðlum og margir jafnvel gengið svo
langt að segja þetta eina bestu kvikmynd
sem gerð hefur verið á Íslandi. Fimm leik-
arar myndarinnar eru tilnefndir fyrir leik
sinn í kvikmyndinni en það eru þær Hera
Hilmarsdóttir og Tinna Hrafnsdóttir í
flokki leikara í aðalhlutverkum og þau Jör-
undur Ragnarsson, Gunnur Schlüter og
Þorsteinn Bachmann fyrir leik í aukahlut-
verki. Þar að auki fékk Guðný Halldórs-
dóttir tvær, eina fyrir leikstjórn og eina
fyrir handrit.
Ef tekið er mið af þeim verðlaunum sem
myndir með álíka fjölda tilnefninga má
reikna með að Veðramót hljóti að minnsta
kosti sex Eddur. En reyndar gæti brugðið
til beggja vona því í fyrra voru til að mynda
Börn tilnefnd til átta verðlauna en hlutu
aðeins ein, fyrir besta handritið.
Veðramót í sérflokki
Bandarískir kvikmyndaaðdá-
endur hafa verið hvattir til að
gefa blóð í tengslum við frum-
sýningu hryllingsmyndarinnar
Saw IV. Með þessu móti vilja
framleiðendur myndarinnar
kynna hana betur og um leið
hvetja fólk til þess að gefa
blóð.
Þessi háttur hefur einnig
verið hafður á varðandi hinar
þrjár Saw-myndirnar og hefur
uppátækið gengið vonum
framar. Að sögn Stephanie
Millian, talsmanns Rauða
krossins, hafa Saw-myndirn-
ar hvatt aðdáendur á öllum
aldri til að gefa blóð. „Það má
líta á þetta sem leið fyrir þá
til að vaxa úr grasi og í fram-
haldinu getur blóðgjöfin orðið
hluti af lífi þeirra,“ sagði
hún.
Markaðsstjórarframleiðslu-
fyrirtækisins Lionsgate ætl-
uðu upphaflega að nota blóð-
gjöfina til að kynna fyrstu
myndina en síðan þá hefur
verkefnið undið upp á sig.
Fyrst söfnuðust 2.100 lítrar en
núna eru lítrarnir orðnir 24
þúsund. „Aðdáendunum finnst
þetta vera hluti af heildar-
pakkanum,“ sögðu þeir.
Á annarri hverri sekúndu
þarfnast einhver blóðs í
Bandaríkjunum, sem þýðir að
á meðan hin 95 mínútna Saw
IV er sýnd þurfa um 2.850
manns á blóði að halda.
Hvatt til blóðgjafar
STRANGLEGA
BÖNNUÐ
INNAN 16 ÁRA
FRUMSÝND Í DAG!
“Cronenberg bætir nú um betur
með grimmum, ofbeldisfullum og jafnvel
enn miskunnarlausari glæpatrylli
....auðug af framúrskarandi leik
...á í vændum gott gengi þegar myndir
ársins verða gerðar upp...enginn gleymir
nokkru sinni hnífaslagnum!"
- Sæbjörn Valdimarsson, Morgunblaðið
"Viggo Mortensen sýnir stórleik ársins og
brennir gat á tjaldið með sláandi góðri
óskarsverðlauna frammistöðu."
- Peter Travers, Rolling Stone
"Slagsmálatriðið í rússnesska gufubaðinu
er strax orðið sígilt og verður örugglega
umtalaðasta kvikmyndaatriði þessa árs."
- Ty Burr, The Boston Globe
"Meistaraverk! David Cronenberg
sannar að hann er frumlegasti, djarfasti
og hugrakkasti leikstjóri Bandaríkjanna."
- Richard Corliss, Time Magazine