Fréttablaðið - 31.10.2007, Síða 25

Fréttablaðið - 31.10.2007, Síða 25
Sölufólk óskast auglýsum eftir sölufólki helgina 2-4. nóvember. Góð sölulaun í boði. Upplýsingar gefur Gudmundur Jóhannsson hjá Landsbjörg í síma 5705900 eða gudmundur@landsbjorg.is. KÓPAVOGSBÆR „Ljóðstafur Jóns úr Vör” Ljóðasamkeppni Lista og menningarráð Kópavogs efnir til árlegrar ljóðasamkeppni undir heitinu „Ljóðstafur Jóns úr Vör”. Veitt verða vegleg verðlaun og mun verðlaunaskáldið fá til varðveislu í eitt ár göngustaf sem á verður festur skjöldur með nafni þess. 3ja manna dómnefnd mun velja úr ljóðum sem berast. Öllum skáldum er velkomið að senda ljóð í keppnina. Þau mega ekki hafa birst áður. Ljóðum skal skilað með dulnefni og skal nafn, heimili og sími skáldsins fylgja með í lokuðu umslagi auðkennt með sama dulnefni. Aðeins má senda eitt ljóð í hverju umslagi og þess vænst að ljóðunum sé skilað á pappírsstærðinni A-4 eða A-5. Skilafrestur er til 9. desember 2007 og utanáskriftin er: „Ljóðstafur Jóns úr Vör” Tómstunda- og menningarsvið Kópavogs b.t. Sigurbjargar H. Hauksdóttur, Fannborg 2, 200 Kópavogur Afhending verðlaunanna fer fram á afmælisdegi Jóns úr Vör mánudaginn 21. janúar 2008. Þátttöku ljóð má sækja á ofangreint heimilisfang fyrir 1. febrúar; eftir það verður þeim eytt.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.