Fréttablaðið - 31.10.2007, Blaðsíða 18
Ferðafélagið Patrekur geymir
tvær hugrakkar snótir með
ferðaþrá til framandi landa, en
báðar settust við sömu tölvu
í Laos þar sem örlagavefur
flækti spor þeirra saman.
„Ég var ein að ferðast um Laos á
leið til Víetnam og Kambódíu
þegar ég skaust inn á internetkaffi
þar sem nafn mitt og bloggsíða
vistaðist á einni tölvunni. Þremur
vikum síðar fer svo Sigríður Víðis
Jónsdóttir inn á þetta sama kaffi-
hús, í sömu tölvu, þar sem nafn
mitt poppar upp; fer inn á bloggið
mitt og sér að ég er ein að ferðast
um sömu slóðir og hún,“ segir
Halla Gunnarsdóttir blaðamaður
um þessa sérstæðu samfundi.
„Sigga hafði strax samband og
við ákváðum að mæla okkur mót á
Happy Guesthouse númer 10 í
Kambódíu. Strax tókst með okkur
mikill vinskapur og í kjölfarið
stofnuðum við Ferðafélagið Patr-
ek á degi heilags Patreks,“ segir
Halla þegar hún rifjar upp tilurð
Ferðafélagsins Patreks.
„Ég efast ekki um mátt örlaga
og veit að þarna voru æðri máttar-
völd að leiða okkur saman. Þótt
báðar værum íslenskar, á sama
aldri og með svipuð áhugamál viss-
um við ekki hvor af annarri, en
kom í ljós að báðar voru blaða-
menn fyrir Morgunblaðið,“ segir
Halla um þau ótrúlegu örlög sem
fundu henni svo óvæntan ferðafé-
laga í sex vikna framhaldsför sem
endaði í Malasíu.
„Tilefni örlaganna var ekkert
sérstakt, því báðum finnst gott að
ferðast einar og ekkert sérstakt
kom upp á sem þarfnaðist samfé-
lags. Sigga er reyndar sérfræðing-
ur í að pikka upp sýkingar og vön
að koma sér sjálf á sjúkrahús, en
auðvitað er ekki hægt að syngja „Á
Sprengisandi“ raddað í helli nema
vera tvær,“ segir Halla hláturmild,
en verður svo alvarleg í bragði:
„Það er líka mikilvægt að eiga
minningar með öðrum. Mér finnst
stundum dapurlegt að hafa engan
til að rifja upp það sem á daga
mína hefur drifið á ferðalögum.“
Og þegar heim úr ferðalaginu
kom gerðust þær stöllur sambýl-
ingar í Reykjavík.
„Við deilum ekki íbúð lengur en
erum enn bestu vinir, vinnum á
Mogganum og þvælumst um í
nafni Patreks. Síðast fór ég ein til
Írans og Sigga til Súdan, Úganda
og Kenýa. Við erum með píla-
grímsferð til Patreksfjarðar á
prjónunum í tilefni fjögurra ára
afmælis Patreks í mars. Ég efast
ekki um að það verður gert með
stæl, eins og annað sem Patrekur
tekur sér fyrir hendur,“ segir
Halla hlæjandi, þar sem hún veif-
ar til Siggu sem enn á ný heldur af
stað út í heim.
Örlagaflækjur í Laos
W W W. I C E L A N DA I R . I S
Ferðaávísun gildir
HUGURINN BER ÞIG
AÐEINS HÁLFA LEIÐ
Það er stutt
til Manchester
og jólanna
SPENNANDI TILBOÐSVERÐ
FRÁ 39.900* KR. Á MANN
Í FJÓRAR NÆTUR
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
97
33
10
/0
7
* Innifalið: Flug fram og til baka, flugvallarskattar
og gisting í 4 nætur á Thistle Manchester Hotel með morgunverði.
Prófaðu eitthvað nýtt fyrir jólin. Jólaskapið
í Manchester gerir þessa líflegu borg ennþá
skemmtilegri. Það er ensk hátíðarstemning á
pöbbunum, fjör í tónlistinni, góður matur
á fyrsta flokks veitingastöðum og hagstætt
að líta inn í verslunarhúsin og búðirnar.
Jólamarkaðir í Manchester eru á fjórum stöðum
í miðborginni, á Albert Square og St Ann's Square
og í Exchange Street, New Cathedral Street,
Brazennose Street.
Hugsaðu gott til Manchester og jólanna.
Nýttu þér þetta einstaka tilboð sem gildir
á tilteknum brottfarardögum
í nóvember og desember.
TAKMARKAÐ SÆTAFRAMBOÐ
Ferðaskrifstofa
Barcelona
í nóvember
frá kr. 39.990
5. nóv.
12. nóv.
19. nóv.
Einstakt lúxustilboð!
Aðeins örfá herbergi í boði!
Barcelona er einstök perla sem íslendingar hafa tekið ástfóstri við. Heimsferðir bjóða þér
nú tækifæri til að njóta lífsins og dekra við þig í aðbúnaði í þessari einstaklega fögru borg
á frábærum kjörum. Bjóðum frábært sértilboð á einu af vinsælustu hótelum okkar, Hotel
Barcelona Plaza ****. Bjóðum einnig ótrúlegt lúxustilboð á hinu glæsilega Hotel Granados
83 ****+ hóteli, sem býður frábæra staðsetningu í hjarta Barcelona. Einstaklega glæsilegt
fjögurra stjörnu “superior” hótel með frábærum aðbúnaði og þjónustu. Ath. aðeins örfá
herbergi eru í boði á þessum kjörum.
Frá kr. 49.990
M.v. 2 í herbergi í 3 nætur á Hotel Grana-
dos 83 ****+ með morgunverði, 5., 12.
eða 19. nóvember. Netverð á mann.
Frá kr. 39.990
M.v. 2 í herbergi í 3 nætur á Hotel Barce-
lona Plaza **** með morgunverði, 5., 12.
eða 19. nóvember. Netverð á mann.
frá18.400
Vika í Þýskalandi
kr. - ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattar.
VW Fox eða sambærilegur
522 44 00 • www.hertz.is
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
E
R
3
69
19
0
4/
07