Fréttablaðið - 31.10.2007, Síða 8
Af hvaða tilefni ætla þúsund-
ir ferðamanna að heimsækja
Ísland um helgina?
Hvað heitir nýr þjálfari
íslenska landsliðsins í knatt-
spyrnu?
Hvaða hreppi beinir rit-
höfundurinn Hrafn Jökulsson
sérstaklega sjónum að í bókinni
Þar sem vegurinn endar sem
kemur út nú í haust?
Guðlaugur Þ. Þórðarson
heilbrigðisráðherra sýndi alvarleg-
an dómgreindarbrest þegar hann
lýsti yfir stuðningi við frumvarp
um afnám einkaréttar ÁTVR á sölu
á léttu áfengi, sagði Björgvin Valur
Gíslason, þingmaður Vinstri
grænna (VG), í umræðum á Alþingi
í gær.
Björgvin sagði dómgreindar-
brest ráðherra svo alvarlegan að
hann efaðist um hæfi hans til að
gegna embættinu. Hann væri að
ráðast gegn niðurstöðum stofnana
sem heyrðu undir ráðuneytið; land-
lækni, lýðheilsustöðvar og fleiri,
sem hefðu varað við því að sala á
áfengi yrði gefin frjáls.
Guðlaugur sagði það rétt að hann
hefði ekki skipt um skoðun í mál-
inu. Hann var fyrsti flutningsmað-
ur samhljóða frumvarps sem flutt
var á síðustu þingum. Hann mót-
mælti fullyrðingum um að hann
hefði með því að lýsa stuðningi við
frumvarpið ráðist á þær stofnanir
sem lýst hefðu andstöðu við þessar
breytingar.
Guðlaugur benti á að þingmenn
Vinstri grænna hefðu hingað til
talað fyrir auknu aðgengi að áfengi
með því að fjölga útsölustöðum
ÁTVR, en nú höfnuðu þeir frum-
varpi sem leiða myndi til fjölgunar
útsölustaða.
Ögmundur Jónasson, þingmaður
Vinstri grænna, tók þetta óstinnt
upp, og benti á að Vinstri græn
hefðu talað fyrir jöfnu aðgengi
landsmanna en gegn því að mark-
aðsöflunum yrði falið að koma
meira áfengi í landsmenn.
Sagður sýna dómgreindarbrest
Hva› passar me› ? vinbud.is
Þorgerður Sigurjóns-
dóttir, oddviti í Bæjarhreppi, hafði
samþykkt hreppsnefndar ekki að
baki sér þegar hún bað um það
fyrir hönd hreppsins að landbún-
aðarráðuneytið stofnaði lóð undir
frístundahús tengdafólks síns.
Í nýju deiliskipulagi fyrir Borð-
eyri sem nú er í vinnslu er gert ráð
fyrir lóðum fyrir frístundahús.
Þótt skipulagið sé ekki tilbúið
hefur eitt hús verið flutt á staðinn.
Er það í eigu tengdaforeldra dótt-
ur oddvitans sem settu húsið niður
á Borðeyri samkvæmt persónu-
legu leyfi frá Þorgerði oddvita.
Fyrrverandi oddviti, Ragnar
Pálmason, óskaði eftir því fyrir
nokkrum vikum að fá úr skjala-
safni Bæjarhrepps bréf sem Þor-
gerður skrifaði til landbúnaðar-
ráðuneytisins í júní. Ragnar vill
líka fá því svarað hvenær málið
hefði verið rætt í hreppsnefndinni.
Ragnar hefur hvorki fengið afrit
bréfsins né svar frá hreppnum. Í
samtali við Fréttablaðið segist
hann ekki vilja tjá sig um málið
fyrr en hreppsnefndin hafi skýrt
mál sitt.
Í bréfinu til landbúnaðarráðu-
neytisins óskar Þorgerður eftir
því fyrir hönd Bæjarhrepps að
ráðuneytið stofni lóð undir sumar-
hús fyrir umrædda tengdaforeldra
dóttur oddvitans. Engar sam-
þykktir liggja fyrir hjá hrepps-
nefndinni um stofnun þessarar
lóðar og byggingarleyfi vantar.
Sigurður Þráinsson hjá landbún-
aðarráðuneytinu segir erindi odd-
vitans ekki hafa verið svarað og
leigusamningur ekki verið gerður
þar sem skipulagslegar forsendur
séu ekki fyrir hendi. Hann segir
ráðuneytið ekki hafa gert athuga-
semdir við hið umdeilda hús. „En
það er náttúrlega alveg ljóst að
sumarbústaðurinn er þarna ekki
með neinu leyfi þegar vantar leigu-
samninginn og erindinu hefur ekki
verið svarað,“ segir Sigurður Þrá-
insson.
Þorgerður oddviti segir málið
ekki vera í sínum höndum. „Ég hef
ekkert um þetta að segja,“ segir
Þorgerður og vísar á varaoddvita
sinn.
„Það er alveg fráleitt í þessu
máli að draga fram tengsl oddvit-
ans við eigendur hússins. Að öðru
leyti vil ég ekki tjá mig enda er
þetta ekki fréttaefni,“ segir Sig-
urður Kjartansson varaoddviti.
Oddviti úthlut-
aði ríkislóð án
heimildar
Oddvitinn í Bæjarhreppi leyfði tengdaforeldrum
dóttur sinnar að reisa sumarhús á ríkislandi þótt
umbeðið leyfi frá landbúnaðarráðuneytinu væri
ekki fengið. Húsið er án byggingarleyfis.
Veiðimaður er á
batavegi eftir að hann var skotinn
af stuttu færi af hundinum sínum
í Iowa-ríki í Bandaríkjunum.
Skot hljóp úr haglabyssunni í
fótlegg veiðimannsins, James
Harris, þegar hundurinn hans
steig á byssuna og hrasaði um
gikkinn. Fékk hann á milli 100 og
120 högl á tíu sentimetra svæði á
fótleggnum af 91 sentimetra færi.
Slysið varð á laugardaginn á
fyrsta degi fasana-veiðitímabils-
ins. Hafði Harris lagt frá sér
haglabyssuna á meðan hann
klofaði yfir girðingu á leið til að
sækja fugl sem hópurinn hans
hafði skotið.
Hundur skaut
eiganda sinn